Prentarinn - 01.01.1940, Blaðsíða 4
4
PRENTARINN
PRENTARANÁMSKEIÐ
í KAUPMANNAHÖFN SUMARIÐ 1939
Ritstjóri Prentarans hefir beðið mig að
segja eitthvað frá veru minni á námskeiði
prentara í Kaupmannahöfn, sem eg sótti sið-
astliðið sumar, og vil eg ekki færast undan
að gera það, að einhverju leyti, þótt eg hins-
vegar hafði hugsað mér að gera það ekki, því
satt að segja var eg hálf „fornermaður“ við
stjórn Prentarafélagsins út af þvi að hún
vildi ekkert styrkja mig til fararinnar, og
lét í ljós þá ástæðu, að eg væri helzt til of
gamall til slíkrar farar! Ja, sá er nú gamall!
En hvað um það, eg fór, er korninn aftur, hefi
fyrirgefið stjórninni, og það sem bezt er, eg
tel mig hafa haft mikið gagn af förinni, og
það er fyrir öllu. —
Fagskólinn í bókaiðnaðinum í Kaupmanna-
höfn er til húsa i stórri og mikilli byggingu í
miðjum bænum, sem nefnist einu nafni Tekno-
lokisk-Institud, og eru þar deildir í öllum hugs-
anlegum iðngreinum, sem óþarfi er að telja
upp hér.
Prentarar höfðust við ó þriðju hæð hússins,
í tveim deildum, sem nefndust A- og B-deild.
Hvor deild er fullkomin prentsmiðja. Auk þess
er þar sérstök deild vélsetjara með þrem vél-
um, tveim Linotype og einni Intertype.
Kennarar voru hinir ágætustu menn, hver
í sinni grein. Tveir setjarakennarar, og var
skólastjórinn sjálfur annar þeirra. Tveir kenn-
arar prentara og einn vélsetjara.
Þátttaka í prentaranámskeiðinu var að
þessu sinni 34 nemar, tveir íslendingar, einn
Svíi, einn Færeyingur og svo Danir, víðsvegar
að í Danmörku.
Ég hlaut sæti í B-deild. Lýsi ég henni lítil-
lega.
Deildin er tveir salir, setjarasalur og véla-
salur, og er svo í báðum deildunum. Er þar
hátt til lofts og vítt til veggja og öll vinnu-
skilyrði hin ákjósanlegustu (hugsaði ég til
sumra prentsmiðjanna okkar), áhöld öll og
vélar af beztu gerðum og hreinlætis og allrar
reglusemi gætt i hvívetna.
í vélasalnum eru 6 prentvélar og pappírs-
skurðarvél. Prentvélarnar eru: 3 hraðpressur,
1 Miele-totur mjög vönduð vél, sem mikið
er notuð í prentsmiðjum Kaupmannahafnar,
1 Planete-Fixia og Eickhoff, hvorttveggja mjög
góðar vélar. Digelvélarnar voru: Fönix, Vict-
oria og Spiss,allt ágætis vélar með góðum völs-
um og farvaverkum. Var Victoriuvélin með
upphitunartæki, haganlega fyrirkomnu, er það
mjög hentugt þegar kalt er.
Kennslan hófst kl. 8 að morgni og' lauk kl.
4% e. h. Hálfan tíma höfðum við til matar
(kl. 11—11(4) og 15 mín. til kaffidrykkju.
A annari hæð hússins er stór og rúmgóður
borðsalur, og geta þeir er vilja fengið þar
keypt öl, mjólk, kaffi og te, brauð og kökur
og margt fleira með mjög vægu verði, annars
koma víst flestir með brauðpokann sinn með
sér.
Hver vinnudagur hófst á munnlegri kennslu
eða fyrirlestri, þar sem okkur var skýrt frá
helztu nýjungum, meðferð prentvéla og því
um líku. A skólabekk sátum við 2 tima 2var
í viku. Fór þar fram kennsla í samsetningu lita
og teikningu. Þá kennslu annaðist sérstakur
teiknikennari, prýðilegur maður í alla staði.
Viðfangsefnin voru margskonar: Bókaform-
ar í ýmsum brotum, með og án mynda, ýmist
etsuðum eða skornum, myndir, einlitar og
marglitar, allskonar skemur, eyðublöð og
kort með einum eða fleiri litum o. fl. — Öll
var þessi vinna unnin með nýjustu aðferðum
og rík áherzla lögð á alla vandvirkni og góð-
an frágang.
Þar sem línur þessar eiga ekki að vera nein-
ar faglegar leiðbeiningar, heldur einskonar
ferðasaga, fer ég ekki frekar út i það að lýsa
vinnu- og kennsluaðferðum, til þess gefst ef
til vill tækifæri síðar.
Námskeiðið hófst 17. júlí og var sagt upp
26. ágúst. Við uppsögnina var mættur formað-
ur danska prentarasambandsins. Skoðaði hann
muni þá, sem unnir höfðu verið, bæði teikn-