Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 17

Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 17
Þar sem konurnar ráða ríkjum Vikan grá er gengin hjá, gleymd sem þánuð mjöllin. Öll min þrá er austur frá upp við bláu fjöllin. S. Ö. 1 tungumyndaðri brekku, skógi vaxinni, standa fjórtán hvítmáluð smáhýsi í skipuleg- um röðum, með jöfnu millibili. Tign öræf- anna að baki en blómleg sveit framundan Náttúran er gjöful þegar hún vill það við hafa og þessi litla gróðurtunga hefur ekki farið varhluta af fjölbreytninni. Hér hefur ekkert verið skorið við nögl. Tær bergvatns- lind hjalar við húsdyrnar og bíður þess a' vera leidd inn í eldhúsin; bregður sér síðar niður í djúpan hvamm, breiðir þar úr sér og myndar fyrirmyndar ,,þvottahús“, yfirbygg með laufþaki. Sléttir lækjarbakkarnir er hólfaðir sundur i smárjóður, með þéttum birkibeltum, sem eru til margra hluta nyt- samleg: Tilvalin tjaldstæði, sólskýli eða jafr vel danspallar. Eilíft logn, fuglasöngur i lof' blómailmur. Og lækurinn tifar áfram — niður á við — og tekur sér nýjan svip svo að segja við hvert fótmál. En skyndilega er sjálfstæði hans lokið. Áin, sem myndar vesturtakmörk skógartungunnar, er voldugur nágranni o situr um að gleypa smálæki, sem á vegi henn- ar verða. En i fjörbrotunum er meistara- verkið kórónað. Um leið og lækurinn sam- einast ánni, breiða lækjarbakkarnir skyndi- lega úr sér og mynda rennisléttar grundir, en áin hleður utan að þeim sandeyrum og malarbingjum, svo að úr verður fyrsta flokks barnaleikvöllur. Þetta er sumarbústaðahverfi prentara i Miðdal i Laugardal. í þessum fagra lundi býr álitlegur hópur prentara yfir sumarið, eða réttara sagt: kon- ur þeirra og börn. Sjálfir verða þeir að láta sér nægja að bregða sér hingað um helgar. Konurnar ráða hér ríkjum 6 daga vikunn- ar. f sex daga samfleitt fá þær ótruflaðar að beita stjórnkænsku sinni og hyggjuviti. * Það væri freistandi að reyna að fylgjast með hinni daglegu viðburðarás i slíku fyrir- myndar dvergríki. En hér er ekki hægt um vik. Skógurinn umlykur bústaðina á alla vegu og samgöngur milli þeirra fara fram eftir földum skógargötum. Autt svæði er að- eins á einum stað, neðanvert við hverfið, en það er aðallega notað sem bifreiðastæði og þar sést ekki til mannaferða nema þeg- ar áætlunarbílsins eða annarra gesta er von. — En við getum hlustað. Við getum valið okkur ofurlitla birkilaut, á sólbjörtum júlí- morgni, um ]>að bil sem þorpið er að vakna til hins daglega starfs — og hlustað skóginn. Ys dagsins er með öðrum hætti hér en i höfuðborginni. Engin bifreiðaumferð eða stígvélaspark, en það skrjáfar í laufi er ein og ein kona gengur um til gresjunar, eða bara til að tína sp^ek til uppkveikju. Ekk- ert moldryk og enginn kolareykur, tært loft, angandi gróðurmold, árniður. Enginn flug- véladynur i lofti, en hrossagaukurinn tekur dýfur við og við og liinn glaðlyndi skógar- þröstur b,-egður sér milli húsanna og syng- ur við hvern glugga. Nú dvelst honum fyrir utan nr. C. Til frekari skýringar skal þess getið. að þó húsin séu öll tölusett, þá hafa þau einnig flest hloHð sérstök heiti, sem góðir og gildir sveitabæir. Hér er Byggðar- endi og Jaðar, Skeljabrekka, Kjarrbrekka, Fagrabrekka og Flísastaðir. — Allt i einu er kyrrðin rofin af hvellum barnaröddum og glamur i mjólkurbrúsum gefur bendingu um, livað er á seiði. Það er e>tt af skyldustörfum barnanna að ann- ast hina daglegu mjólkurflutninga frá Mið- dalsbúinu, enda er það mest í þeirra eigin þágu. Og svo stundvís eru þau, að það er engu líkara en herútboð eigi sér stað. Sam- tímis streyma þau út úr öllum hliðargöt- um og sameinast síðan í eina lest, sem svo liðast eftir hlykkjóttum götuslóðum — yfir ár og læki — heim að Miðdalsbænum — um það bil 15 minútna gangur. Undir slík- um kringumstæðum vill verða þröng í „mjólk- Prentarinn 27

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.