Stundin - 01.02.1941, Blaðsíða 17

Stundin - 01.02.1941, Blaðsíða 17
sagði ekki eitt aukatekið orð, heldur tók að draga hringinn af fingri hennar. En hringurinn var þr.öngur, hann bisaði lengi við, en tókst ekki, og loks skar hann af henni fingurinn og stakk honum með hringnum í vasa sinn. Þá tók hann einnig klútinn með nafninu hennar, sem lá á borðinu. Og svo gerðist ekkert frekar, en hann flýtti sér á brott. Og Aljaska kom aftur fram í eldhúsið — og aðeins fing- urinn vantaði. „Hvernig gat á þessu staðið?“ Hann hafði nauðað svona lengi við hana og gerði svo ekkert annað en taka með sér fingurinn. Næsta morgun sagði hún tengdaföðurnum alla söguna. ,,Þetta merkir ekkert annað,“ sagði gamli maðurinn, ,,en að sonur okkar er í lífsháska. Við verðum að hafa hraðan á og fara til hans. Þeir hafa sjálfsagt lent í illindum.“ Þegar brugðu þau til ferðar; tengdafaðirinn Ljúska og Aljaska, sem vantaði einn fingurinn. Þegar ungi kaupmaðurinn kom heim, gekk hann þegar fyrir konung. En konungurinn kvaddi alla kaupmennina á sinn fund og mælti við Vassilij: ,,Þú hefir sagt, að enginn mætti tæla konu þína til lags við sig, en ég ætla samt að sanna þér það,“ og hann sýndi þeim hringinn og klútinn. Allir trúðu honum, einnig Vassilij trúði þessu, og hann var dæmdur til dauða. Næsta dag átti að leiða hann til gálgans. En um nóttina komu til þessa lands, í hina sömu konunglegu borg, þar sem Vassilij hafði verzlað, gamli maðurinn, Ljúska og Aljaska, og þau fengu næturgreiða hjá borgara einum. ,,Jæja, hvað er í fréttum?“ spurðu þau. ,,Á morgun verður rússneskur kaupmaður hengdur, það held ég maður verði nú að sjá. Hann hafði stært sig af því, að enginn myndi geta tælt konuna hans. En þá kom til sniðugur náungi og sannaði lygar hans, hann færði konunginum giftingarhringinn og klútinn hennar. Á morgun verður kaupmaðurinn hengdur.“ „Ætli við megum sjá það líka?“ „Vitanlega, öll borgin hefir verið kvödd til að horfa á það.“ Um nóttina kom þeim ekki dúr á augu. Snemma næsta morgun gengu þau til, þar sem mannþyrpingin var. Gamli maðurinn skildi Ljúsku og Aljösku eftir í fordyrinu, en gekk sjálfur inn og sá son sinn, sem var alsvartur, hann var orðinn svartur af áhyggjum, þegar á hann að deyja. „Hvaða fundur er þetta?“ spurði gamli maðurinn. „Þessi kaupmaður verður hengdur rétt strax,“ var honum svarað, „hann hefir stært sig af konu sinni, að enginn gæti tælt hana, en samt tókzt það.“ „Hvar er sá, sem gerði það? Komið með hann.“ „Trescht- choff,“ hrópuðu þeir. „Treschtschoff, komdu augnablik.“ „Ég bið yður að sækja einnig konurnar í fordyrinu," sagði gamli maðurinn. Og gamli maðurinn sagði alla söguna, hvernig Ljúska færði Aljösku í föt sín, og hvernig Treschtschoff skar fingur- inn af Aljösku, og Aljaska sýndi hönd sína, og fingurinn var skorinn af. Og menn sneru við vasa Treschtschoffs, sem fing- urinn hafði verið í — og hann var fullur af blóði. Nú hýrnaði yfir Vassilij, og allir urðu glaðir. Hann var leystur og beðinn um fyrirgefningu, en Tretschschoff var leidd- ur til gálgans, og þegar hafði snörunni verið brugðið um háls honum. „Hættið!“ hrópaði Vassilij, Hann fyrirgaf Treschtschoff, STUNDIN af jafnmiklum dugnaði og hið „taylorseraða" fyrirtæki, myndi kerfið hafa leitt til stytts vinnu- tíma og aukinnar framleiðslu öllum til gagns. ÞAÐ athyglisverða við starf Taylors var, að hann byrj- aði að rannsaka gaumgæfilega öll smáatriði vinnuskipulagn- ingarinnar, sem enginn hafði virt neinnar hugsunar áður. Fræg er rannsók hanns á mokstr inum. Hann komst að því með verklegri rannsókn að, rekan yrði að geta tekið um 10 kg. í hverri stungu til þess að ná beztum árangri, þar sem menn áður höfðu unnið með þungum rekufyllum í þungu og léttu efni. — Með því að smíða skóflurnar í hlutfalli við efnið og með því' að kenna verka- manninum réttar hreyfingar með réttum hraða gat hann þénað 63% meira, jafnframt því sem kostnaðurinn við mokst- urinn lækkaði um 54 %. Svo virtist, sem ekkert atriði væri of smávægilegt til þess að Taylor gæfi því gaum. Það, sem fyrir honum vakti, var að full- komna samvinnuna milli manns ins og vélarinnar. . . . Eftir að hafa rannsakað gaum- gæfilega þúsundir smáatriða byrjaði Taylor að semja megin- reglur um skipulagningu allrar verksmiðjunnar. Verkamaður- inn átti aldrei að hugsa um það. Sérhver hugsunar- vinna um starfshögunina átti að vera hugs- uð fyrirfram af sérfræðingum á rekstursskrifstofunni, verka- mennirnir áttu aðeins að hlíta nákvæmlega gefnum reglum, sem vóru skýrðar af ljósum teikningum, svo að hvergi væri um að villast. Gamla sleifarlag- ið, að verkamaðurinn sækti og flytti verkfæri, skyldi hverfa með öllu. Vélaverkamaður átti að halda sér að vél sinni, en handlangarar að færa honum allt sem hann þarfnaðist....... 17

x

Stundin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.