Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Qupperneq 2

Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Qupperneq 2
Tímarit Tónli starf élagsins í viðunanlegra horf og freista að búa betur að íslenzkum tónlistamönnum en verið hefir. Það er óviðunandi menn- ingarástand, að listamennirnir verði að flýja sitt eigið land, einmitt þegar þeir hafa aflað sér menntunar til þess að geta flutt þjóðinni óbjagaðan boðskap hinnar æðstu listar. Þótt ótrúlegt sé, þá á heilbrigð og fullkomin list víðast erfitt uppdráttar og þá er varla við því að búast, að það reynist létt að hafa fjólbreytt tónlistalíf i okkar litla bæ. Til þess að forða mestu andans mönnum stórþjóðanna frá því, að verða að krjúpa að fótskör auglýsingavaldsins til þess að afla sér daglegs brauðs, og koma í veg fyrir að söngjeikahús og hljómleikasalir verði gerð að kvikmynda- húsum eða spila- og danssölum, hafa áhugamenn víða hlaupið undir baggann. Við óbreyttu liðsmennirnir, áheyr- endurnir, verðum að láta okkur skiljast, að við eigum að ráða listamennina til þess að leika eða syngja fyrir okkur, en þeir eiga ekki að þurfa að auglýsa eftir áheyrendum. Þegar Tónlistarfélagið sendi út síðastliðið sumar tilmæli sín um stuðning tónlistarvina bæjarins, var því svo vel tekið að húsrúm það, sem félagið átti kost á, varð full- skipað styrktarmönnum þegar á fyrsta hljómleik og fyrir annan hljómleik voru komnir 50—60 á biðlista, sem verða látnir sitja fyrir, er nýtt starfsár hefst, í stað þeirra, sem falla úr vegna fjarveru úr bænum, eða af öðrum orsökum. Því miður reyndust styrkirnir ekki nægilegir til þess að bera allan kostnað við hljómleikana, og hefir félagið því enn farið fram á örlítil viðbótarframlög frá styrktar- mönnum sínum. Félagið hefir ráðið hingað nýjan stjórnanda að hljóm- sveitinni, dr. Victor von Urbantschitsch, sem er þaulvanur hljómsveitarstjóri og hefir lengi stjórnað 60 manna kór í Austurríki. Mun hann vinna að því þegar í byrjun þessa starfsárs, að æfa blandaðan kór til þess að flytja kórverk með hljómsveitinni. Má án efa vænta mikils af starfi þessa gagnmenntaða og fjölhæfa listamanns. R. J. 50

x

Tímarit Tónlistarfélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Tónlistarfélagsins
https://timarit.is/publication/723

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.