Prentarinn - 01.05.1968, Side 24
Hin öra tækniþróun
áliriff hiennar
Kajlar úr jyrirlestri, sern Eric Charnbers
jlutti á tœkniráðstejnu ÍGF,
í London í septernber 1967
IRM Composer.
70
Þær víðlæku og gagngeru breytingar í prentiðnað-
inum sem hófust fyrir um það bil áratug halda áfram.
1964 höfðu meira en 100 tölvukerfi verið tekin í
notkun til letursetningar og um fimmtungur allrar
setningar í Bandaríkjunum fór fram með ljósmyndun-
araðferðum, en 1000 vikublöð og 120 dagblöð voru
offset-prentuð. Stofnun sú í Bandaríkjunum, sem vinn-
ur að því að auka notkun hinnar nýju tækni í prent-
iðnaðinum, Rocappi Inc., hafði þá lýst því markmiði
sínu að útrýma öllu handverki í sambandi við setn-
ingu. Það kom snemma í ljós að ráðið til að
auka setningarafköstin var að taka upp ljósmyndun-
araðferðir í stað þess að steypa sátrið. Rannsóknir
á þessu sviði leiddu til þess að fundið var upp Ijós-
myndunarkerfi til setningar, sem gerði kleift að setja
30.000 stafi eða fleiri á mínútu og annað sem sam-
einaði ljóssetningu og tölvunotkun og gat framleitt
22 dagblaðslínur á mínútu.
Könnun sem nýlega var gerð sýndi að þá voru
í notkun í 18 löndum 374 setningarvélar með tölvu-
búnaði. Tveimur árum áður voru þær aðeins 70.
Nú sem stendur eru langflestar þessara véla í blaða-
prentsmiðjum, eða um 63%. Af þeim vélum sem sér-
staklega hafa verið smíðaðar í þessu skyni hafa
Mergenthaler Linasec og Justape selzt bezt, en I.B.M.
stendur öllum öðrum framar í smiði á tölvum til al-
mennra nota. Fyrstu tölvurnar sem notaðar voru við
letursetningu voru sérstaklega smíðaðar í því skyni,
en undanfarið hefur farið vaxandi að nota við setn-
ingu tölvur, sem ekki eru eingöngu ætlaðar til þeirra
starfa. Megnið af setningu með tölvum fer fram í
Bandaríkjunum og Kanada, en næst í röðinni koma
I’retland, Sviss, Þýzkaland, Holland, Svíþjóð og
Ástralía.
Ljóssetning
Síðan Intertype Fotosetter kom á markaðinn 1947
hefur þróunin í ljóssetningu orðið frá einni einstakri
vél, sem einn maður vann við, yfir í kerfi rafeinda-
véla, sem ganga fyrir gataræmum. Þess má t. d.
geta að ljóssetningarkerfi eins og það sem nefnist
713 Textmaster, setur 35 30-stafa iínur á mínútu
eftir forsögn 6—8 rása ræmna, og annað sem kall-
ast Zip afkastar 750 stöfum og merkjum á sek-
úndu í þremur leturgerðum. RCA Videcomp setur
upp heila dagblaðssíðu á tveimur mínútum með sjón-
varps- og tölvutækni og notar til þess fjóra leturfonta
sem tölvuminnið geymir.
Afköst ljóssetningarvélarinnar þegar fullgengið er
frá ræmunni eru næsta ótrúleg. T. d. getur Photo-
Text Setter 8000 frá Fairchild sett 80 línur á mín-
útu í 15, 30 eða 40 síseró breiddum og Comp/Set
230 C tölvan, frá sama fyrirtæki, framleiðir línubils-
skipt og jafnað sátur sem svarar 24.000 dagblaðslínum
á khikkustund.
PRENTAHINN