Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Side 18

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Side 18
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ allra ])eztu kveðjur. Vér erum glaðir og þakk- látir fyrir þau persónulegu sambönd, sem kom- izt liafa á við yður eftir slríðið fyrir þá fulltrúa, sem komið liafa frá yður til vor. Vér vonumst til, að þau sambönd eigi el'tir að styrkjast enn meir. Vér mundum gleðjast innilega, ef auðnast mætti að halda norrænt, kristilegt stúdentamót á Islandi eitthvert næsta sumar. Það mundi líka verða til þess að tengja oss sterkari böndum en nokkru sinni fyrr. Vér skulum standa saman að bæn og fórn. Vér skulum knvja á, þangað til Guð mun opna dyrn- ar inn til menntaæsku Norðurlanda. Sverre Magelsen. Með mikilli gleði skrifa ég kveðju til mennta- æsku Islands frá oss hér í Svíþjóð. Þegar minnzt er á eyjuna yðar úti i Atlanzhafi hér hjá oss, þá köllum vér hana helzt „söguríku eyjuna“. Það stafar víst helzt af því, að vér vitum svo lítið um Island nú á dögum. Vér höfum lesið gömlu konungasögurnar yðar í skólunum, en um liagi yðar i dag vitum vér of lítið. — Þér vitið áreið- anlega meira um oss, en samt gæti ég trúað, að yður þætti gaman að heyra um hagi sænskrar skólaæsku, — og þá einkum um hagi trúaðrar skólaæsku. Ég held, að ég ætti að bjóða yður með mér í smá-heimsókn i einn af skólum vorum. Vér tökum næturhraðlestina beint suður eftir langa landinu voru til Suður-Svíþjóðar. Vér höld- um út að ströndinni i Bleking og komum í þekkt- an sænskan bæ, sem nefnist Karlskrona. Þú kann- ast líklega við hann, þar er stærsta flotahöfn vor. Á járnbrautarstöðinni um morguninn mætir oss piltur, sem Benkt heit'ir og er prestssonur. 1 liaust varð hann formaður í Kristilega skóla- félaginu þarna. Á leiðinni upp í skólann, sem í eru um 800 nemendur, segir Benkt oss frá le- lagsstarfinu. „Við höfum stórt félag“, segir hann, „og í haust höfum við lagt mikið kapp á að vinna félaga okkar. Við komum saman einu sinni á viku til biblíulestrar. 1 annað hvert skipti fáum við prest eða kennara til að stjórna, en í hitt skiptið stjórnar einhver af nemendunum. Við reynum að tala l)látt áfram og hispurslaust og sveigja að þeim hlutum, sem við vitum, að eru ofarlega i huga nemendanna. Eftir það höfurn við alltaf sameiginlega bænastund. Auk þessa höf- um við skipt félaginu í smáhópa með 5—6 nem- endum i hverjum. Eiga þeir síðan að komg sam- an á heimilum til samtalsfunda. Þangað bjóðum við félögum okkar, sem ekki eru trúaðir, og vitn- um fyrir þeim blátt áfram og persónulega.“ — Nú erum vér komnir að skólanum. Piltar og stúlk- ur streyma inn um bliðið og safnasl lil morg- unbænar. 1 öllum sænskum skólum hefst liver dagur með sameiginlegum morgunbænum fyrir alla nemendur. Vér fylgjumst með straumnum inn í stóra samkomusalinn, Benkt hvíslar að oss, að i dag eigi enginn af kennurunum að tala, held- ur einn af trúuðu nemendunum, stúlka, sem sé í stjórn skólasamtakanna. Það er sunginn einn sálmur, og því næst stendur stúlkan upp. Hún er dálítið föl, en þó skín djörfung úr svip henn- ar. Hún kvaðst alltaf hafa átt erfitt með að trúa á Krist á jal'n einfaldan hátt og Biblían lýsir því, að menn hafi gert. En svo segist hún liafa feng- ið að vera með á kristilegu, norrænu skólamóti, og þá hafi luin komið auga á, hve einfalt þetta væri. Þá hafi hún komið auga á tilgang lifsins og líf hennar orðið auðugra, gleðiríkara og örugg- ara. — Allur liinn mikli nemendahópur situr graf- kyrr og hlustar á. Það kemur stundum fyrir, að ýmsir dunda við að naga á sér neglurnar til þess að drepa tímann, meðan morgunbænirnar fara lram, en í dag talar ein úr þeirra eigin hópi af hreinskilni, einlægni og trúarfullvissu. Þá var ekki hægt annað en að hlusta. Að morgunbænunum loknum tekur skólastjórinn þétt í hönd hennar og þakkar lienni með hlýjum orðum fyrir vitnis- burðinn. „Trúuðu nemendurnir eru bezti hlutinn af skólanum“, segir hann. Framh. á 23. síðu. 18

x

Kristilegt stúdentablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.