Jazzblaðið - 01.04.1948, Blaðsíða 5
Hallur Símonarson:
ÍSLENZKIR H LJÓÐFÆRALEIKARAR
Sueinn Ólafsson
Maðurinn, sem ég- ætla að kynna fyrir
ykkur núna, á einna mestan þátt í því að
við Islendingar erum orðnir óháðir erlend-
um hljóðfæraleikurum í dansmúsik okkar,
því hann sannaði með afburða leik sínum,
uð íslendingar geta lært að leika á hljóð-
feri eins vel og útlendingar og breytti þar
með því almenningsáliti, sem ríkti hér fyrir
tíu til fimmtán árum.
Sveinn Ólafsson er vestfirðingur að ætt,
fæddur á Bíldudal 6. nóvember 1913. Hann
komst, eins og flestir aðrir drengir, sem
alast upp í sjávarþorpum, fljótt í kynni
við sjóinn því hann byrjaði kornungur að
fara til sjós á sumrin og var m. a. þrjú
sumur á skútu. Sjórinn varð hans líf og
yndi og hann var ekki hár í loftinu, þegar
það var orðin „óhagganleg“ ákvörðun hans
að verða sjómaður, og þá náttúrlega skip-
stjóri. En aðstæðurnar breyttust þegar
hann fluttist til Reykjavíkur 192G, og minn-
ingin um sjóferðirnar smá fyrnist fyrir
þeim áhrifum, sem hann varð fyrir þegar
hann fékk áhuga fyrir tónlistinni og byrj-
aði að læra að leika á hljóðfæri, enda kom
þá fljótt í ljós hin mikla tónlistargáfa, er
hann hafði hlotið í vöggugjöf. Hann eign-
aðist fiðlu skömmu eftir að hann kom til
Reykjavíkur, mesta kostagrip, er kostaði
19 krónur og fiðluboginn kr. 7,50. Fyrsti
kennarinn hans var Þórarinn Guðmunds-
son, hinn góðkunni fiðluleikari og hljóm-
sveitarstjóri. En árið 1931, þegar Sveinn
var 18 ára, innritaðist hann í tónlistaskól-
ann og lauk þar námi í fiðluleik 1935, síð-
ar gerðist hann svo kennari við skólann.
Arið 1934 eignaðist Sveinn saxafón og
byrjaði strax að læra á hann hjá Jack
Quinet, sem var þá hljómsveitarstjóri á
Hótel Borg.
Árið 1933 byrjaði Sveinn að leika dans-
músik opinberlega og þá fyrst á Hótel
Birninum í Hafnarfirði, ásamt Árna
Björnssyni (fiðla og píanó). Árið eftir
ræðst hann til Aage Lorange í Iðnó, og-
var með honum í tvö ár, en hljóðfæraskip-
un hljómsveitarinnar var þessi: Aage
píanó, Sveinn tenór-sax, Vilhjálmur Guð-
jónsson altó-sax, Bjarni Guðjónsson banjó,
og danskur maður að nafni Kragh á ti'omm-
ur. 1936 byrjaði hann svo að leika á Hótel
Borg, ásamt Bjarna Böðvarssyni (kontra-
bassa) og fimm Englendingum, en hljóm-
sveitarstjórinn hét Rosburry. Á eftirmið-
dögum lék hann létta klassiska músik með
fjórum Ungverjum, spiluðu þeir í ungversk-
um þjóðbúningi, sem Sveinn kunni afar illa
við sig í. Á árunum 1937 og 38 lék hann
um átta mánaða skeið í hljómsveit Carls
Billich að Hótel ísland, annar íslendingur
lék í hljómsveitinni, Þorvaldur Steingríms-
son, hinir voru Þjóðverjar.
Um vorið 1938 brá Sveinn sér til Dan-
merkur og verður síðar vikið að því. Þeg-
ar hann kom aftur, fór hann að leika á
Hótel Borg, og hefur hann leikið þar síðan.
1 Borgarhljómsveitinni 1939 voru eftirtald-
ir menn. Hljómsveitarstjórinn Jack Quinet,
Sveinn Ólafsson, Vilhjálmur Guðjónsson,
(fazzUakt 5