Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Side 12

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Side 12
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ SCHWARTZ— Postuli ínc/lands. Ólafur Ólafsson. KRIST'NIBOÐIÐ — svar við annarri bæn faðirvorsins. Þá liefst fyrsti þáttur hinnar fegurstu sögu, um út- hreiSslu rikis hans, meS Postulasögunni ,undir yfirskrift Jesú sjálfs', Post. 1,8:: „Þér munuS verSa vottar minir hæSi í Jerúsalem og i allri Júdeu og Samaríu og lil yztu endimarka jarSarinnar.“ Og það varð. En við eigum ekki á okkar tungu samfellda sögu um úthreiðslu kristindómsins í heiminum jiær rúm- ar 18 aldir. sem eru liðnar siSan postulatímabilinu lauk. Það er heldur ekki vansalaust að saga kristniboðsins skuli ekki vera kennd hér í neinum skóla. Við staðnæmumst hér gagnvart þeirri merkilegu stað- reynd að í byrjun 18. aldar verða Danir fyrstir evangel- iskra þjóða til að hefia kristniboð i sönnustu mcrkingu. Þeir vo-u þá voldugri þjóð en þeir nú eru, áttu herskipa- flota töluverðan. og nokkrar nvlendur hæði á Vestur- heimsevium. Indlandi og i Afriku. Friðrik fjórði taldi það vera skyldu sina að giöra eitt- hvað fvrir heiðingiana. Hann stofnaði sérstakt kristni- boðsráðunevti. en hirðprestur hans skrifaSi vinum sinum i Halle. miðsföð heiUrúarhrevfingarinnar (pietismans) á Þýzkalandi um málið, og lögðu þeir t;l kristniboðaefn- in. Þanig varð. eins og sagt hefir verið. Kaupmannahöfn höfuð en Halle hjarta þessa fyrsta evangeliska kristnihoðs á Indlandi. Kristniboðar heittrúarmanna reyndust yfirleitl miög vel hæfir. en sumir j)eirra afburðamenn. Verður að nægia að segja frá einum þeirra hér, C. T. Schwartz. Lif lians og starf er merkilegur þáttur i sögu kristniboðsins. svari Drottins við annarri bæn faðirvorsins: „Komi þitt ríki“. Eg hef verið beðinn að segja hér þátt úr sögu, sem öll- um kristnum mönnum hlýtur að koma saman um að sé merkilegasta og fegursta saga, sem gerzt hefur í heim- inum. Upphaf hennar er um frelsarann Jesúm Krist sjálfan. Það er alþjóð kunnugt af Nýjatestamentinu, að „náð Guðs hefir opinberazt sáluhjálpleg 'öllúm mönn- um“ í Kristi Jesú, og að guðspjöllin, „sagan um allt sem Jesús gjörði og kenndi“ endar, eins og eðlilegt er, með kristniboðsskipun: „Farið og gjörið allar þjóðir að mín- um lærisveinum,“ „.... vinir hans' boðin þau fá: Eg hjörð mina og ríki í hendur þeim fel, sem hlotnaðist dýrð mina að sjá." Undirbúningsárin. Christian Friedrich Schwartz hét einn piltanna, sem innrituðust í skóla heittrúarmanna i Halle árið 1746, þá tvítugur að aldri. Enginn þeirra mörgu nemenda, sem í skólanum voru, muriu hafa hugsað til dvalarinnar þar með meiri eftirvænt- ingu en hann, og heldur enginn orðið fyrir meiri vonbrigðum —til að byrja með. - - 12

x

Kristilegt stúdentablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.