Kristilegt stúdentablað - 01.12.1947, Page 31
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ
fá'UatfH (jubánaf láruAfattut.
I tilefni af því, að á næsta ári eru liðin 10 ár
frá hinu sviplega slysi, er Guðrún Lárusdóttii',
drukknaði, ásamt tveim dætrum sínum í Tungu-
fljóti, hefur verið ákveðið að gefa út heildar úl-
gáfu af ritum hennar.
Frú Guðrún var sem kunnugt er einn af mikil-
virkustu og vinsælustu kvenrithöfundum vorum.
Margt af því, scm hún hefur skrifað, er á víð og
dreif í blöðum og tímaritum, og flest ófáanlegt
með öllu. Er ekki vansalaust, að slíku verðmæti
skuli ekki haldið til haga í vcrðugri útgáfu.
Sonur frúarinnar, Lárus Sigurbjörnsson, sér
um útgáfuna og maður hennar, séra Sigurbjörn
Á. Gíslason, mun rita inngang með æviágripi
hennar.
Ætlazt er til, að verkið komi út í ágúst 1948
og verði í 4 stórum bindum (um 400 bls. hvert).
Þeir, sem gerast áskrifendur fyrir áramót, fá verk-
ið með áskriftaverði. Áskriftarlistar liggja frammi
lijá bóksölum og mörgum kvenfélögum og kristi-
legum félögum.
Áskriftarverö: Kr. 100,00 óbundið.
— 140,00 í shirtingsbandi.
— 200,00 í skinnbandi.
Schagertih íilja
Efnisskipting:
1. bindi: Á heimleið (skáldsaga).
Brúðargjöfin (skáldsaga).
Afi og amma (söguþættir).
Fátækt (skáldsaga).
2 bindi: Bræðurnir (skáldsaga).
Gamla húsið (skáldsaga).
8. bindi: Þess bera menn sár (skálds.).
Ymsar smásögur.
4. bindi: Systurnar (skáldsaga).
Hvar er bróðir þinn ? (erindi ).
Ymsar smásögur og erindi.
Rgarmi
hrLstile^t lieimi UU.
Flytur greinar um kristileg málefni
og fréttir af kristilegu staiíi innan-
lands og utan. Áskriftargjald 10 kr.
á ári.
Afgreiðsla: Þórsgötu 4.
Sími 3504. Pósthólf 651.
Víðförli
tlmarit um cju^rœ&i
ocf lir/jjumáf.
Kemur út fjórum sinnum á ári, sam-
tals 256 bls. Áskriftarverð 40 kr. árg.
Askrifendur snúi sér til Helgafells,
Garðasti'æti 17. Sími 5314,
Pósthólf 263.