Stundin - 01.02.1941, Page 6

Stundin - 01.02.1941, Page 6
Valentin Katajew. Skeggjaði hvítvoðungurinn egar ritstjóri myndskreytts Sovét-tímarits byrjaði út- gáfu þess fyrir ári síðan, var hann vonglaður, djarfur og hlaðinn hugsjónum. Ég minnist þess ennþá, hvernig þessi fín- gerði, ungi maður sagði við samverkamenn sína, eftir að hafa vikið þeim lítilli glaðningu sem fyrirframgreiðslu: — Já, vinir mínir, ég bið ykkur sér- staklega að beina allri athygli ykkar að því, að tímarit okkar á að vera hreint Sovét-tímarit, hrein-rautt, ef svo mætti segja. Og þess vegna, elsku vinir, þið skiljið, engir tvíhöfða kálfar, engir tvíburar, er vekja undr- un og athygli. Sovét-lífið, það og aðeins það á að vera óþrjót- andi efni okkar. Burt með borg- aralegar undrafréttir vissra blaða! Fjandinn hirði hundinn, sem reykir sígarettur og les Kvöldblaðið, sem er prentað í 40 000 eintökum! — Fjandinn hirði hundinn, sem les Kvöldblaðið, tóku sam- verkamennirnir undir einum munni og byrjuðu vinnu sína. Þetta var fyrir ári síðan. Sími ritstjórans hringdi, hann tók tólið af og hamingjusamur roði færðist yfir andlit hans. — Hlustið, hlustið, góðir hálsar, menn hafa fundið hvítvoðung með alskegg, já, meira að segja með herforingjaskegg, nei, þetta er dásamlegt. Sækið myndasmiðinn! Hvar er mynda- smiðurinn? Er hann ekki við? Sendið bifreiðina undir eins eft- ir myndasmiðnum! — Eftir svona fjórðung stundar kom myndasmiðurinn inn til rit- stjórans. — Farið þér, farið þér, æpti ritstjórinn og náði naum- ast öndinni vegna ákafa, farið þér undir eins og myndið hvít- voðunginn með alskeggið. Þetta er undrafrétt, undrunarfrétt! Aðalatriðið er, að keppinautar okkar verði ekki á undan og nái frá okkur skeggjaða hvít- voðungnum! — Verið þér alveg rólegur, sagði myndasmiðurinn, við komum æfinlega á miðviku- dögum, en keppinautarnir aldr- ei fyrr en á laugardögum, við munum verða þeir fyrstu, er sýnum veröldinni hvítvoðung með vangaskegg. — En þeir, sem koma á laugardögum, lágu heldur ekki fram á lappir sinar. « 9jí íj< Daginn eftir kom ritstjórinn mjög snemma á skrifstofuna. — Er myndasmiðurinn kominn? spurði hann skrifarann. — Nei, hann er enn ekki kominn. Rit- stjórinn kveikti óþolinmóður í sígarettu og til þess að stytta biðina símaði hann til þeirra, er koma á laugardögum. Halló! Vitið þið ekkert ennþá? — Hvað nú, hvað nú? spurði rit- stjórinn þeim megin. — Hvít- voðungurinn með alskeggið . . — Nei, og. . . . ? — Og með herforingjaskegg .... Hvítvoðungur. . . . — Nú, nú, hvað er svo sem með hann? — Komið þið með mynd af honum? — Auðvitað gerum við það. Hvenær? — Á laugardag? — Vitanlega, á laugardag. Okkur liggur ekkert á. — Og við á miðvikudaginn, hí, hí. — Jæja, til hamingju. Ritstjórinn lagði frá sér tólið. — Já, takið þið nú við því, okkur liggur ekkert á, segir hann, en samt springur hann sjálfsagt af öfund. Nei, þetta er alls ekkert grín, hvítvoðung- ur með skegg kemur einu sinni fyrir á þúsund árum. Myndasmiðurinn opnaði dyrn ar. — Jæja, hvernig gengur það? Látið okkur sjá. Myndá- smiðurinn yppti öxlum. — Það er svo sem ekkert sérstakt að sjá, í fyrsta lagi er hann ekki tveggja mánaða, heldur fimm ára gamall, í öðru lagi hefir hann ekkert alskegg, og í þriðja lagi hefir hann ekkert herfor- ingjaskegg, gerið þér svo vel! Myndasmiðurinn rétti ritstjór- anum myndina. — Hm, það var einkennilegt, eins og hvert annað barn, ekk- ert sérstakt við það að athuga, það var nú verri sagan, það var nú verri sagan. — Ég held, að ég hafi svo sem sagt það strax, sagði myndasmiðurinn, — það var alls ekki nauðsynlegt að flýta sér svona mikið, aðeins óþarfa ónæði fyrir barnið. All- an daginn er verið að mynda það. Rétt á undan mér voru þeir frá laugardagsblaðinu þar, það var ljóshærður, frekur ná- ungi, svei mér, ef hann var ekki heila klukkustund að mynda barnið og hleypti eng- um inn í herbergið. Ritstjórinn horfði vonsvikinn á mynd undrabarnsins. — Hér er ekki allt með felldu, sagði hann svipþungur, — mér getur ekki hafa skjátlast. Það var sagt, að það hefði mikið, svart alskegg, og herforingjaskegg í viðbót, einnig svart. . . . mikið skegg. ... ég skil þetta ekki. Ritstjórinn greip fumandi til símatólsins: — Halló, halló, þér segið, að þér komið með mynd af undrabarninu á laugardag- inn, ekki satt? — Alveg rétt, það munum við gera. 6 STUNDIN

x

Stundin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.