Prentarinn - 01.01.1974, Side 18
POB og Þjóðviljinn byggja yfir sig
Morgunblaðið sækir um lóð
undir nýtt blaðhús
band — scm að sjálfsögðu á að vera
villulaust!
I'annig er greinin, bókin, cða
hvaða texti sem er, lesinn kafla fyrir
kafla og ekki ljósmyndaður fyrr eu
prófarkalestri er að fullu lokið og
búið er að gera þær leiðréttingar og
breytingar, sem þurfa þykja.
bað er augljóst að þessi verkfæri
geta valdið prenturum og prentsmiðj-
um ýmsum erfiðleikum. Hættan er sú
að setningarvinna flytjist meira út úr
smiðjunum. I . d. væri hægt að setja
haudritastafla af bók í lesara, leið-
rétta síðan textann á gataböndunum
og koma loks með leiðrétt bandið í
prentsmiðjuna.
A Norðurlöndum hafa bókagerðar-
menn staðið í ströngum samningum,
átt í deilum og málaferlum vegna þcss
að þeir kvika ekki frá því að setjarar
og félagsbundið fólk í bókagerðarfé-
lögunum annist alla setningarvinnu,
án tillits til þess hvaða tækni sé beitt.
Eldri árgangar Prentarans
til sölu innan skamrns
Um nokkurt skeið hefur verið unnið
að því að koma röð og reglu á þá
árganga, sem komnir eru út af Prent-
ararnum. Nú er búið að raða homim
niður að mestu leyti og hefur komið
í ljós, að unnt er að selja félagsmönn-
um nokkra heila árganga frá og með
2G. árgangi til dagsins í dag. Eldri ár-
gangar eru hins vegar svo fáir til
heilir, að ekki þykir rétt að selja þá.
Þeir verða því geymdir hjá félaginu.
Ekki hefur verið ákveðið verð á
þessum árgöngum, eti það verður gert
innan skamms, og þá um leið getur
sala liafist. Er þeim sem álntga kynnu
að hafa á þessum málum ráðlagt að
hafa samband við skrifstofu félagsins.
12,6% framleiðslunnar
til Japans
í vor höfðu Heidelbergverksmiðj-
urnar selt 12.600 pressur til Japans
og meginhlutann á 10—12 árum. 12,6%
af framleiðslu verksmiðjanna árið
1973 fór til Japans.
Noklutr byggingarhugiir
virðist vera i prentsmiðju-
eigendum og útgáfufyrirtcekj-
um. Að minnsta kosti prjú
fyrirtcelii eru að byggja sér
húsnæði, eða að búa sig
undir slíkar framkvœmdir.
Það eru Morgunblaðið, Þjóð-
viljinn og Prentverk Odds
Björnssonar á Akureyri.
Við höfðum samband við
forráðamenn pessara fyrir-
tækja til að fá hjá peirn fréttii
af framkvcemdum.
Allt í strandi
Gunnar Þórsson hjá Prentvcrki Odds
Björnssonar á Akureyri sagði, að
liugmyndin um byggingu væri svo sem
ekki ný, en framkvæmdir gengu hins
vegar ekki sem best. Byrjað hefði
verið á nýju húsi í fyrra, en vinna
við það stöðvast fljótlega vcgna pen-
ingaleysis, og ekkert hefði verið átt
við húsið á þessu ári. Hér væri láns-
fjárskorti um að kenna.
Nýja húsið þeirra hjá POB verður
við Tryggvagötuna, sem er norðar-
lega í bænum, skammt frá Slippstöð-
inni. Það verður um 7000 rúmmetrar
að stærð, þrjár hæðir. Neðsta hæðin
um 1000 fermetrar að flatarmáli, en
tvær þær efri minni, þannig að húsið
allt verður um 1800 ferm. — Áætlaður
kostnaður við bygginguna er, sam-
kvæmt verðlagi í október, um 60
milljónir króna.
Vonandi eíiir tvö ár
Eiður Bergmann, framkvæmdastjóri
Þjóðviljans, sagði að byrjað liafi verið
að grafa fyrir nýja blaðhúsinu Jr. 31.
október sl. Hér væri um að ræða
tveggja hæða hús og yrði hvor hæð
340 fermetrar að stærð. Á efri hæð-
inni yrðu ritstjórnarskrifstofur, ljós-
myndastofa og aðrar skrifstofur blaðs-
ins, ennfremur kaffistofa og eldhús í
risinu. Hins vegar væri enn ekki
ákveðið hvað' gert yrði við neðri hæð-
ina.
Lóð Þjóðviljans er að Síðumúla 6,
og sagðist Eiður vonast til að húsið
yrði tilbúið til notkunar eftir tvö ár,
en taldi þó allt vera á huldu um það,
enn sem komið væri. Hann vildi ekki
nefna neinar tölur um kostnað.
Á frumstigi
Jú, það er rétt, að við erum í bygg-
ingarhugleiðingum, sagði Haraldur
Sveinsson, framkvæmdastjóri Morgun-
blaðsins, Jregar við leituðum frétta
hjá honum um væntanlega húsbygg-
ingu. — En þetta er allt á frumstigi
cnnþá.
— Okkur hefur verið gefinn kostur
á lóð í nýja miðbænum svokallaða, en
erum ekkert ánægðir með það. Þær
hugmyndir sem við gcrum okkur um
nauðsynlegt húsnæði samræmast ekki
skipulaginu f því hverfi. Þar er fyrir-
hugað háhýsahverfi, en okkar hug-
mynd er að byggja sem allra mest á
einni hæð.
Stærðin sem við erum að hugsa um
er um 4000 fermetrar á einni hæð,
það væri það hagkvæmasta fyrir okkur.
Við viljum að sjálfsögðu hafa prent-
smiðju og ritstjórn í sama húsnæði.
— Nei, ég get ekki gefið upp nein-
ar kostnaðartölur, enn sem komið er,
enda er ekki einu sinni búið að
teikna húsið, hvað þá meira.
— hm.
18
PRENTARI N N