Jazzblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 7
ERROLL GARAIER
<fc\^VSCrC
VINSÆLASTI jazzleikari síðai’i ára
er áreiðanlega píanóleikarinn Erroll
Garner. Frá því að hann tók fyrst að
vekja athygli í Slam Stewart tríóinu
fyrir tæpum sjö árum hefur honum
mikið farið fram og er nú svo komið, að
hann er vinsælasti einleiks jazz píanó-
leikari Bandaríkjanna og hefur reyndar
um leið vakið heimsathygli. Greinar
hafa birzt um hann í flestum löndum
heims, ekki aðeins í músikblöðum, held-
ur og frægum tímaritum og dagblöðum
eins og hinu víðlesna vikublaði Times og
hér heima í hinu umdeilda og jafnframt
útbreidda Mánudagsblaði (sú grein var
reyndar þýdd úr ei'lendu blaði).
Garner hefur lítið verið kynntur jazz-
áhugamönnum hér utan lítillar greinar
í þessu blaði fyrir alllöngu og plötur
hafa fáar borizt hingað,
sennilega ekki nema ein,
þ. e. a. s. „Honeysuckle
rose“ og nú alveg nýlega
nokkrar vinsælustu plöt-
ur hans. — Honeysuckle
rose, leikið af Garner er
ein þekktasta plata hans.
Leikur hans þar er óvið-
jafnanlega tekniskur —
en um leið mjög einfaldur.
Garner er nefnilega ekki Be-bop jazz-
leikari, þó að hann tilheyri síðari tíma
jazzleikurum. Hann er eins konar swing-
leikari, sem leikur af mikilli tækni,
reyndar með nokkuð af nútíma hug-
myndum — en, og hér er það sem skilur
hann frá öðrum nýrri píanóleikurum —
hugmyndir hans eru allar „oi’ginal“ —
sjálfstæðar.
Hann hefur leikið inn á fleiri plötur
undanfarin þrjú eða fjögur ár en allir
jazzpíanóleikarar til samans. Og ekki
hefur hann leikið inn hjá sama plötu-
fyrirtækinu — hann hefur leikið inn
hjá tæplega fjörutíu plötufyrirtækjum,
svo að erfitt hefur reynzt fyrir plötu-
safnara að fylgjast með öllu, sem hann
hefur gert. Fyi’ir nokkru gerði hann
þó samning við Columbia og mun
^azzífcfíií 7