Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Blaðsíða 6

Útvarpstíðindi - 02.06.1947, Blaðsíða 6
222 ÚTVARPSTÍÐINDI Hins vegar hef ég venjulega tíma til að renna augunum yfir tilkynn- ingarnar og kynna mér þær áður en ég les þær. Þegar allt er með felldu, og ég má lesa þær með þeim hraða, sem mér er eiginlegur, þá les ég 100 orð á mínútunni, en tilkynningatím- inn á að vera 15 mínútur. Stundum eru tilkynningarnar svo miklar, að maður kemst í tímaþrot. Og þegar þannig stendur á, er ég smeyk um, að lesturinn kunni kannske að verða dálítið skrítinn, þegar maður sér að klukkan er að verða 8 og fréttir eiga að byrja. Sérstaklega var þetta erfitt fyrir kosningarnar í fyrra; þá voru til- kynningarnar svo miklar. En það er höfuð-synd, að geta ekki lokið við að lesa allar tilkynningar, sem fyrir liggja hverju sinni. Stöku sinnum kemur líka fyrir, að þingfréttirnar „nappa“ svolitlu af tilkynningatímanum, þegar þær eru langar. En það gerist sjaldan, nema þegar tilkynningarnar eru aftur á móti það litlar, að þingfréttirnar mega ganga eitthvað út yfir tilkynn- ingatímann". — Hafið þér ekki stundum lesið fréttir í útvarpið? „Jú, ég las fréttir fyrir Jón Múla í fyrra sumar meðan hann var í sum- arleyfinu, — og ég verð að segja það, að mér féll það þularstarf miklu bet- ur. Það er miklu lífrænna að lesa fréttir en tilkynningar. Sennilega er tilkynningalesturinn leiðinlegasta þularstarfið við útvarpið. Annars eru upplestrar í dagskrá það skemmtilegasta, sem ég veit við útvarpið. Ég hef nokkrum sinnum lesið kvæði og annað efni, bæði á Happdrœtti Háskóla íslands Dregið verður í 6. flokki 10. júní. — Dregnir verða út 450 vinningar og tveir aukavinning- ar, að upphæð kr. 150.600,00. Hæsti vinningurinn er 15.000 krónur. Dragið ekki að endurnýja. Happadrætti Háskóla íslands

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.