Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 4

Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 4
ur og fastlaunafólk, sem notar aðstöSu sína til að afla sér aukatekna. Eða með öðrum orð- um, að nokkuð sé um það, að einstakir starfsmenn útvarpsins njóti fyrst sinna föstu launa og taki síðan ríflegan skilding fyr- ir hvað og eitt, sem þeir gera fyrir útvarpið, — og er þetta vítaverð ómenning og smán í lýðfrjálsu landi. En svo mikið mál, sem menningareinokun út- varpsins er, verður ekki til hlítar rakið né skýrt í stuttri grein í litlu blaði. Fór ég því fljótt yfir sögu og greindi ekki jafn nákvæmlega frá smáatrið- um eins og þyrfti og ætti að gera, ef svo kynni að fara um síðir, að þjóðin sæi og skildi, að hér verður hún að sýna af sér röggsemi og mannsbrag, svo fremi að Ríkisútvarpið hennar eigi að vera samboðið mennt- aðri og lýðfrjálsri þjóð, og sér- staklega bókmenntaþjóð. Ég drap enn fremur á þá firru, að skipa Útvarpsráð póli- tískum bitlingamönnum, sem sjaldan eygja nema tvö sjónar- mið: eiginhagsmuni og flokks- hagsmuni. Og pólitísk ríkisút- vörp heyra aðeins til einræðis- ríkja. Ég mundi leggja til að Útvarpsráð væri skipað þremur mönnum í stað fimm, og til eins árs í senn. Hefir mér dottið í hug, að rikisstjórnin skipi einn ráðsmann, Háskólinn annan og „háttvirtir útvarpshlustendur" þann þriðja, og gætu þeir kos- ið sinn fulltrúa á sérstökum eyðublöðum, er þeir gætu út- fyllt um leið og þeir ljúka greiðslu afnotagjalds. Á sama hátt gætu útvarpshlustendur kosið sér þul eða þuli, og væri þá á sanngjarnan og lýðræðis- legan hátt skorið úr því máli, sem núverandi „ráð“ hefir átt í mestu höggi við. Éins og vænta mátti sá for- maður Útvarpsráðs, að hér yrði að láta hendur standa fram úr ermum og kveða niður draug- inn áður en manntjón yrði. Kallaði hann á sinn fund rit- stjóra Útvarpstíðinda og hafði í hótunum við hann um að svifta hann útgáfustyrk, er nemur 50 krónum á viku, og slíta hann á annan hátt úr tengslum við útvarpið, ef hann gerði ekki hvorttveggja í senn að lofa því og efna, að slíkar greinar sem mín birtust aldrei í Útvarpstíðindum, og ennfrem- ur yrði hann að éta ofan í sig téða grein með húð og hári, ef til mála ætti að koma að sættir mættu takast með þeim. Og rit- stjórinn tók sáttaboðinu og ját- aði sig, nauðugur, reiðubúinn til að gera allt, sem í hans valdi stæði, til að auðsveipa alla and- úð og hverja gagnrýni, af hvaða rótum sem hún rynni, í garð útvarpsins og starfsmanna þess! Um leið og ritstjórinn afsalaði sér hinstu voninni um að mega ráða stefnu síns blaðs að ein- hverju í samræmi við það, sem hann hafði lofað kaupendum blaðsins, laumaði formaður Út- varpsráðs að honum frum- sömdu greinarkorni með til- skipan um að hún yrði birt í næsta hefti Útvarpstíðinda. Greinin er á þessa leið, og lesið hana með athygli: Hr. ritstjóri. í síðasta hefti Útvarpstíðinda birtið þér „með ánægju“ næsta furðulega ritsmíð eftir Sigurð nokkurn Benediktsson. Þér virðist líka, í fljótfærni, hafa gert ráð fyrir því, að ritsmíðin væri þess verð, að hljóta and- mæli í sama tón, og væri þá öllu borgið. En ritsmíðin dæmir sig sjálf og þarf ekki skýringar. Hver meðalgreindur lesandi mun þegar sjá og finna, að höfund- urinn á ekki heimtingu á að vera tekinn alvarlega og að greinin er líkust því, sem hún hefði verið skrifuð í ölæði. Aðeins eitt dæmi ætla ég að benda á: í vetur hafa nokkur erindi verið flutt í útvarpið um ís- lenzka tungu, málvöndun og málspjöll. Erindin hafa verið flutt af færustu mönnum, sem völ er á í þessari grein á landi hér og þarf ekki að rekja nöfn þeirra. Fá erindi munu hafa vakið meiri athygli né verið betur tekið af alþýðu manna en einmitt þessum. Nú leyfir þessi virðulegi greinarhöfundur sér að kenna viðleitni þessara manna við „málvöndunarhysterí" og að sparka í þá sem „smámunaseggi og hálmstráaidíóta tungunnar", eins og hann kemst svo smekk- lega að orði. Þessi ummæli þurfa ekki skýringar við. Þau lýsa höf. niður í kjölinn, dómgreind hans, smekkvísi og manngildi, — ef hann hefir ritað greinina algáður. Að lokum ætla ég að leggja þá spurningu fyrir yður, hr. rit- stjóri, hvort þér séuð reiðubú- inn til þess að lýsa yfir ánægju yðar í annað sinn með ritsmíð þessa og ennfremur, hvort þér teljið hana í samræmi við stefnu blaðs yðar. Virðingarf yllst. Jón Eyþórsson. Hinn knésetti leiguritstjóri útvarpsins var síðan knúður til að fylgja ritsmíð Jóns Eyþórs- sonar úr garði með eftirfarandi vægðarbeiðni: Ég hefi áður lýst því yfir hér í blaðinu, að ég veldi ekki efni frá hlustendum til birtingar eingöngu í samræmi við mínar skoðanir. Stefna blaðs míns er sú, að gefa hlustcndum sem al- meiinast tækifæri til að láta í ljós álit sitt um útvarpið og starfscmi þess — en sú gagn- rýni, sem þannig er flutt, að hver meðalgreindur lesandi 4 S T U N D I N

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.