Stundin - 01.02.1941, Page 8

Stundin - 01.02.1941, Page 8
Góð hegðun og þjálfun í því að koma vel fram eru varanleg auðæfi, sem hverjum er í lófa lagið að koma yfir veraldarinnar hæstu tollmúra, ef hann smýgur þar inn sjálfur, og eng- inn megnar að svifta neinn þessum alþjóðagjaldeyri. Sömu meginreglurnar liggja til grund vallar lýtalausri framkomu í fjölmenni meðal allra menntaðra þjóða. — Þessi mynd er tekin á veitingahúsi, þar sem nokkrir kunningjar hafa komið saman til að skemmta sér, en hvern- ig, sem á því stendur, er ótal margt við framgöngu þess að athuga, og það var einmitt vegna þess, sem myndin var tekin. — Nú skuluð þið spreyta ykkur á að finna samkvæmis- vankantana á myndinni, skrifið síðan niður hjá ykkur niðurstöðutöluna, sláið svo upp á bls. 21. þeim þykir sómi sær að dólgs- hættinum og telja ruddaskap- inn til þjóðlegra dyggða, er beri vott um hreysti og karl- mennsku. Þessa misskilnings gætir víða, og hann á sér dýpri rætur í meðvitund margra en þá sjálfa grunar. íslenzkir drykkjurútar eru ófriðsömustu, sjálfhælnustu og dauðleiðinleg- ustu fylliraftar í heimi, -og af fylliröftunum má ávallt betur marka menningarstig þjóða en á bókhlöðum og listasöfnum. í þá hafa lekið óhreinindin úr þeim, sem yfir fljóta og eftir soranum greinast sjúkdómarn- ir! Hér á landi hefir engin sam- kvæmismenning verið síð- an í fornöld. Aftur á móti hefir þjóðin á seinni árum haft mikla tilhneigingu til að apa eftir 8 STUNDIN

x

Stundin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.