Stundin - 01.02.1941, Side 3

Stundin - 01.02.1941, Side 3
Broddi Jóhannesson: Hótt í Finnlanöi FINNSK haustnótt er þögul og dimm, og í eimreiðinni brenna aðeins kertaljós, því að fyrir nokkrum mánuðum börð- ust Finnar gegn margföldu ofurefli fyrir frelsi sínu, og í þessari baráttu skemmdust einn- ig raflagnirnar í eimreiðinni, sem flytur íslendingana áleiðis til Rovaniemi. Eimreiðin sjálf er fátækleg, því að Finnar fórn- uðu blóði og eignum í barátt- unni fyrir sjálfstæði þjóðarinn- ar, en vagnstjórinn og sveinar hans vita takmark sitt, enda þótt nóttin sé dimm, og þau augu, er leiðarinnar gæta, eru hvöss, og hendurnar, sem á tækjunum taka, eru öruggar. Við vitum ekki nöfn þessara manna, sem ráða för okkar gegnum finnsku haustnóttina, en við skynjum, að það eru ábyrgir menn. Við skilj- um ekki mál þeirra, en við mæt- um samúð þeirra í hverju auga, og við finnum, að þeir hafa allir lagt fram það dýrasta og mesta, sem af dauðlegum mönnum verður krafið. Á trébekkjum og gólfi finnsk- rar einmreiðar, sem ber ör eftir baráttu heillar þjóðar, sitja eða liggja á þriðja hundrað íslend- ingar, hraustir, ungir sveinar og glæstar meyjar, börn, sem eru tæplega risin úr vöggu, og eldri einstaklingar, með svip ferða- mannsins, sem er nær markinu kominn, með djörfum svip ís- lt lendingsins, sem mætti ýmsum erfiðleikum og sigraði þá og guggnar heldur ekki við að leggja af stað í för, sem giftan ein má meiru um ráða en góður eða lélegur vilji manna. Á trébekkjum og gólfi særðr- ar, finnskrar eimreiðar sitja á þriðja hundrar íslendingar og syngja við kertaljós. Og þögula finnska haustnóttin hlustar á söng þeirra, e. t. v. skynjar hún, að hér eru einnig synir og dætur einmana og voldugrar náttúru á ferð. Frá finnska skógium berast við og við brestir brotnandi greina, en fá brjóstum næturinn- ar kveður við einmana bergmál. Fyrir nokkrum mánuðum brustu margar greinar í lífmeiði finn- sku þjóðarinnar, og þá hafa einnig kveðið við djúp-sár berg- mál frá brjóstum hennar. En þó að grein hrökkvi, stendur stofninn, þó að margir hraustir synir deyi, lifir þjóðin. Á þriðja hundrað fslendingar syngja við kertaljós í þögn fram- andi, dimmrar nætur, en í söngv um þeirra hljómar ein sál, ein vitund og einnn vilji. í hljóm- falíi söngva þeirra slær eitt hjarta, hjarta þess sem er á heimleið. Oft sáum við íslend- inga á mannamótum, og sinni þeirra voru mörg, aldrei fann ég eitt hjarta slá í brjósti þeirra allra nema hér. Hér var hvorki hár né lár, herra eða þræll, þiggjandi né gefandi, hér voru aðeins íslendingar að fara heim. Ég hefi einu sinni séð fámenn- an hóp íslenzkra sjó- og verka- manna taka höndum saman í flæðarmáli norðlenzkrar strand- ar á íslenzkri haustnótt til að bjarga félaga þeirra undan æð- andi brimföllum, og máttur þeirrar stundar var svo mikill, að engin þeirra átti hik eða hlédrægni, og aðeins ein vitund gagntók þá alla, og það and- varp þakklætis, er steig frá brjóstum þeirra að fengnum sigri, var andvarp sama þakk- lætis. Finnska nóttin var önnur, og hópurinn var stærrþ en ein- ingin var svipuð. Þannig rann særð finnsk eimreið gegnum finnsku haustnóttina, augu henn ar voru hetjur þjóðar, sem ekki varð sigruð, og við kertaljós hennar sungu íslendingar. NOKKRUM mílum sunnan heimskautfjlínu liggur Rovaniemi. Þar líkur járnbraut arlínunni,' og þar byrjar akveg- urinn til Lillehamari við Pet- samofjörð. Þreytt, en hamingju- söm stígum við úr lestinni og setjumst að kaffi og brauði í gistihúsinu í Rovaniemi. Það er hálfgerður hrollur í íslendingun um, og þeir taka rösklega til góð gerðanna, sem eru framreiddar af hlýju og alúð gefandi bræðra þjóðar. Við vitum ekki fyrr en síðar, að okkur voru gefnar veitingar þessar til þakklætis fyrir þá litlu hjálp, en fullu samúð, sem íslenzka þjóðin veitti Finnum í baráttu þeirra fyrir þjóðlegu sjálfstðæi. Og þó að við værum þakklátir fyrir þessar góðgerðir, efast ég um, að við höfum gert okku fylli- lega ljóst, hversu ríkulegar þær voru, því að matur er dýrmætur þeim, sem lítinn eiga. Rovaniemi liggur í þögn og faðmi finnsku skóganna, en við akveginn til hafnarinar við Pet- samofjörðinn. Öld eftir öld hefir á þessum slóðum lifað þjóð, sem STUNDIN 3

x

Stundin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.