Bankablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 29

Bankablaðið - 01.12.1952, Blaðsíða 29
Merkir afmælisdagar í Útvegsbankanum SEXTUGUR: Þórarinn Nielsen bankafulltrúi í Útvegsbanka íslands h. f. varð 60 ára þann 28. des. síðastliðinn. Hann hóf störf í íslandsbanka þann 1. júlí 1914 og er því elzti starfsmaður bankans. Nielsen liefur tekið mikinn og góðan þátt í störfum starfsmannafélagsins og oft átt sæti í stjórn þess m. a. verið formaður félagsins. Hafa þau störf og öll störf hans í bankanum borið óræk vitni um vand- virkni, nákvæmni og trúmennsku í stóru og smáu. Nielsen er sannur og góður félagi og skipar með sæmd þann heiðursess að vera starfsaldursforseti bankans. SEXTUGUR: Einar £. Kvaran aðalbókari Útvegsbankans varð 60 ára þann 9. ágúst síðastl. Kvaran gekk í þjón- ustu íslandsbanka 1. febr. 1918 og er því skammt undan að hann eigi 55 ára starfs- afmæli. Kvaran var fyrsti formaður starfs- mannafélags Útvegsbankans og fulltrúi fé- lagsins í stjórn Eftirlaunasjóðs starfsmanna frá upphafi. Hann er mikilsmetinn utan bankans og innan, vinsæll og virtur meðel starfsfélaga og þjóðkunnur heiðursmaður. SEXTUG: Anna Steiánsclóttir bankaritari varð 60 ára þann 20. sept. síð- astliðinn. Hún réðist til starfa í Útvegs- banka íslands 1. okt. 1934, en hafði frá því að hún lauk prófi frá Verzlunarskóla ís- lands 1913 starfað að verzlunar og skrif- stofustörfum. Annast hún í bankanum vél- ritun og skrásetningu allra veðskuldabréfa og leysir það starf af hendi samviskusam- lega og með snyrtibrag. FIMMTUG: Marérét Björnsdóttir bankaritari í Útvegsbanka íslands h. f. varð fimmtug 25. maí síðastliðinn. Hún gekk í þjónustu íslandsbanka 2. jan. 1920 og vann í bankanum óslitið til 30. sept. 1934. Hætti hún þá störfum utan heimilis þar til liún hóf aftur störf í Útvegsbankan- um 12. febr. 1940. Margrét starfar í bókhaldsdeild bankans og gengur að starfa sínum kappsamlega og af miklum dugnaði, og nýtur hún vinsælda samstarfsmanna sinna. FIMMTUGUR: Henrih Thorarensen aðalgjaldkeri Útvegsbankans varð fimm- tugur þann 13. okt. síðastl. Hann gekk í þjónustu íslandsbanka 1. ágúst 1923. Starf- aði um nokkur ár í hlaupareikningsdeild bankans, en varð síðar aðstoðargjaldkeri þar til liann tók við aðalgjaldkerastörfum 1. jan. 1944. Henrik átti um skeið sæti í stjórn starfsmannafélagsins og hefur ávallt BANKABLAÐIÐ 39

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.