Prentarinn - 01.12.1944, Page 18
urbúðinni“, en allt fer árekstralaust fram.
Börnin bíða róleg og lipurð húsfreyjunnar
í Miðdal leysir úr öllum vanda; engin
skönnntun og ekki þarf að óttast að mjólk-
in sé súr, þó að kýrnar séu ekki alltaf jafn
slundvísar og börnin. Mjólkurbrúsarnir eru
fylltir hver á fætur öðrum og lestin mjak-
ast aftur af stað, heim á leið. — Og morg-
uninn þokast áfram með hækkandi sól og
vaxandi hita. Börnin fara að smátína utan
af sér fötin. Kaffibrún af sólbruna rölta þau
um á sundbolunum einum saman, hlaupa svo
niður að á og dýfa sér í. í ríkuin mæli
teyga þau af nægtabrunninum: frelsi, lieil-
brigði, öryggi. —
*
Um kl. 11 kemur stór vöruflutningabif-
reið neðan þjóðveginn, og virðist það
valda talsverðri hreyfingu i þorpinu. Ein-
hver heyrist kalla: Mjólkurbíllinn, mjólkur-
bíllinn er kominn! og nokkrar stálpaðar
telpur hlaupa þegar af stað til móts við
hann. í sjálfu sér getur það ekki talizt stór-
viðburður þó vörubifreið keyri um þjóðveg-
inn, fleygi af sér tómum mjólkurbrúsum og
tíni upp aðra fulla í þeirra stað, — það er
daglegur viðburður. En með þessari bifreið
sendir Iíaupfélag Árnesinga þorpsbúum mat-
væli og aðrar nauðsynjar, fáanlegar og jafn-
vel ófáanlegar, tvisvar í viku, eftir pöntun-
um. í dag er laugardagur og því er von á
vörum þeim, sem pantaðar voru i gær. í
allt kvöld og fram á nótt verða karlmenn-
irnir að streyma austur, langsoltnir af skrínu-
kostinum, og þá er nú vissara að hafa eitt-
hvað í pottinum. — En það verður að segja
hverja sögu eins og hún gengur, og þess
vegna skal því skotið inn hér, að einn laug-
ardag brást matvælasendingin algerlega;
mjólkurbillinn kom ekki með neitt af því,
sem pantað var daginn áður, svo það leit
helzt út fyrir almenna hungursneyð yfir
helgina. 'Nú voru góð ráð dýr. Skotið var á
skyndiráðstefnu í matvælaráðuneytinu, og
eftir að hinu ágæta kaupfélagi hafði verið
bölvað duglega og þvi hótað öllu illu, varð
það úr, að skorað var á Gunnar Sigurmunds-
son, sem er aðalframkvæmdastjóri ráðuneyt-
isins, að taka sinn einkabíl og keyra „blátt
strik“ niður að Ölfusá. Og til þess að halda
virðingu sinni óskertri, sá Gunnar sér ekki
annað fært en verða við þessari áskorun
og starta þeim græna. En ekki var hann
lengra kominn en í austanvert Grímsnes,
þegar hann mætti einkabíl frá kaupfélaginu
fullfermduni af kjöti og öðru lostæti, á leið
upp i Miðdal. Kom þá í ljós, að hér var ekki
um nein svik frá hendi kaupfélagins að ræða,
heldur hafði pöntunin orðið eftir vegna
gleymsku mjólkurbílstjórans. Var nú vörun-
um umskipað í snatri og eftir klukkutima
burtveru, renndi sá græni með allt hafur-
taskið heim í hlað. Þótti mönnum kaupfé-
lagið hafa sýnt hið mesta snarræði og fram-
takssemi og var það nú lofsungið jafn mikið
og þvi hafði verið bölvað áður. —
En slíkt óhapp kemur ekki fyrir nema
einu sinni. í dag fer allt fram samkvæmt
áætlun og telpurnar koma heim aftur hlaðn-
ar bögglum. Rétt á eftir lendir Gunnar heilu
og höldnu á bílatorginu. Hann er fyrst mað-
ur austur í dag, sennilega með tilliti til
þess að geta brugðið sér niður að Ölfusá
ef á þarf að halda. En þar með er hinu
sex daga ríki kounnar lokið að þessu sinni
og helgin gengin í garð. Eins og gefur að
skilja, þá eru þessir sex dagar ekki alltaf
óslitin sæluvika. Ivomið getur það fyrir, að
ýms vandamál steðji að, sem krefjast skjótra
úrlausna. Skal hér eitt dæmi tilfært. Einn
daginn fregnast það í hverfinu, að mjólkur-
billinn hafi komið með olíutunnu og kol i
pokum, en heimflutning á öllu slíku verða
prentararnir sjálfir að annast neðan af vegi,
og er það talsve.rðum erfiðleikum bundið, þar
sem óbrúuð á er á leiðinni. En sem sagt:
um leið og þetta vitnaðist, uppgötvuðu sumar
konurnar það, að þær voru algerlega kola-
lausar, og aðrar áttu ekki dropa af olíu. Hér
var því úr vöndu að ráða, vörurnar þurftu
að komast heim tafarlaust, en enginn karl-
maður í þorpinu. En það er ekki háttur
kvenna að vera með vangaveltur. Nokkrar
þeirra, sem ekki voru bundnar við þvott eða
önnur ófrávíkjanleg störf, klæddust vaðstíg-
vélum, settu upp skinnsvunturnar, brugðu sér
heim að Miðdal og fengu þar vagn, dreginn
af traustum vatnahesti, og svo var lagt í
stórræðlð. Eftir nokkur sterkleg handtök er
tunnan komin á vagninn og pokunum rað-
að umhverfis hana til stuðnings. Svo heldur
28 Prentarinn