Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Qupperneq 12

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Qupperneq 12
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ A kristilegu stúdentamóti Norrænt, kristilegt stúdentamót var haldið í Kristiansand í Noregi 4.—10. júlí með 1000 þátttakendum, þar af tveim frá lslandi. — Frásögn Ástráðs Sigursteindórssonar, cand. theol. Suðurlandsjárnbrautin fikaði sig áfram suður eftir Noregi, um fallega dali, fram með snar- bröttum, skógivöxnum hlíðum og í gegnum löng og dimm jarðgöng. En því miður naut maður illa hins dásamlega landslags Vestur-Noregs, því að rigning var mikil og þoka á fjöllum. Ég var á leið til Kristiansands og hafði stigið svo að segja beint úr flugvélinni á Sola-flugvellinum i járn- brautina. Lestin var yfirfull af fólki, hvert sæti skipað og setið á ferðapokum og farangri, livar sem auður blettur fannst. Loftið var mollulegt og ferðin þreytandi, svo að maður taldi stundirnar með óþreyju, unz leiðarenda næði. Klukkan 3 rann lestin inn á járnbrautarstöð- ina í Kristiansand. Þegar út á götur borgarinnar kom, blöstu við, hvert sem litið var, hópar af ungum stúdentum, norskum, dönskum, sænskum Á kristilegu stúdentamóti. 12 og finnskum. Var auðséð, að stúdentamótið, sem þarna var haldið, setti svip sinn á borgina. Á aðaltorginu, fyrir framan Dómkirkjuna, blöktu fánar allra Norðurlandanna, auk fána ýmissa annarra þjóða, sem gesti áttu á mótinu. Það var auðvelt verk að spyrja til vegar að skrifstofu mótsins. Þar fékk maður allar nauð- synlegar upplýsingar um dvalarstað og annað, þar hitti maður líka strax ýmsa góða kunningja og varð þess brátt var, að maður var kominn í góðan félagsskap. Stúdentamót það, sem haldið var í Kristiansand dagana 4.—10. júlí s.l., var Norrænt, kristilegt stúdentamót á bibliulegum grundvelli. Voru í sumar liðin 25 ár, síðan fyrsta mótið var haldið. Hafa þau verið haldin árlega á friðartímum til skiptis á Norðurlöndunum fjórum. Voru í þetta sinn saman komnir rúmlega 1000 stúdentar, um 100 frá Danmörku, 50 frá Svíþjóð, 50 frá Finn- landi, 2 frá lslandi og aðrir frá Noregi. Frum- kvæðið að mótum þessum á „Norges kristelige studentlag“, scm er lang öflugast allra stúdenta- félaga þar í landi. Þekktastur maður þeirrar hreyf- ingar er dr. O. Ilalleshy, prófessor. Annar stærsti aðili að þessum mótum er nú orðið kristilega stúdentasambandið finnska, sem mun vera hlut- fallslega einn sterkasti kristilegi stúdentafélags- skapur í heimi. Kristilegt stúdentafélag hér stend- ur einnig í nánú sambandi við þessa hreyfingu. Á mótum þessum safnast menntaæskan sam- an um hið gamla, en sígilda fagnaðarerindi um Jesúm Krist, Guðs son, eins og það er að finna í Heilagri ritningu og hefur verið flutt um allar aldir. Hver dagur hefst með sambænastundum, j

x

Kristilegt stúdentablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.