Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 21

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Blaðsíða 21
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ ^acjnúó (ju&muncláóon átucl. tlieol. , Kristniboðshreyfing stiídenta Grein þessi er rituð i tilefni af hálfrar aldar af- mæli kristniboðshreyfingar stúdenta á Norðurlönd- um, sem haldið var hátíðlegt í Osló dagana 26. febr. —4. marz 1946. Greinarhöf. var þar fulltrúi Kristi- legs stúdentafélags í boði kristniboðsdeildar norska, kristilega stúdentafélagsins. Hér verður fyrst til glöggvunar ókunnugum stuttlega sagt frá upphafi kristniboðshreyfingar- innar meðal stúdenta, sem víðast hefur verið nefnd Sjálfboðalið stúdenta (á norsku: Akadem- iske frivillige misjonsforbund, og á ensku: Stud- ent Volunteer Movement). Hreyfingin á upptök sín í Ameríku, og var Robert Wilder helzti forvígismaður hennar frá upphafi. Árið 1886 var merkisár í sögu hreyf- ingarinnar. Það ár var haldið stúdentamótið fræga á Mont Hermon í hoði vakningaprédikarans Dwight L. Moody. Wilder var fulltrúi Princeton- háskóla á mótinu. Systir hans sagði við hann, er liann hélt af stað á mótið: „Ég trúi því, að eldurinn falli á Mont Hermon og 100 sjálfboða- liðar bætist í hópinn."1 Mót þetta stóð í 27 daga og átti alls ekki að vérða kristniboðsmót, cn fyr- ir atbeina Wilders og annarra áhugamanna um kristniboð fékkst Moody til að taka útbreiðslu kristinnar trúar meðal heiðinna þjóða til um- ræðu á mótinu. Allir fundu, að eitthvað mikilvægt var að ger- ast eftir samkomuna, sem haldin var með ein- kunnarorðunum: „All should go, and go lo all.“ Næsta kristnihoðssamkoma var nefnd: „The meet- ing of the ten nations." Tíu stúdentar töluðu á samkomunni um kristnihoð. Um kvöldið kom vakningin. Margir liáðu langa og harða haráttu þá nótt. Hjá þeim hrann spurningin: Á ég að verða kristnihoði? Það voru nákvæmlega 100 stúdentar, sem l>rstu yfir því á þessu móti, að þeir væru reiðubúnir að verða kristniboðar, ef Guð vildi. Meðal þeirra var stúdentaleiðtoginn frægi, John R. Mott. Vakningin á Mont Hermon barst út meðal menntamanna í Bandaríkjunum. Bráðlega var tala stúdenta, sem undirritað höfðu sjálfboðaliðsheit- ið, orðin yfir 4000, en haldið var áfram að hiðja um enn fleiri -— „as many thousands that arc needed to evangelise the world.“ Eldurinn frá Mont Hermon barst fljótlega yfir hafið til Englands, og árið 1896 var haldið stúd- entamót í Liverpool til þess að kynna hreyfing- una í Evrópu. Þangað komu um þúsund stúd- entar frá mörgum Evrópulöndum, og voru nokkr- ir Danir og Norðmenn í þeirra hópi. Hreyfingin barst því skjótlega til Norðurlanda, og áttu Ro- bert Wilder og Englendingurinn Donald Frazer mikinn þátt í þvi. Það var sem sé rétt fyrir aldamótin siðustu, sem kristniboðshreyfing stúdenta barst til Norð- urlanda. Voru þá stofnaðar la’istnihoðsdeildir inn- an kristilegu stúdcntafélaganna við hina mörgu háskóla á Norðurlöndum. Hafa deildirnar, sem nefndust „Akademiske frivillige misjonsforhund“ (A.F.M.F.), lifað við flesta háskólana fram á þennan dag. A.F.M.F. í Osló, sem er sérstök deild innan „Norges kristelige studentlag“, liefur ávallt verið öflugust á Norðurlöndum. Á árunum 1905 —1926 var samt mikil hnignun i starfi deildar- innar. Var það á þeim árum, sem nýguðfræðin lagði sína köldu hönd á allt kristilegt stúdenta- starf í Noregi. En 1924 klofnar „Norges kristelige studenterforbund“ vegna nýguðfræðinnar, og „Norges kristelige studentlag“ er stofnað undir forystu próf. dr. Ole Halleshy. A.F.M.F. gengur tveim árum síðar í „Norges kristelige studentlag“. Hófst nú að nýju blómatími í hinu nýstofnaða félagi. Félagið í heild var pietistisk vakninga- 21

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.