Bankablaðið - 01.11.1978, Qupperneq 10

Bankablaðið - 01.11.1978, Qupperneq 10
Ips ES kongress REYKJAVIK 28.8-1.9 1978 Stefnuskrá NBU um atvinnulýöræöi Aimennt markmið Með atvinnulýðræði á NBU við rétt starfs- manna til þess að taka þátt í ákvörðun bank- anna í öllum þeim málum, sem skipta starfs- menn miklu. Þegar atvinnulýðræði hefur verið komið á liafa starfsmenn jafnan rétt til þess að hafa full afskipti af þeim málum sem hafa áhrif á vinnu og vinnuaðstöðu, með því að vinna að málum, undirbúa ákvarðanatöku, taka þátt í ákvörðunum og að framfylgja þeim. Með rétti til meðákvarðana næst meira rétt- læti starfsmönnum til handa, meira öryggi, betri vinnuskilyrði og meiri vinnugleði. Með þátttöku sinni og reynslu geta starfsmenn stuðlað að betri rekstri bankans. Atvinnulýðræði á að koma á með lagasetn- ingu og samningum milli aðila bankastarfsem- innar. Stefnt skal að því að koma á atvinnulýðræði á öllum sviðum bankastarfseminnar. Þetta get- ur orðið til þess að þróa beri annað skipulag en það, sem nú tíðkast. Breytingar á vinnu- skipidagi, kerfi og verkstjórn ber að fram- kvæma af fullri virðingu fyrir einstaklingnum, með fullu tilliti til ábyrgðar, og einnig ber að tryggja að kröfum um afköst sé fullnægt. Stefnuskrá A grundvelli þessara markmiða þá hvetur NBU aðildarsambönd sín til þess að setja fram eftirfarandi í stefnuskrám sínum: Að raunhæfu atvinnulýðræði verði kornið á með lagasetningum og samningum milli aðila bankastarfseminnar. Að atvinnulýðræði, þar á meðal meðákvörð- unarréttur, nái til allra þeirra mála er varða hagsmuni starfsmanna. Að áhrifavald starfsmanna verði tryggt á öll- urn sviðum bankastarfseminnar. Að fulltrúum starfsmanna verði veitt eins mikil jafnréttisaðstaða og framast er unnt í ákvarðananefndum og starfshópum. Að meðákvörðunarréttur er varðar heildar- stefnu bankans í málefnum starfsmanna og á sviði tækniþróunar, hafi forgang. Að meðákvörðunarráttur verði tryggður á sviði starfsmannaáætlana, nýráðninga, mála er varða ráðningar og uppsagnir, endurhæfingu, stöðuhækkanir og mennt- un. Að á sviði tækniþróunar verði náð meðákvörð- unarrétti í þeim málum er varða kerfisþró- un, gerð áætlana, framkvæmdaeftirlit og stjórnskipulag, svo og mál er varða tölvur og annað tengt vinnuhagræðingu. 10 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.