Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Blaðsíða 3
Timarit Tónlistarf élagsins
Námskeið í blokkflautuleik
Á blokkflautunámskeið'um þeim, sem ráðgert er að halda
á nýbyrjuðu skólaári, í sambandi við Tónlistaskólann,
verður til að byrja með ekki um annað eða meira að ræða
en sérstakt form barnslegrar tónlistariðkunar. Á þetta
hljóðfæri, sem gerir litlar kröfur og samrýmist svo vel
tæknimöguleikum barnanna, eiga þau að læra smálög,
sem þau kannast við, svo bætast ný smálög við til að
syngja og leika og loks eiga þau að kynnast samleik á ein-
faldasta hátt. Með þessum æfingum eiga grundvallaratriði
tónlistarinnar að verða þeim kunn og töm notkun þeirra.
Með þessari tilraun er ekki um venjulegt nám í hljóð-
færaleik að ræða. Hljóðfæri þetta, sem gerir svo litlar
kröfur, að nægilegur árangur fæst án mikillar fyrirhafnar,
er hér fyrst og fremst notað sem tæki til tónlistaruppeldis.
Takmarkið er tónlistárlegt undirbúningsnám, sem getur
orðið grundvöllur venjulegs hljóöfæranáms síðar meir.
Þegar slíkt nám í hljóðfæraleik byrjar — þegar aldur og
þroski er til —, þá á tónlistin ekki að vera nemandanum
algjörlega ókunnugt land, heldur land þar sem hann hefir
þegar lært að átta sig nökkuð og getur hafið för sína til
þess að kanna það, með því öryggi, sem slíkt veitir. Þá veit
hann hversvegna hann tekur sér þetta starf fyrir hendur
og getur lagt krafta sína óskipta fram.
Stór agnúi á venjulegri kennslu í hljóðfæraleik, er vönt-
unin á lifandi, eðlilegum kunnleika á hinum tónlistarlegu
frumatriðum, en tilgangur þeirrar kennslu er ekki sá, að
bæta úr því. Úr þessu er leitast við að bæta með því að
kenna undirstöðufræðina (nótnanöfn, tónbil o. s. frv.)
sem þurra og dauða námsgrein, sem er falin í utanaðlær-
dómi, til leiöinda fyrir kennarann og óþarfa erfiðis fyrir
nemandann. Tilgangur þessarar kennslu okkar er sá, að
barnið geti tileinkað sér það meö lifandi starfi, er það
síðar kemst ekki hjá að læra. Það, sem barninu þannig
hefir tekizt að tileinka sér og notfæra án fræðilegra um-
búða, getur það síðarmeir skilið til fulls án allrar áreynslu.
51