Prentarinn - 01.01.1974, Side 7

Prentarinn - 01.01.1974, Side 7
— I’ai'i var hjá Lögbergi, en þetta Óskar Söebeck og Árni Öla voru eríiðir tímar, kreppa og at- a3 starfi við vinnuleysi. Og meðan ég beið eftir Lesbók MorgunblaOsins. vinnu við prentverk var ég að hugsa um að fara til fiskjar á Winnipegvatni og var reyndar búinn að ráða mig, — en svo veiktist einn prentarinn hjá Lögbergi og þá fékk ég vinnu þar. Hann frískaðist reyndar aftur og þá missti ég vinnuna, en það stóð ekki lengi, því aftur veiktist hann og dó skömmu síðar. Það mátti þvf segja þá eins og oftar, að eins dauði er annars brauð. — Hvað varstu lengi hjá Lögbergi? — Þangað lil ég fór heim, 1930. Það var mikið að gera meðan ég var þarna, og oft vann ég fram eftir öllu á kvöldin. Ég held að þeim hafi þótt ég skila fullu verki, þótt þeir greiddu mér lægra kaup en öðrum. Ég undi því illa og var alltaf að reyna að fá pláss annarsstaðar, því ég vildi líka komast niður í málinu. En það var ekki hlaupið að þvf að fá vinnu. Ég fékk að vísu tilboð frá lítilli prent- smiðju, enskri, nokkuð iangt vestur i landi, en þá var ég búinn að ákveða að fara heim, og sinnti því ekki. Á farkosti „spenamanna" — Hvað varstu lengi í Kanada? — Frá því f ágúst 1928 þangað til um vorið 1930. Ég kom heim með öðru skipinu sem flutti vestur-ís- lendinga á alþingishátfðina. Ég held ég hafi komið með „spenamönnum". — Hvaða menn voru það? — Það voru vestur-íslendingar, — sem voru að fara á alþingishátíðina. Þeir gátu ekki komið sér saman og skiplust í tvo hópa og voru kallaðir labbakútar og spenamenn. Þeir sem báru heitið „spenamenn" fylgdu lands- stjórninni að inálum og fengu ein- hvern ferðastyrk, en stjórnarandstæð- ingar voru kallaðir „labbakútar". — Og þú lentir svo hjá spenamönn- um? — Ég tók engan þátt í þessum deil- um, vildi bara komast heim. En sam- komulagið var ekki betra en það, að þeir urðu að fara á tveimur skipum. Nú er allt í sátt og samlyndi hjá ís- lendingum vestra, eins og sjá má af heimsóknum þeirra hingað til lands á síðari árum. Fólk og félagslíf — Hvernig líkaði þér svona yfir- leitt fyrir vestan? — Mér líkaði vel við fólkið. — Varstu ekki búinn að safna dá- litlu í handraðann? — Ekki fór nú mikið fyrir því, þó átti ég töluvert inni, en fékk það greitt, þegar ég fór; annars gekk illa að fá borgað. — Hver var ritstjóri Lögbergs þegar þú varst þar? PRENTARINN /

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.