Bankablaðið - 01.11.1978, Side 5
kongress
REYKJAVIK
28.8-1.9 1978
ÞING NBIIÁ ÍSLANDI
Eins og fram hefur komið í fréttum, var þing
Norræna bankamannasambandsins, NBU,
haldið á íslandi dagana 28. ágúst til 1. sept-
ember. Var þetta í fyrsta sinn sem þing NBU
er haldið hér á landi.
Segja má að þing þetta hafi íyrst og fremst
verið vinnuþing. Þegar venjulegum þingstörf-
um var lokið var tekið til við þá málaflokka
sem fyrir lágu og mest unnið í starfshópum.
Að loknu starfinu í starfshópunum voru hug-
myndir frá þeim samræmdar og síðan kynnt-
ar og ræddar í einni málstofu. Þannig var einn
málaflokkur tekinn á eftir öðrum og gafst þetta
vinnufyrirkomulag mjög vel, enda voru á þing-
inu samþykktar efnismiklar ályktanir og stefnu-
yfirlýsingar í hinum ýmsu málum.
Þingið var haldið á Hótel Loftleiðum, og
tókst íramkvæmd þess og skipulag mjög vel
og var starfsmönnum Hótels Loftleiða í alla
staði til mikils sóma.
Þingfulltrúar voru rúmlega 70 frá öllum
Norðurlöndunum.
Ný lög fyrir NBU
Samþykkt voru ný lög fyrir NBU. Eru nýju
lögin færð í nútímahorf, en þau gömlu voru
að nokkru leyti orðin úrelt.
Nýju lögin eru mun ýtarlegri en þau gömlu
voru, án þess þó að þau bindi hendur stjórnar
sambandsins á hverjum tíma um of. Af breyt-
ingum sem gerðar voru, má nefna, að júng
NBU, sem fer með æðstu völd í málefnum
sambandsins, skal haldið þriðja hvert ár í stað
annað hvert ár samkv. gömlu lögunum. Þetta
tekur þó ekki gildi lyrr en að tveimur árum
Birte Roll Holm, nýkjörinn forseti NBV og form. Danska
banltamannasambandsins.
BANKABLAÐIÐ 5