Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 4

Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 4
Það sem vannst 1. Lágmarkslaun (grunnl. á viku) setjara og prentara kr. 150.00 (áður kr. 145.00). 2. Lágmarkslaun (gr.l. á viku) fullnuma stúlkna, kr. 78.05 (áður kr. 73.65). Lágmarkslaun kvenna, sem unnið hafa fullnuma í 5 ár kr. 83.65 (áður 73.65). 3. Aukavinna greiðist 3 fyrstu tímana eft- ir vinnuhætlur dagvinnulímabils með 60 á hundrað. Öll önnur aukavinna, svo og helgidagavinna með 100 á hundrað. (Aður voru 4 fyrstu timarnir greiddir með 40%, 2 tímar eftir kvöldvakt og lielgidagavinna með 60%, næturvinna með 100%). 4. Laun meðlima H. í. P. verði hin sömu um land allt. (áður 10% lægri utan Reykjavíkur). 5. Nýsveinatímabil falli niður að lokn- um námstima og þar með fengin trygg- ing fyrir kr. 150.00 grunnlaunum á viku strax að námi loknu. (Áður var nýsveinum greitt fimmta árið kr. 131.00 í grunnkaup á viku). 6. Aðfangadag jóla, gamlársdag og laug- ardag fy.rir hvítasunnu er vinnu hætt kl. 12 á hádegi. (Áður var unnið til kl. 1, aðfangadag og gainlársdag, en til kl. 3 laugardag fyrir hvítasunnu. 7. Laugardaga verði unnið aðeins 4 klst. frá og með 16. maí til og með 15. sept. (Áður voru laugardagsfriin frá 1. júní —31. ágúst). 8. Þeir sem unnið hafa 10 ár í iðninni fá 15 daga sumarleyfi. Þeir, sem unnið hafa 18 ár, fá 18 daga sumarleyfi. (Áður 12 dagar fyrir alla). 9. Greiðsla fyrir sumarleyfi sé fyrirfram. Við Rikisprentsmiðjuna Gutenberg var samið um 15 daga sumarleyfi fyrir alla, en starfsfólkinu lieimilað að sam- ræma það atriði við samninginn við F. í. P. Til móts við þessar kjarabætur var gengið inn á 60% frádrátt fyrir vanræktar vinnustundir i stað 50% áður. Þessi samningabarátta mun að vísu líta öðruvísi út í augum þeirra, sem vanir eru þröngum hagsmunasjónarmiðum í baráttu verkalýðsfélaga, en samt er ánægjulegt að geta sagt, að prentarar voru allan tímann, sem „gengið“ var heils hugar um það, að líta á hvern þann ávinning, sem fengizt einhverj- um hluta stéttarinnar til handa, sem sinn eigin sigur og því fór svo að lokum, að það sem vannst eru miklar kjarabætur fyrir alla. Það er auðvitað hægt að benda á ýmsar tilslakanir frá fyrstu kröfum, en engum mun hafa komið slíkt á óvart, þegar gætt var þeirrar aðstöðu, er samningar annarra fé- laga skópu, og gerðir voru um hliðstæða vinnu, fyrir lausn prentaradeilunnar. Málalokin sýna okkur, auk smærri atriða, þær veigamiklu niðurstöður: 1) að meðaltal prentaralaunanna samsvarar enn þeim laun- um, sem hæst eru greidd i iðnaði, 2) að kon- ur við hliðslæða vinnu, fá hvergi jafngóð laun né kjör, 3) að nemendalaun annarra iðn- stétta voru að lokum miðuð við prentnema- kjörin. Og ber prentnemum sérstaklega að atluiga þá aðstöðu félagsins í samningunum, þegar þeir meta þann skerf, sem þeim hefur hlotnazt. Þótt kaupið stæði i stað var ný- sveinsárið burtu fellt og þeir njóta annarra hlunninda, sem nú var aukið við að nokkru, einnig þeim í hag (sbr. laugardagsfríin yfir sumarmánuðina og hækkun aukavinnunnar, auk þeirra kjara, sem þeim nú eru búin i framtíðinni). 4) En það sem flestir munu telja einn mesta ávinning þessara samninga er aukning laugardagsfríanna yfir sumar- mánuðina og sigur þeirrar kröfu, að lengd sumarfria sé miðuð við starfsaldur. Veltur það á skilningi nokkurra nema og kvenna, hvort takast má að fá þessa mikilsverðu réttarbót alls staðar eins, þótt það at- riði væri öðruvísi i samningum, sem gerð- ir voru við Ríkisprentsmiðjuna i fyrstu. Þessi réttarbót er nýmæli hjá iðnaðarmönnum og fer vel á því að prentarar, sem fyrstir verka- manna urðu til þess að brjóta orlofslögunum braut með starfi sinu, fái viðurkenningu þess í auknu sumarleyfi, þegar Alþingi hef- ur staðfest tólf daga orlof fyrir alla. Félag okkar hefur með samningum sínum nú, endurheimt að fullu það sem glataðist af virðingu þess við ósigurinn 1942. En sá 14 Prentarinn

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.