Prentarinn - 01.01.1944, Side 5

Prentarinn - 01.01.1944, Side 5
íslendingar fara bróðum að skilja, að mikil- virkar jarðræktarvélar verða að koma hér til sögunnar, ef eitthvað á að gerast. Þær munu umturna öllum búnaðarhóttum til landsins á sama hótt og mótorvélin ger- breytti öflun verðmæta af fiskimiðunum. En þegar að þessu dregur, þurfa ýms skilyrði að vera fyrir hendi. En þó er eitt nauðsyn- legast og það er — jarðvegur. Án moldar- innar verður ekkert aðhafzt í þessum efn- um. Verður mönnum svo ekki, að þessu at- huguðu, hugsað til Miðdals? Þar er nægur, frjór og djúpur jarðvegur, eins og allur gróð- ur þar sýnir. Þar við má svo hæta bezta veðurfari, sem til er hér á landi. Veðráttan og ræktunarskilyrði eru þarna svipuð og i Fljótshlíð, þar sem Skógrræktarfélag íslands sér sér hag í að hafa gróðrarstöð, þótt all- langt sé frá Reykjavik. Hvi skyldu prent- arar ekki, þegar fram í sækir, sækja lífs- viðurværi sitt austur í Miðdal, í sina eigin mold? Hví skyldi ekki að því reka, þegar fram líða stundir, að þeir framleiði þar þá mjótk, sem þeir þarfnast og jafnvel handa öðrum lika. Þarna eru ágætir virkjunarmöguleikar, eins góðir og beztir geta verið, frá náttúr- unnar hendi. Gróðurhús eru ekki verr sett í Laugardal en hvar annars staðar. Og hvað má vita til hvers rafmagnið verður notað áður langt líður? Bretar eru farnir að reka bílana sína með rafmagni. Margar nytjajurtir erlendar geta þrifizt hér ágættega og margar trjátegundir sömuleiðis. Eplatré, sem sáð hefur ver- ið hér til af engri þekkingu á eðli þeirra, — og geta því verið þau ó- heppilegustu, — hafa borið alt-ásjá- lega ávexti undir beru lofti. Hefur sá, sem þetta ritar, séð eitt þvilíkt með ávöxtum. Hvað mun þá, ef þekkingin verður höfð með í ráðum? Þá er rúss- neska, fjölæra hveitið. Væntanlega verða ekki nema fá ár þar til tekið verðuraðgera tilraun- ir með það hér. íslendingar eru nú að taka upp stjórnmálasamband við Rússa. Sendi- herra hefur þegar verið skipaður. Frá þessu landi á sjálfsagt margt eftir að koma nyt- samlegt, sem við ekki þekktum áður. Þá er eitt enn: Skógræktaráhugi vex hér með hverjum degi. Það væri lítt hugsanlegt, að prentarar óskuðu þess ekki, að láta þar til sín taka. Þeir hafa raunar, án þess að gera sér það tjóst, stigið fyrsta skrefið — með þvi að eignast Miðdal. Þar eru skilyrði til skógræktar eins góð og orðið geta. Eg á hér ekki við það, sem vanalega er skilið við skógrækt hér á landi — það er ræktun trjáplantna tit skrauts — heldur ræktun stór- vaxinna nytjatrjátegunda — barrviðar. — Vil eg í þessu sainbandi benda mönnum á að lesa ritgerð Hákonar Bjarnasonar i Árs- riti Skógræktarfélags íslands 1943: Um rækt- un erlendra trjátegunda. Því miður er ekki, sem stendur, mögulegt að afla fræs af þeim trjátegundum, sem hann talar um. Þá má nefna skilyrði til fiskiræktar. Það væri ótrúlegt, að íslendingar gætu aldrei lært að taka af sér vettlingana i þeim mál- um, eins og öll skilyrði eru þó góð í þeim efnum hér á landi, — og keniur þá Mið- dalur enn sem fyrr þar til greina, með sí;t góðu skilyrði. Það, sem aðallega hefur verið fundið Mið ■ dalskaupunum til foráttu, er fjarlægðin frá Reykjavik. En hvað verður úr þeirri mótbáru, ef litið er til framtíðarinnar, — frá því sjónar- miði verða hlutirn- ir að skoðast. — Með bættum sam- göngum styttast vegalengdirnar. Ef Olfusárbrú væri orðin meter breið- ari og nokkuru styrkari en hún er uú, þyldi hún 8 tonna híla, í stað 4 nú, en af því leiddi aftur, að lækka PnENTARINN 19

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.