Jazzblaðið - 01.03.1952, Qupperneq 13
GUNNAR ORMSLEV
KOSINN VINSÆLASTI JAZZLEIKARI ÍSLANDS 1951
Þrátt fyrir breytingu á fyrirkomulagi
kosninganna að þessu sinni frá því, sem
áður hefur verið, hefur þátttakan engu
að síður verið svipuð og áður. Flestir
þeirra, er rétt höfðu
til kosningaseðilsins
tóku þátt í kosning-
unum. Urslitin urðu
sem hér segir:
1. Gunnar Orm-
slev, hlaut 31%
yreiddra atkvæða.
2. Jón Sigurðs-
son (bassi), hlaut
19% greiddra at-
lcvæða.
3. Björn R. Ein-
arsson hlaut 18%
greiddra atlcvæða.
b. Árni Elfar,
hlaut 17% greiöAra
atkvæða.
Aðrir hlutu sam-
tals 15% greiddra
atkvæða, en enginn
þeirra nálgaðist þá
fjóra, sem fremstir
urðu. Þeir eru í sér-
flokki.
Það, að Gunnar
Oi'mslev varð fremstur, kemur fáum á
óvart, er eitthvað hafa fylgzt með leik
Gunnars undanfarið. Ilann er tvímæla-
laust bezti jazzleikarinn hér á landi og
sem betur fer hafa jazzáhugamenn látið
það fara saman að kjósa þann bezta,
hinn vinsælasta. En eins og kunnugt er,
fer það ekki alltaf saman. — Þeir Jón,
Björn og Árni eru nokkuð svipaðir að
atkvæðamagni eins og sjá má. Allt eru
þetta fyrirtaks jazzleikarar og má varla
á milli sjá hvort
einn er betri en ann-
ar. Jón er þó aðeins
á undan, sem hann
getur að líkindum
þakkað dugnaði sín-
um að koma eins oft
fram og hann gerir
a jam-sessionum og
annars staðar, þar
sem eitthvað er á
seiði viðvíkjandi
jazzinum. Hafi hann
kæra þökk og að-
dáun fyrir.
Svo að aftur sé
snúið að sigurveg-
aranum í þessum
kosningum, Gunnari
Ormslev, þá hefur
verið verulega gam-
an að fylgjast með
þeim breytingum, er
hafa orðið á leik
hans frá því að Lee
Konitz lék hér í
byrjun desember. — Gunnar hefur eng-
an veginn stælt Konitz, en hann hefur
reynt að setja sig inn í stíl hans og ann-
ara „moderne“ saxófónleikara og hefur
still Gunnars breytzt til stórra muna.
Með sama áframhaldi mun Gunnar von
bráðar verða einn hinna „stóru“.
flazzlUií 13