Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Blaðsíða 11
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ
Nýr dócent við Háskólann.
Hinn 1 1. okt. s.l. var síra Sigurbjörn Ein-
arsson skipaður dócent við guðfræðideild Há-
skólans.
Kristilegt stúdentablað fagnar því eindreg-
íð, að svo vel skyldi takast með kennaraval
til deildarmnar og telur, að skipun hans í em-
bættið verði til mikillar blessunar fyrir deild-
ina, enda er síra Sigurbjörn kunnur gáfu- og
kunnáttumaður.
Hinn nýi dócent, síra Sigurbjörn Einarsson,
er fæddur 30. júní 1911 að Efri Steinsmýn í
Meðallandi, sonur hiónanna Einars Sigurfinns-
sonar og Gislrúnar Sigurbergsdóttur.
Varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykia-
vík 1931 og sigldi til Svíþjóðar sumarið 1 933
og hóf þá um haustið nám í grísku, almennri
trúarbragðasögu og fornaldarsögu við háskól-
ann í Uppsölum og tók fil. kand. próf í þeim
greinum árið 1937. Cand. theol. frá Háskóla
Islands vorið 1938 og vígðist til Breiðabóls-
staðar á Skógarströnd 1 1. sept. um haustið.
Er ný prestsembætti voru stofnuð í Reykja-
vík sótti hann þangað, og var skipaður prest-
ur í Hallgrímssókn um áramótin 1 940—41,
að undangenginm kosnmgu.
Hann var settur dócent í samstæðilegn guð-
fræði (trúfræði og siðfræði) og kennimann-
legn guðfræði við Háskóla íslands haustið
1943, og 10. október nú í haust var hann
skipaður í það embætti að fullu, er dómnefnd
hafði fjallað um málið.
Síra Sigurbjörn hefir fengizt allmikið við
ritstörf. Ánð 1940 kom út eftir hann bókin
„Kirkja Krists í ríki Hitlers“. Er það söguleg
greinargerð um baráttu þýzku kirkjunnar við
nationalsociahsmann fram til ársms 1939.
Hann hefir auk þess skrifað allmargar
blaðagreinar og inngang að Passíusálmunum
í hinni nýju útgáfu Tónlistarfélagsins.
Gefið var út í vor ræðusafn Kaj Munks í
þýðingu síra Sigurbjörns, er vakti mikla at-
hygli. Auk þess gaf sama bókagerð út erindi
eftir hann um Rosenius og nú í haust 5 ræður.
Emmg hefir hann sknfað ntgerð, er nefn-
ist ,,Hvað er maðurinn“, og bók um indversk
trúarbrögð eftir hann er nú í prentun.
Knstilegt stúdentafélag óskar síra Sigur-
birni allrar blessunar í hinu nýja starfi.
11