Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Blaðsíða 17

Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Blaðsíða 17
ÚTVARPSTÍÐINDI 233 LESTUR STURLUNGU. Þorsteinn Magnússon skrifar: „Þá er lestri Sturlungu lokið, og eru það mikil þáttamót. Helga Hjörvar fatast aldrei frásagnarlistin. Það var nú samt svo á tímabili, að mér virtist að varla mætti tæpara standa með listina þá, við hans eigin athugasenuiir. Mér virtist hann í sumum þáttum nokkuð hlynntur aðal- illræðismönnunum, t. d. fannst mér hann leggja þyngri dóm á þá sem flæmdu Gissur í sýruna en þá, sem drápu Snorra Sturluson. Iíins fannst mér hann hafa tiihneigingu lil að niðra Þorvarði l>ór- arinssyni en frekar harma örlög Þor- gilsar Skarða. Að lokum gaf hann þó lítilsháttar afslátt á því, en leit þó út fyrir, að þar hefði hann orðið fyrir utan að komandi áhrifum. Aftur á móti virt- ist hann kaldur fyrir harmsögu Þórðar Kakala. Að lokum gat hann þess, að heimildir Sturlungu gætu verið vafasam- ar, þar sem hún væri skrifuð af Sturl- ungum. En ég sé ckki, áð það ætti að geta rýrt gildi sögunnar, þar sem flest deilumálin voru þeirra í milli og sára- fáir aðrir koma við söguna. Þórður, fað- ir Hvamms-Sturlu, var ættfaðir eða í tengdum við þá næstum alla. RÍKT i MANNEÐLINU. Það mætti gjarnan vera íhugunarefni hvað það er ríkt í manneðlinu, eða krón- iskur sjúkdómur, að líta glæpamenn hýru auga, en láta brýr síga yfir þeim, sem 1'y.rir barðinu verða. Þessi sterka hvöt, að fylgja þeim stóra skilyrðislaust, verð- ur að líkindum dauðamein mannkynsins. Nú er það æðsti leikur Islendinga, að hálfslasa hvern annan fyrir þúsundum áhorfenda, en þeir lýsa brjálæðiskenndri hrifningu með ópum og óhljóðum, sem svo á að verka sem stríðsöl og vitanlega á þann sterkari. Þá er það einn vinsæl- asti sjónleikur þjóðarinnar, að ausa fagra, hreina og sakiausa hefðarmey svívirðingum, en sápuþvo eitt hið mesta skitmcnni sögunnar, og gera jafnvcl bisk- upstignina fyrirlitlega móls við slíkan riddara. Þá gerir Friðrik Á. Brekkan tilraun til þess að varpa æ'vintýraljóma á óhappamanninn og morðingjann Þjóst- ólf, á kostnað Hallgerðar, sem hafði þó fengið sinn skerf af slíku áður. ()g loks dáir H. K. Laxness faguryrði Berg- þóru, þegar hún gerir upp á milli öld- ungsins Njáls og smásveinsins Þórðar. Njáli hafði hún heitið ævilangri fylgd og vináttu, en I’órði móðurlegri varðveizlu, og gat efnt hvorttveggja, en virðist þafa gleymt Þórði. Hún gat látið bera hann nauðugan út til móður sinnar, vitanlega grét barnið, úr því sem komið var, hvað sem við hann var gert. Þessi faguryrði Bergþóru hefðu notið sín betur þegar engu þurfti að fórna og engar þungar sakir á fallnar. en þá sésl ekki, að neitt slíkt væri við haft, síður en svo. Njáll hafði hjákonu, og Bergþóra tók þannig á móti Hallgerði, að líkara var eljuríg en skörungsskap, enda er það sjaldgæft, að slíkum húsfreyjum, sem Bergþóru er lýst, geðjist mjög vel að tíðum gestum eiginmanna sinna, ef þær njóta aldrei góðs af þeim sjálfar. Það skyldi nú vera, að Skarphéðinn hafi ekki verið líkari Gunnari á Hlíðarenda en föður sínum Njáli? Það væri sannarlega verkefni fyrir þá, sem vilja nota Njálu í þarfir vísindanna, að spreyta sig á því að endurfeðra Skarphéðinn. Hvar er nú heimspeking- urinn, sem ræddi mest um höfuðkúpu Karls tólfta forðum tíð?!!! — Þessi útúr- dúr er víst orðinn of stór í hlutfalli við aðalefnið, en það er nú alltaf svo, að sín- um uugurn lítur hver á silfrið. Ég get aldrei fallizt á þetta ofbeldismannadek- ur, og sizt í útvarpinu. Hefnd er nokkuð annars eðlis, og er því sárt til þess að vita, að þeir, sem friðinn semja, fái þyngri dóm en hinir. En þess gætir víða meðal hinna góðu manna. Hvers er þá

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.