Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Síða 3
ÚTVARPSTÍÐINDI
219
koma út hálfsmánaðarlega.
Árgangurinn kostar kr. 25.00 og
greiðist fyrirfram. — Uppsögn er
bundin við áramót. — Afgreiðsla
Brávallagötu 50. Sími 5046. Heima-
sími afgreiðslu 5441. Póstbox 907.
Útgefandi: H.f. Illustandinn.
Prentað í tsafoldarprentsmiðju h.f.
Ritstj. og ábyrgðarmenn: Vilhjálm-
ur S. Vilhjálmsson, Bravallagötu 50,
sími 4903, og Þorsteinn Jósepsson,
Grettisgötu 86.
Síá/jbrdðurtnn
og fleira
UPPLÝSINGAR þær, sem Pétur
Pétursson gaf hér í síðasta hefti um
endalok þáttarins „Lög- og létt hjal“,
hljóta að hafa vakið allmikla athygli
hjá lesendum, og þá ekki sízt hjá
þeim mörgu, sem sáu mikið eftir
því, að þátturinn skyldi leggjast al-
veg niður. Það fer ekki hjá því, að
mönnum þyki það einkennileg styrfni
að neita að nota tæki, sem hægt er
að fá að láni og gerir starf þeirra,
sem eiga að vinna að því að gera
dagskrá útvarpsins betri og fjöl-
breyttari, miklu auðveldara. Upplýs-
ingar Péturs munu og hafa komið
mörgum á óvart, svo fráleit virðist
framkoma verkfræðings útvarpsins
í þessu máli. Annars má vera, að
hann hafi skýringar á reiðum hönd-.
um, sem útvarpshlustendur geti tek-
ið gildar. En verkfræðingurinn er
nú vestanhafs, og kemur ekki heim
fyrr en í júlímánuði. Munu Útvarps-
tíðindi vitanlega birta umsögn hans,
ef hún berst, því að það er bezt fyrir
alla aðila, að allt upplýsist sem fyrir
liggur í málinu.
Pétur upplýsti það og, að það voru
einstakir menn, sem áttu stálþráð-
inn, en ekki útvarpið sjálft. Nú er
það vitað, að útvarpið er ein mesta
og mikilvirkasta mennta- og fræðslu-
stofnun þjóðarinnar, að það veltir
milljónum króna, og að þess njóta
daglega nær allir landsmenn. Þegar
þetta er haft í huga, má teljast
furðulegt, að útvarpið skuli ekki eiga
það tækið, sem getur, ef rétt er á
haldið, auðveldað að miklum mun
allan rekstur dagskrárinnar, en ein-
stakir menn skuli aftur á móti hafa
getað aflað sér þess. Áður hefur ver-
ið talað um það, að staðið hafi á
gjaldeyri fyrir tækinu, en hlustend-
ur og gjaldendur til útvarpsins, geta
ekki um alla eilífð tekið þá fullyrð-
ingu til greina. I þessu efni virðist
áhorfendum, sem einhvers staðar
hljóti að vera veila. Væri vel, ef það
upplýstist í hverju hún er fólgin.
Utvarpshlustendur skrifa Utvarps-
tíðindum gagnrýni sína í „Raddir
hlustenda“, og við birtum þessa gagn
rýni næstum undantekningarlaust,
jafnvel þó að ýmislegt komi fram í
henni, sem við séum ekki sammála,
enda er aðalatriðið, að fram komi
álit hlustenda um hin ýmsu efni. Þeir
skrifa og skrifstofu útvarpsráðsins
mörg bréf, og við skulum gera ráð
fyrir því, að þau bréf séu lesin. En
þrátt fyrir öll þessi skrif, virðist út-
varpið ekki vera undir nógu sterkri