Stundin - 01.02.1941, Síða 19

Stundin - 01.02.1941, Síða 19
eftir því, hversu viðkvæm sál borgaranna verður á þennan hátt, svo að ef þarf að leggja á þá minnstu þvingun, þá belgj- ast þeir upp og vilja ekki þekkjast það. Og auk þess veiztu líka, að þeir skeyta engu um lögin, hvort sem þau eru skrifuð eða óskrifuð, svo að enginn sé herra þeirra. — Veit ég það, mælti hann. — Þetta er nú, vinur minn, hinn fagri og æsku- reifi uppruni einræðisins. Sami sjúkleikinn og tærði til bana fjárveldið, þrælkar einnig lýðræðið, en í því verður hann enn skæðari vegna hins ríkjandi sjálfræðis. Og í raun og veru, þar sem eitthvað er rekið út í öfgar, kemur venjulega hið gagnstæða fram sem andsvar. . . . Og þannig mun einnig, að því er virðist, hið yfirdrifna frelsi einstaklinga og ríkis ekki leiða til neins annars en þrældóms sem hins gagnstæða. Og þannig kemur einræðið eðlilega ekki eftir neitt annað stjórn- skipulag en lýðræði. Eftir hið yfirdrifna frelsi harðasti og grimmasti þrældómur. ... En þú spurðir um sjúkdóminn, er leiddi til þrældóms lýðveldisins. Ég átti við þennan ættlið latra og sóunargjarnra fanna.... Við skulum hugsa okkur, að við skiptum þegnum lýðræðisins í þrjá hópa, sem að vísu mun svara til veruleikans. Fyrsti hópurinn er sá, sem í lýð- ræðinu kemur ekik síður fram en í auðvaldinu vegna frjáls- ræðisins. En í lýðræðinu kemur hann miklu greinilegar fram. I auðvaldinu nýtur hann engrar virðingar og er ekki hleypt í embætti, þess vegna hefir hann engin skilyrði til að eflast, en í lýðræðinu hefir hann undantekningarlítið forystuna. Hinir áköfustu tala og starfa, hinir flykkjast að og suða í kringum ræðustólinn og leyfa ekki að neinn segi eitthvað annað, svo að í ríki af þessu tagi er næstum öllu stjórnað af þessum hóp. — Hinn hópurinn, er sker sig úr mergðinni, er sem hér segir: Ef allir miða að því að vinna, þá verða þeir, sem eru siðsamir í eðli sínu, venjulega hinir ríkustu. í þennan hóp mun mest hunang að sækja fyrir bíflugurnar, og hann lætur líka sjúga mest úr sér. Eða hvernig ætti maður að sjúga þá, sem lítið eiga? Þessa ríkisbubba rnætti nefna hunangsakur býflugn- anna. Jæja, þriðji hópurinn er alþýðan, allir, sem lifa af iðju handa sinna, fást ekki við stjórnmál og eru lítt fjáðir. Þetta er fjölmennasti hópurinn í lýðræðinu, og sá, sem mestu ræður, þegar hann kemur á fundi. — Að vísu, sagði hann, en það er hann ekki vanur að gera, ef hann fær ekki svolítið hunang. — En það fær hann líka alltaf, að svo miklu leyti sem for- ingjarnir hafa vit á að útvega það með því að ræna hina ríku og dreifa eignum þeirra meðal alþýðunnar, en hirða þá vitan- lega bróðurpartinn sjálfir. En þá held ég, að þeir, sem rændir verða, hljóti að taka sér varnarstöðu með því að ræða við alþýðuna eða þá, að svo miklu leyti sem þeir geta það, með valdi. Þess vegna, enda þótt þeir í raun og veru ekki æski neinna breytinga, verða þeir ásakaðir af hinum, að þeir vilji steypa þjóðstjórninni og séu auðvaldssinnar. Að lokum, þegar þeir sjá, að alþýðan miðar að því að gera þeim órétt, ekki af eigin hvötum, heldur í fávísi sinni og blekktir af rógi hinna, þá verða þeir loksins einræðissinnar, ekki heldur af eigin hvötum, heldur valda býflugurnar þessari óhamingju með broddum sínum. Þannig koma fram gagnkvæm klögumál, rétt- arfarsdeilur og barátta. Skipar þá ekki alþýðan venjulega einn Su ráðkæna, framh. töng þína, við þurfum aðeins örfáa blóðdropa til að undir- skrifa samninginn, og þú færð gullpeninginn“. „Jæja þá“, samþykkti Prókor. Og þeir luku þessu í skyndi, þeir tóku blóð úr löngutöng, Prókor undirskrifaði samning- inn, og djöfullinn gaf honum gullpeninginn. ,,En sálina mun ég sækja, blessaður á meðan“, og djöfullinn dinglaði rófunni. Og Prókor kom heim með gull- peninnginn, og fá þessum degi hafði hann alltaf næga peninga, varð ríkur, byrjaði verzlun, og allt varð öðruvísi. Hann gleymdi allri neyð, lífið varð honum léttbært, og hann tók ekki eftir því, hvernig ellin nálgaðist. En því nær sem dauðinn kom, þvi alvörugefnari varð hann. Það kvaldi hann, að hafa undirskrifað samning með blóði sínu við djöfulinn og að hafa selt þeim svarta sál sína, og einnig að hann, sem í öll þessi ár hafði búið með kellu sinni í ást og eindrægni og aldrei gert neitt án þesss að hafa hana með í ráðum, skyldi ekki hafa sagt henni aðalástæðuna til vel- gengni þeirra. Sú gamla vissi ekki neitt uf viðskipti hans við djöfulinn. Dögum saman situr hann og drúpir höfði, hann óttast djöful- inn, syndin þjakar hann, og hann finnur til sektar sinnar gagnvart gömlu konunni, en það er svo erfitt að segja henni frá þessu. „Hvers vegna ertu svona hyggjuþungur, gamli minn? spurði hún. Áður fyrr, þegar við áttum hvorki til að bíta né brenna, þurftir þú aldrei að vera áhyggjufullur, en núna er þó enn minni ástæða til þess“. Gamli maðurinn þagði, þagði, — en allt í einu segir hann við hana: „En þú veizt ekki hvaðan mér kom gullpeningurinn forð- STUNDIN 19

x

Stundin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.