Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 10

Útvarpstíðindi - 08.06.1942, Síða 10
Smælkí Hár aldur. E'nskur bóndi, Thomas Parre, varö 152 ára og átti son, sem varð 127 ára. Hann varð þjóðkunnur fyrir það, að hinn frægi skurðlæknir Harvey skav upp lík hans og ritaði stóra bók um hann. Þegar Thomas var 101 árs gam- all, var hann tekinn fastur fyrir skír- lífisbrot, og þegar hann var 120 ára, kvæntist hann ekkju, sem fullyrti, að sér dytti aldrei í hug, að hún ætti gaml- an mann. H. Jenkins, sem dó 1670 í Yorkshire, varð 169 ára. Skömmu áður en hann dó var hann kallaður fyrir rétt til að bera vitni um atburð, sem skeð hafði fyrir 140 árum, og reyndist þá minm hans með afburðum. Skurðlæknirinn Politman í Lothrin- gen varð 140 ára; hann átti þá unga konu, sem þjáðist af krabbameini, og það mein skar hann upp daginn áður en hann dó. Um hann gengur sú saga, að hann hafi verið fullur á hverju kvöldi frá því hann var á 25. árinu. Hann átti í því efni sammerkt við danskan mann, sem hét Drakenberg og varð 146 ára. Við hann sagði Friðrik konungur fjórði: — Þér hljótið að hafa verið stakur reglumaður um ævina! — Já, yðar hátign, svaraði Draken- berg, — ég hef aldrei farið ófullur f rúmið síðustu hundrað árin. Staka. Vaða flestir synclasjó, sina lesti bera. Ojt eru verstir þeir, sem þó þykjast beztir vera. Leijur Eiríksson á Raufarhöjn. Ungfrú Kristín Sigurðardóttir hefur lesið nokkrum sinnum upp í út- varpið, og nú síðast vögguvísur eftir ýmsa höfunda. Hún hefur viðfelldna rödd og töluverða æfingu í upplestri. /Vo/^rir dagsk/árliÓir. Vilhjálmur Þ. Gíslason hefur und- anfarið lesið Alþingisrímur með skýr- ingum. Er gaman að fá þessar skýr- ingar fram í dagsljósið. Sunnudaginn 14. júní verðuj' lokaerindi V. Þ. G. um þessar sögulegu og skemmtilegu rímur. Frú Vivan Jakobsson, sem les upp á sænska kvöldinu, er sænsk, en hefur dvalið hér á landi nokkur ár, gift Bene- dikt Jakobssyni fimleikakennara. Hún talar óg les íslensku vel. Setning Synodus verður útvarpað frá Dómkirkjunni 18. júní. Um kvöldið verður einnig útvarpað synoduserindi. Kvenna\völdiÓ 19. júní. Kvenstúdentafélag íslands og Kven- 350 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.