Bankablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 28

Bankablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 28
BRIDGE-KENNSLA. Stjórn Félags starfsmanna Landsbankans tók upp þá nýbreytni á liðnum vetri að gera tilraun með kennslu í Bridge. Fór þessi kennsla fram í húsakynnum starfs- mannafélagsins og gaf góða raun. Nú í haust var kennslan tekin upp á ný og ann- ast Þorsteinn Þorsteinsson kennsluna. AÐALFUNDUR. Aðalfundur Félags starfsmanna Lands- banka íslands var haldinn mánudaginn 17. nóvember s. I. Formaður félagsins, Jón Leós, setti fundinn og tilnefndi Ein- varð Flallvarðsson, sem fundarstjóra og Bjarna Magnússon, fundarritara. Því næst flutti hann starfskýrslu stjórnarinnar á starfsárinu og rakti gang mála þeirra, sem stjórnin hafði haft til meðferðar. En þau voru flest hin sömu og áður og hafði ekki enn tekizt að leysa þau, en þau eru m. a.: Launamál, sumarleyfin, vinnujakkamálið, og sitthvað fleira. Þá gaf gjaldkeri félagsins, Þórunn Aðils, skýrslu um fjárhag félagsins og eignir .Þá flutti Jón Grímsson skýrslu og reikninga Náms og Kynnisfararsjóðs. Þá fór fram stjórnarkosning og hlutu þessir kosningu: Einvarður Hallvarðsson formaður, Ása Guðmundsdóttir og Bjarni Magnússon (er neitaði að taka við kosn- ingu) meðstjórnendur. Varastjórn: Sigurð- ur Jóhannesson og Sverrir Elíasson. Endur- skoðendur: Guðmundur Sigurjónsson og Sigurbjörn Sigtryggsson. Stjórn Náms- og kynnisfararsjóðs var endurkjörin. Launamálanefndin gerði nokkra grein fyrir störfum sínum, og hafði formaður nefndarinnar: Torfi Ólafsson, orð fyrir nefndinni. Þá kom fram á fundinum svo- felld tillaga: Aðalfundur Félags starfsmanna Lands- banka íslands, haldinn mánudaginn 17. nóv. 1952, samþykkir að láta fara fram í félaginu leynilega allsherjar atkvæða- greiðslu um heimild handa stjórn F. S. I.. í., eða Samb. íslenzkra bankamanna, að sækja urn upptöku í Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Samkvæmt tillögu formanns, Einvarðar Hallvarðssonar, var fundi frestað, Jrar sem hann taldi að ekki myndi verða hægt að ljúka afgreiðslu Jreirra mála er fyrir lægju. Var samþ. með samhljóða atkvæðum að fresta aðalfundarstörfum og fundi ]r\í frestað. Var framhaldsaðalfundurinn haldinn miðvikudaginn 10. des. s. 1. og aðalfundar- störfum lokið. Umræður urðu allmiklar um aðild bankamanna að Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, og var umræðum enn frestað. Opínberunarbóla'n 6. des. Jóhannes Jensson, Landsbankan- um og Steinunn Jónasdóttir. Elín Sæbjörnsdóttir, Útvegsbankanum og Guðmundur Arnason. Bankablaðið árnar hjónaefnunum heilla. Hjúsh.apar~oblíéo Björn Tryggvason, Landsbankanum og Kristjana Bjarnadóttir. Ólafur Frímannsson, Útvegsbankanum og Guðlaug Runólfsdóttir. Helga Gröndal, Útvegsbankanum og Sveinn Björnsson viðskiptafræðingur. Anna S. Gunnarsdóttir, Útvegsbankanum og Magnús Pálmason leiktjaldamálari. Kristjana S. Kristjánsdóttir, Útvegsbank- anum og Þorleifur Þórðarson forstjóri. Ólafía Sigurðardóttir, Útvegsbankanum og Jón Jóhannesson stud. med. Bankablaðið árnar brúðhjónunum allra heilla. 38 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.