Stundin - 01.02.1941, Page 16

Stundin - 01.02.1941, Page 16
Skipulagningin. (Framh.) starfi sínu 1911, dró hann sam- an aðalárangur æfistarfs síns í þessi djörfu orð: „Að minnsta kosti 50.000 verkamenn í Banda- ríkjunum vinna eftir kerfi mínu, og þeir hljóta 30—100% meiri laun en aðrir þeim jafn vígir, en fyrirtæki þau, sem þeir starfa hjá, vaxa að vel- gengni fremur en nokkru sinni. Hjá þessum fyrirtækjum hefir framleiðsla hvers manns og hverrar vélar vaxið um helm- ing að meðaltali. í staðinn fyrir tortryggni og jafnvel beina bar- áttu, sem einkenndi gamla fram- leiðslufyrirkomulagið, hefst nú óþvinguð samvinna milli stjórn- ar og verkamanna“. Við þessa síðustu fullyrðingu er að minnsta kosti óhætt að gera nokkrar athugasemdir. Vissulega náði Taylor meðal hinna hreinræktuðu amerik- önsku verkamanna þeirri við- unun, sem leiðir af hærri laun- um og léttari lífsháttum, en bæði í Ameríku og einkum í Evrópu, þar sem kerfi hans smám saman ruddi sér til rúms, veittu verkamennirnir því mót- stöðu. Og ástæðan til þess er meginvilla Taylors: Hann taldi mannlegan líkama allt um of vera vél, sem eyddi allra minnsta vöðvaafli, en það, sem hann ekki skeytti um, enda þótt hann kappkostaði að full- yrða hið gagnstæða, var, að maðurinn er ekki vél, hann er meira en vöðvakerfið, beina- grindin og taugarnar, hann hefir einnig sál. Með öllum kostum sínum var Taylor samt postuli vélræningarinnar, og eftir að umbótum hans hafði verið kom- ið á, kom voldugt andsvar gegn þeim, sem vafalaust var einnig af góðum rótum runnið. í raun og veru mun ekki hægt að ásaka hann um, að ,,kerfi“ hans leiddi til aukins atvinnuleysis. Ef allt þjóðfélagið hefði verið skipulagt Framhald á næstu síðu. þýðast hann. „Taktu mig til konu, eða taktu mig ekki, en þangað til við erum gengin í hjónaband má það ekki koma fyrir.“ Og það var sama, hvernig hann reyndi að telja hana á vilja sinn, hún lét sig ekki. Vassilij kom heim: „Pabbi, í dag hefi ég fundið brúði, og hún mun verða góð húsmóðir og góð kona.“ Foreldrarnir gáfu þeim blessun sína og þau giftust. Vassilij bjó með Ljúsku í ást og eindrægni. Þau lögðu ofur- ást hvort á annað, þau ætluðu aldrei að skilja, en samt urðu þau að gera það. Einu sinni fór Vassilij með skipi til ókunns lands til að selja varning sinn og kaupa annan nýjan. Hann kvaddi konu sína og hlaut góðan byr og seldi allan varning sinn. Konung- urinn þar í landi bauð öllum kaupmönnunum til veizlu, og þeir drukku við glaum og gleði. Og er gleðin var mikil orðin, tóku menn að gorta, einn af auðæfum sínum, annar af fimi sinni. Vassilij einn þagði. „Getur þú ekki stært þig af neinu, kaupmaður?“ spurði konungur. ,,Af hverju ætti ég svo sem að stæra mig, nema ef til vill af tryggu konunni minni? Ég á konu, sem er svo trygg, að enginn getur tælt hana til lags við sig.“ Þá gall í einum: „Þetta er ekki satt, ég skal sanna það.“ Hinir gestirnir hlýddu á orð hans og skrifuðu þau hjá sér. Nú gekk konungurinn til Vassilij og mælti: „Ef þú hefir borið fram rétt mál og kona þín er svona trygg, þá færðu mikil auðæfi að launum, en hafir þú logið, lætur þú höfuð þitt.“ En hinn, er ekki trúði tryggð konunnar, reis frá borði og gekk til skips. Hann kom til borgar Vassilijs og gekk beina leið til húss hans. Og hann reynir að tæla Ljúsku til lags við sig, lofar henni miklu fé að launum og lætur hana enga stund í friði. Þá mælti Ljúska við hann: „Ég ætla að spyrja fólkið, hvað það ráðleggur mér, það ætla ég að gera.“ Síðan sagði hún tengdaföður sínum frá því. „Hvað ráðleggur þú mér?“ spurði hún. „Maður þinn hefir ekki auðkennt þig gegn því, svo að þér leyfist það.“ „Nei, þú dæmir ekki fallega," sagði Ljúska og gekk til tengdamóður sinnar. En henni fóru eins orð og gamla manninum. Þá fór Ljúska til skriftaföður síns og sagði honum frá öllu saman. „Brjóttu ekki lögmálið," svaraði skriftafaðirinn, „gullið, sem hann býður þér, er hé- gómlegt fánýti, en tryggð þína getur enginn brotið, og hún verður ekki goldin við neinu.“ Svo kom Ljúska heim, og hinn beið þegar eftir henni. „Jæja, hvað sagði fólkið?“ og hún sagði honum alla söguna, en hann lét ekki af ástleitni sinni. Og nóttin féll yfir, og Ljúska vissi engin ráð til bjargar, hún losnaði ekki við hann. Þá segir hún loks: „Bíddu, unz aldimmt er orðið, þá kem ég.“ Og hún bauð honum að ganga til svefnherbergis síns, en sjálf fór hún fram í eldhús til Aljösku. Henni þótti vænt um Al- jösku sem systur sína, og hún þjónaði henni dyggilega. Nú tók Ljúska að grátbæna hana: „Hafðu fataskipti við mig og farðu til hans.“ Aljaska var ófús í byrjun, hún lifði enn sem nunna og hóf aldrei augu sín. En loks lét hún undan bæn- unum, svo mjög elskaði hún Ljúsku. Ljúska færði hana nú í klæði sín og dró að lokum hring sinn á hönd hennar. Og Aljúska fór í stað Ljúsku. En hinn 16 STUNDIN

x

Stundin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.