Bankablaðið - 01.11.1978, Side 22
Hvað líður nýrri
vinnuverndarlöggjöf?
Sfli liefur ritað félagsmálaráðherra
bréf þar sem spurst er fyrir um, hvað
líði setningu nýrrar löggjafar um
vinnuumhverfi á íslandi.
Á sl. ári samþykkti norræna ráð-
herranefndin, drög að samnorrænni
vinnuumhverfislöggjöf. í samræmi við
þessa samþykkt hafa nú verið sett ný
lög þar um í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð, en hins vegar ekki á íslandi.
Á þingi NBU sem haldið var á ís-
landi í liaust var samþykkt stuðnings-
yfirlýsing við Jrá ósk SÍB, að slík lög-
gjöf verði einnig sett hér. Ekkert svar
hefur borist frá félagsmálaráðherra.
20 ára afmæli Starfsmanna-
félags Verslunarbankans
Hinn 31.október sl. voru liðin 20 ár
frá stofnun Stafrsmannafélags Versl-
unarbankans. Afmælisins var minnst
með veglegu hófi og þess verður nán-
ar getið í næsta Bankablaði. SÍB sendir
Starfsmannaf. Verslunarbankans bestti
hamingjuóskir i tilefni afmælisins.
NBU styrkur
Sl. sumar auglýsti norræna banka-
mannasambandið eftir umsóknum um
styrk til kynnisferðar til Bandaríkj-
anna í þeim tilgangi að kynnast tækn-
þróun í bandarískum bönkum, sér-
staklega með tilliti til menntunar
starfsfólks og félagslegra áhrifa tækni-
Jtróunarinnar.
Alls bárust 44 umsóknir, Jiar af
þrjár frá íslandi. Þeir sem styrkinn
hlutu voru Ulf Hjertberg SE-banken,
Stokkhólmi og Rolf Halvorsen Kredit-
kassen, Oslo.
SÍB fær engan fulltrúa í
vísitölunefnd
Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til
endurskoðunar fyrirkomulags vísitöl-
unnar. Öll heildarsamtök launþega
eiga þar fulltrúa, að SÍB undanskildu.
Fulltrúar SÍB gengu á fund forsæt-
isráðhera, Ólafs Jóhannessonar, Jiann
26. september sl. og afhentu svohljóð-
aiuli bréf frá sambandinu:
„Hr. forsætisráðherra, Ólafur Jóhann-
esson.
Á fundi rfkisstjórnarinnar hinn 19.
Jt. m. var skipuð 10 rnanna nefnd til
Jress að endurskoða núverandi vísi-
tölukerfi samkvæmt gildandi kjara-
samningum.
í nefnd þcssari eiga m. a. sæti tveir
fulltrúar frá Alþýðusambandi íslands,
einn fulltrúi frá Bandalagi starfs-
manna rfkis og bæja, einn frá Banda-
lagi háskólamanna svo og einn full-
trúi frá Farmanna- og fiskimannasam-
bandi íslands. Sambandi íslenskra
bankamanna, sem eru heildarsamtök
með sjálfstæðan samningsrétt á sama
liátt og þau samtök sem að ofan
greinir, eiga hins vegar engan full-
trúa í nefndinni.
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að
útiloka ein heildarsamtök launþega,
Samband ísl. bankamanna, frá þátt-
töku í nefndinni, er óskiljanleg.
Ekki verður annað séð, en að nefnd
Jressari sé ætlað það hlutverk að
freista þess að ná samkomulagi um
nýtt vísitölukerfi, sem gildi fyrir alla
launþcga í landinu, þar á meðal fé-
lagsmenn Sambands ísl. bankamanna.
Samtök bankamanna eru liins vegar
útilokuð frá Jtví að hafa áhrif á gang
mála og niðurstöðu nefndarinnar.
Fulltrúar Sambands ísl. bankamanna
voru boðaðir á fund með viðskipta-
ráðherra, fjármálaráðherra og sjávar-
útvegsráðherra þriðjudaginn 5. þ. m.,
J)ar sem drög að bráðabirgðalögum
um kjaramál voru kynnt. Ekki var þá
um eiginleg samráð við samtök laun-
þcga að ræða, að minnsta kosti ekki
hvað varðar samtök bankamanna.
Lýstu nefndir ráðherrar yfir vilja sín-
um, að framvegis yrðu höfð raunhæf
samráð við samtök launjtega varðandi
aðgerðir í kjaramálum, þar á meðal
samtök bankamanna.
hrátt fyrir yfirlýsingu viðskiptaráð-
lierra hinn 22. þ. m. um að skipan
nefndarinnar verði ekki breytt, krefst
stjórn S í B þess, að fá fulltrúa i
greinda nefnd á sama hátt og önnur
heildarsamtök launjrega í landinu.
Verði ekki fallist á þessa sjálfsögðu
kröfu stjórnar Sambands ísl. banka-
manna verður að líta á vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar í þessu máli sem
lítilsvirðingu við stéttarsamtök banka-
manna.
Ennfremur lýsir stjórn Sambands
ísl. bankamanna yfir því, að verði
ekki breyting á stöðu ríkisstjórnarinn-
ar getur það leitt til Jtess, að endur-
22 BANKABLAÐIÐ