Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.11.1938, Side 4
Timarit T ó n 1 i s t a r f é 1 a g s i n s
Þegar talað er um undirbúningsnám, er ekki svo að skilja,
að blokkflautunámskeiðin eigi að vera fyrir þá eingöngu,
er síðar kunna að stunda reglubundið nám á eitthvert
hljóðfæri. Ekki er heldur um það að ræða að setja sér-
stæða uppeldisfræði í stað lifandi tónlistariðkunar, því
tónlistaruppeldi byggist á slíkri iðkun.
Um aðaltilgang eða grundvöll þessarar tilraunar, sem
nú veröur gerð hefir verið rætt áður í þessu riti. Á þeim
tíma, sem íslenzk börn alast tæplega upp við aðra tónlist
en kvikmyndaslagara og útvarpsmúsik og sjálfstæða tón-
listarmenningu er ekki um að ræða, verður auðsæ hin
brýn,a nauðsyn á, að grundvalla nýja tónlistarmenntun.
Við höfum þá trú, að skilyrði séu fyrir hendi að slíkt megi
takast. Dr. Heinz Edelstein.
Dr. Victor v. Urbantschitsch
Um leið og Dr. Urbantschitsch byrjar starf sitt við Tón-
listarskólann, en hann er ráöinn til að taka við af Dr.
Mixa, er hann flutti af landi burt, þykir hlýða að kynna
lesendum menntun hans og störf að nokkru, en hvort-
tveggja er á þann veg, að hinar beztu vonir má gera sér
um árangur af starfi hans hér. Því ber að fagna, að hingaö
veljast menn til slíkra starfa, er fengið hafa ágæta mennt-
un þar sem tónlistarmenning stendur á háu stigi og á sér
glæsilega sögu. En með því er þó ekki allt fengið; okkar
er að skapa skilyrði til þess, að störf þeirra komi okkur að
sem mestum notum og verði þeim sjálfum sem ánægju-
legust.
Dr. Urbantschitsch er fæddur í Wien árið 1903 og er
faðir hans kunnur prófessor í læknisfræði við háskólann
þar. Hann nam tónlistarfræði við háskólann í Wien hjá
hinum víðkunna fræðimanni og rithöfundi Guido Adler,
og tónfræði og ,,komposition“ hjá Joseph Marx við ríkis-
háskólann, hvorttveggja samtímis Dr. Mixa. Árið 1925
52