Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.12.1944, Blaðsíða 5
Sigurður Kristjánsson níræður 23. septcmber síðastl. varð Sigurður Kristj- áiisson prentari og bóksali níræður. I tilefni af þessu merka aldursafmæli Sig- urðar heimsótti stjón Prentarafélagsins hann ásamt varaformanni félagsins, Hallbirni Hall- dórssyni og fyrrverandi formanni, Magnúsi H. Jónssyni. Nokkur viðbúnaður var undan- fari heimsóknarinnar, i því fólginn, að stjórn- in hafði látið gera heillaóskaskjal all-vandað. Var það 8 síður pergaments, með skrautrit- uðu nafni Sigurðar og hamingjuóskum, er Hafsteinn Guðmundsson liafði unnið. Kvæð' var prentað á eina síðu pergamentsins, ort af Þorsteini Halklórssyni. Ytra borð grips- ins var skinnklædd spjöld, gyllt á forhlið, unnið af Jens Guðbjörns'syni bókbindara. Bókfell þetta hefur að geyma nöfn tæplega hundrað prentara, sem með áritun sinni ávinningur sem H. í. P. hefur náð með bættum kjörum og aukinni menningarað- stöfu til heilbrigðrar lífsnautnar, leggur félagi okkar miklar skyldur á herðar. Meðan stormahlé helzt milli stétta ber okkur nauð- syn til að sýna það, að við prentarar erum þess umkomnir að leggja drjúgan skerf til friðsamlegra félagsstarfa, s'em verða megi stétt og þjóðfélagi i heild til varanlegra nota. Mér hefur aldrei verið það jafnljóst sem nú, að loknum þessum síðustu átökum, hve mörgum ágætismönnum prentarastéttin hef- ur á að skipa, mönnum, sem færir mundu að leysa af höndum hin vandasömustu verk- efni. Stétt, sem háð hefur 5 vikna verkfall með slíkri festu og raun ber vitni og náð árangri, sem er virðingu hennar jafn vel sam- boðinn, mun reynast það létt verk að lyfta grettistökum í friðsamlegu starfi. S. Ö. vottuðu hinum aldna stéttarbróður okkar og heiðursfélaga þakkir fyrir langa og farsæla ])jónustu við prentlistina og óskir um heilla- drjúga framtíð. Ásamt grip þessum færði sendinefnd félagsins afmælis’barninu blóm i keri. Sigurður tók sjálfur á móti gestum sinum og var hinn kátasti. Hann er við góða heilsu, þrátt fyrir hinn háa aldur, sjónin bærileg, sporið furðu létt, en umfram allt er þó minni og hugsun traust og tungutakið öruggt. Við minntumst nokkuð á fyrri tíma, þessa stuttu stund, sem við stóðum við. Hann mundi eftir flestum þeirra, sem stofnuðu Prentarafélagið gamla og sagði okkur frá upphafi útgáfu sinnar, — þegar hann setti sjálfur það sem hann gaf út: „1883 byrjaði ég bóksöluna, ég setti postilluna og fékk letrið leigt. Mér þótti gaman að setja og setti vel, alveg framúrskarandi vel.“ * Ivvæði það, er Þorsteinn Halldórsson orti, í tilefni af níræðisafmæli Sigurðar Kristjáns- sonar, birtist á öðrum stað í blaðinu. Pbentarinn 15

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.