Bankablaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 9
Stefnuskrá
NBU um vinnnutfma
kongress
REYKJAVIK
28.8-1.9 1978
B ANKM ANN AUNONEM
Almennt markmið
Það er meginhagsmunamál bankamanna að
almenn stytting vinnutímans verði fram-
kvæmd til þess m. a. að létta af bankastarfs-
mönnum því álagi, sem nútíma bankastörf
hafa í för með sér. Stytting vinnutímans hefur
einnig í för með sér betri möguleika á að sam-
ræma starfið eðlilegu fjölskyldulífi, námi, þátt-
töku í málum er varða hagsmuni launþega og
stjórnmálum o. s. frv.
Fyrir utan lengd vinnutímans er staðsetning
vinnutímans einnig mikilvægt atriði fyrir
bankamenn. Vinna verður gegn allri viðleitni
til að færa vinnutímann til seinni hluta dags-
ins, að undantekinni vinnu á rafreiknideild-
um bankanna, og sá vinnutími má ekki ná til
nema mjög lítils lióps bankamanna.
Hlutfallið á milli venjulegs vinnutíma og
afgreiðslutíma á að vera þannig, að nægur
tími vinnist til þess að sinna innri störfum
bankans án óeðlilegs álags. Arangur á þessu
sviði næst aðeins með því að tryggja aðildar-
félögunum rétt til þess að hafa bein áhrif á
lengd afgreiðslutíma, fjölda starfsmanna og
vinnuskipulag.
Stefnuskrá
Á grundvelli þessara almennu markmiða
hvetur NBU aðildarsamböndin til þess að
taka upp eftirfarandi í stefnuskrár sínar:
Að vikulegur vinnutími verði styttur í áföng-
um, í fyrstu í 35 stundir og síðar í 30
stundir.
Að vikulegum vinnutíma verði skipt jafnt nið-
ur frá mánudegi til föstudags. Frávik frá
þessari reglu verði í samræmi við samninga
þar um á milli aðila.
Að öllum tillögum um tilfærslu á vinnutíma
til síðari hluta dags verði hafnað. Félög,
sem samið liafa um vinnutíma eftir kl. 17,
eru livött til að vinna að því að lok vinnu-
tímans verði sem næst kl. 17.
Að rammasamningur verði gerður við bank-
ana um afgreiðslutíma til þess að samræma
afgreiðslutíma allra bankanna. Slíkum
rammasamningi á að fylgja eftir með sér-
samningum starfsmannafélaga og einstakra
banka á viðkomandi svæði.
Að takmarka Jrá yfirvinnu sem nú er til staðar
með því m. a. að auka áhrif stéttarfélagsins
á vinnuskipulagið og fjölda starfsmanna.
Komi til yfirvinnu fram yfir ákveðin tak-
mörk, ber viðkomandi banka að fá sam-
þykki stéttarfélags. Einstaklingar skulu
eiga rétt á að hafna tilskipaðri yfirvinnu,
ef þeir geta borið við gildri ástæðu.
Að vaktavinna á tölvudeildum bankanna verði
takmörkuð við algert lágmark. Þetta er
mögulegt í framkvæmd með kröfum um
breytilegt vaktaálag, með tilliti til Jaess
tíma sólarhringsins, sem vaktavinnan fer
fram á, styttri vinnutíma í vaktavinnu,
auka orlofsdaga o. fl.
BANKABLAÐIÐ 9