Jazz - 01.11.1947, Qupperneq 8
Hvað er swing?
Þorvaldur Steingrímsson
Tímaritið /azz lagði fyrir no/{/{>'a íslenzka
hljóðfceraleikara spurninguna: „Hvað er
Swing', og fara hér á eftir svör þeirra.
Ólafur Pétursson
Jóhannes Eggertsson
Þorvaldur Steingrímsson:
Swing er músikalskt fyr-irbrigði. Mér finnst ágæL
skýring á þessu vera, að hægt er að leika swinglag
algjörlega swinglaust, eða þvert á móti hvaða lag
sem er með swing.
Olafur Pétursson:
Swing byggist aðallega upp á tempói og rhythma.
Swing hefir verið uppi jafn lengi og hljómlistin, og
má finna hvar sem er t. d. í Straussvölsunum.
Jóhannes Eggertsson:
Swing er visst tempó. Það er betur fallið til leiks
fyrir stórar hljómsveitir en litlar, þar eð meira er lagt
tipp tir hljómsveitarheildinni en einstökum sólóum.
Hallur Símonarson:
Swing er stíll í jazz (sbr. blues, dixieland og be-
bop). Það skiptir í rauninni minnstu máli hvaða orð
eru notuð um jazz, aðalatriðið er að þetta er mósik,
1
<
j
8 JAZZ