Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Side 13

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Side 13
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ síðan er biblíulestur og auk þess eitl til tvö er- indi um ákveðin, kristileg efni og loks almennar samkomur á kvöldin. Minni hópfundir eru og haldnir öðru hvoru. Kröftugur og hrífandi söng- ur einkennir mjög þessi mót, og sá andi, sem hvílir yfir allri samverunni, knýtir stúdenta- skarann heilögum samfélagsböndum. Margir telja sig eiga upphaf lífshamingju sinnar því að þakka, að þeim auðnaðist að taka þátt í slíku móti. Allur undirbúningur þessa mikla móts hafði að sjálfsögðu verið geysimikið verk, og við kom- umst brátt að raun um, að hann hafði verið með miklum ágætum af hendi leystur. Bæjaryfirvöldin höfðu lagt fram styrk til mótsins og sýnt í hví- vetna einstaka velvild. Bæjarbúar höfðu sýnt fádæma fórnfýsi og gestrisni. öllum útlending- unum hafði verið komið fyrir á einkaheimilum, en Norðmennirnir höfðu flestir búið um sig i stórri skólabyggingu og lágu l)ar á flatsængum. Matazt var í tveim stórum samkomusölum, og þurfti um 300 stúlkur til að annast matreiðslu og annan beina. Voru það allt ungar, trúaðar stúlkur, og vörðu margar þeirra mestum hluta sumarleyfis síns til þeirra starfa án nokkurs endurgjalds. Allar sameiginlegar samkomur mótsins fóru fram í Dómkirkjunni, sem er hin glæsilegasta bygging, en hópfundir voru ýmist haldnir í minni samkomusölum eða í heimahúsum. Okkur Islendingunum hafði báðum verið kom- ið fyrir á heimili trúaðs kaupmanns, Kristiansen að nafni. Var okkur tekið þar frábærlega vel og búið hið bezta að okkur á allan hátt, enda var bæði húsrúm og hjartarúm í bezta lagi. Auk okk- ar voru hýstir á þessu heimili tveir aðrir móls- gestir, einn Svíi og Norðmaður. Var ol't gest- kvæmt á heimilinu á kvöldin, og gafst okkur þá gott tækifæri til að kynnast ýmsum forystumönn- um í stúdentahreyfingunni og andlegum málum bæjarins. Sunnudagurinn var einn viðburðaríkasti dag- ur mótsins. Um morguninn voru haldnar guðsþjónustur í tveim kirlcjum í bænum. I Dómkirkjunni prédik- aði dr. O. Hallesby, prófessor, og var kirkjan troðfull af fólki. I guðsþjónustunni fór fram alt- Dómkirkjan í Kristiansand. arisganga, svo sem venja er við hámessu, og var þar mikill fjöldi allarisgesta. Síðdegis þennan dag var ráðin skerjagarðsferð. Höfðu íbúar Flekkeröy, sem eru um 1000 að tölu, boðið þátttakendum og bæjarbúum út í eyjuna, en hún er yzt í skerjagarðinum. Eru flestir eyjar- skeggjar lifandi trúaðir menn. Stunda þeir fisk- veiðar og eiga mikinn og góðan vélbátaflota. Kl. um 2 lögðu um 40 vélbátar að bryggju, tóku gestina og sigldu út til Flekkeröy. Veður var ekki sem tryggast, nokkuð hvasst og útlit fyrir skúr- ir, svo að þátttaka bæjarbúa varð ekki eins mikil og annars liefði orðið. Þó voru þátttakendur á- ætlaðir um 4000. Samkoma var haldin á stóru túni inni á eyj- unni. Lék þar stór lúðraflokkur, og söngflokkur söng. Ræðumenn voru fjórir, sinn frá hverju landi. Að samkomunni lokinni fóru fram veitingar, og veittu eyjarskeggjar af mikilli rausn. Fengu stúdentarnir allt ókeypis, en bæjarbúum var gert 13

x

Kristilegt stúdentablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.