Jazz - 01.11.1947, Qupperneq 3
Áramótahugleiðmg
Þetta hefti verður fyrirsjáanlega það síðasta
sem út kemur fyrir nýjár, og viljum við því
nota tækifærið og þakka lesendum okkar
góðar undirtektir og stuðning við blaðið og
íslenzkum hljóðfæraleikurum fyrir góða sam-
vinnu.
Það er gaman að rifja upp hvað hefir skeð
á hinu liðna ári og hvaða efni blaðið hefir
flutt það sem af er, en þar sem það yrði of
langt mál að fara nákvæmlega út í efni blaðs-
ins, mun ég stuttlega telja upp greinarfjölda
þann, er birzt hefir í hinum 7 útkomnu tölu-
blöðum.
Birzt hafa 40 greinar, þar af 5 þýddar og
35 frumsamdar fyrir tímaritið, þar af 18 um
íslenzkan jazz, auk þess hafa birzt frétta-
dálkar, er þeir Harry Dawson og Svavar
Gests hafa annazt, alls 24 dálkar.
Plötufréttir hafa birzt í 7 dálkum og textar
í 6, 4 lög hafa birzt í píanóútsetningu, og auk
þess hefir bréfakassinn náð yfir 10 dálka.
Sex heilsíðumyndir hafa birzt í blaðinu auk
60 smærri mynda, þar af hafa birzt 23 mvndir
af íslenzkum hljóðfæraleikurum.
Svona væri lengi hægt að telja áfram, en
það yrði þreytandi lestur og er heldur ekki
ætlunin með þessari grein, heldur aðeins að
gefa dálítið yfirlit yfir starf blaðsins.
Greinar hafa birzt um jazz á Islandi í
ameríska músikblaðinu Down Beat eftir rit-
stjóra Jazz og í brezka jazzblaðinu Melody
Maker eftir sama, auk þess hefir blaðinu
borizt hamingjuóskir í tilefni starfsins frá m.
a. Hugues Panassie, Frakklandi; Egon Ped-
ersen, Danmörku; Nils J. Jacobsen, Noregi;
Harry Dawson, Englandi; Joseph Madison,
Bandaríkjunum og Leslie Hurl, Hollandi.
Einnig hefir Tímaritið Jazz gengizt fyrir
útgáfu fyrstu íslenzku jazzplötunnar, er mun
koma á markaðinn eftir áramót, og er hún
leikin af Birni R. Einarssyni og hljómsveit
hans, og er von á plötum með fleiri hljóm-
sveitum síðar.
Eftir áramót er von á fyrstu jazzmyndinni,
og mun hún taka 10 mínútur, og er tekin af
þeim Sigurþóri H. Jónssyni og Þorleifi Þor-
leifssyni og er af K.K.-sextettinum.
Ef þessi mynd tekst vel, er í ráði að halda
áfram myndatökum af íslenzkum hljómsveit-
um bæði fyrir innlendan og erlendan markað.
Tímaritið hefir haft á stefnuskrá sinni um-
'burðarlyndi í hljómlist, hefir ávallt verið
á móti ofstæki í nokkurri mynd, og hefir
unnið ótrautt og öfgalaust á móti árásum
á jazzinn í hverri mynd sem þær hafa verið.
Annars má sjá, að það sem af er, hafa
árásirnar á jazzinn minnkað, en áhuginn
aukizt að sama skapi, m. a. við kynningu
fólksins við sína eigin hljómlistamenn.
Þó ritar Thorolf Smith grein í Vísi um
myndina Carnegie Hall, þar sem hann kallar
jazzunnendur „Tónlistaféndur“ og segir auk
JAZZ 3