Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 16

Stundin - 01.03.1941, Qupperneq 16
hennar: ,,Þú ert svo þögul, Ines, þú hefir aldrei truflað mig í dag.“ „Ég þarf að tala dálítið við þig,” sagði hún hikandi, um leið og hún dró að sér hönd sína. ,,Nú, hvað er það?“ en hún þagði enn nokkra stund. ,,Rudolf,“ sagði hún að lokum, „láttu barn þitt kalla mig móður.“ „Gerir hún það ekki?“ Hún hristi höfuðið og sagði honum, hvað gerzt hafði daginn, sem hún kom. Hann hlustaði rólegur á hana.’ ,,Er þetta ekki úrræði,“ sagði hann síðan, „sem barnssálin óvitandi hefir fundið?“ Eig- um við ekki að vera þakklót fyrir það?“ Unga konan svaraði þessu ekki, en sagði aðeins: „Á þennan hátt vinn ég aldrei ástir barnsins.“ Hann ætlaði að grípa hönd hennar, en hún færðist undan því. „Ines,“ sagði hann, „krefðu aðeins einskis, sem náttúran ekki getur veitt, krefðu þess ekki af Nesí, að hún sé barn þitt, eða þér, að þú sért móðir hennar.“' Tárin brutust fram í augu hennar. „En ég á þó að vera móðir henn- ar,“ sagði hún með ákefð. „Móðir hennar? Nei, Ines, það áttu ekki að vera.“ „Hvað þá, Rudolf?” Ef hún þá hefði getað skilið hið nærlæga svar hans við þessari spurningu, myndi hún hafa fundið það sjálf. Hann fann þetta og horfði hugandi í augu hennar, eins og yrði hann að leita þar hinna hjálpandi orða. „Viðurkenndu aðeins, að þú getir ekki svarað þessu,“ sagði hún, þar sem hún misskildi þögn hans. „Ines,“ hrópaði hann, „bíddu þess að barn af þínu eigin blóði hvíli í skauti þér.“ Hún tók þessu fálega, en hann sagði: ;,Sá tími mun koma, og þú munt finna, hvernig fögnuður sá, er birtist í augum þínum, mun vekja fyrsta bros barnsins þíns og hvernig hann dregur að sér litlu sálina. Einu sinni ljómuðu á sama hátt tvö hamingjusöm augu yfir Nesí, og þá vafði hún litlu hand- leggjunum um höfuðið, sem beygði sig niður að henni, og hún hvíslaði: „Móðir mín“. Vertu henni ekki reið, vegna þess að hún getur ekki sagt það við neinn framar í þessum heimi.“ Ines hafði tæplega heyrt orð hans, hugur hennar dróst að einu skauti: „Ef þú getur sagt: Hún er ekki barn þitt, hvers vegna segir þú þá ekki einnig: Þú ert ekki móðir hennar?" Hér við sat, og hvað varðaði hana um rök hans? Hann dró hana að sér og reyndi að sefa hana, og hún kyssti hann og brosti til hans gegnum tárin, en þraut hennar var að engu leyst. Er Rudolf hafði yfirgefið hana, gekk hún út í stóra garð- inn. Þar sá hún Nesí með skólabók í höndum ganga um á grasblettinum, en hún beygði inn í hliðargötu, sem lá milli runnanna og múrsins. Barnið hafði í svip séð dapurleikann á brá fögru stjúpmóðurinnar, og það var eins og hún væri dregin seiðmagni inn á stiginn, sem hún gekk, enda þótt hún læsi enn lexíu sína í hálfum hljóðum. Ines nam staðar fyrir hliði í háum múrnum, sem var næstum hulið fjólubláum blómum. Þó að hún virtist horfa í fjarsk- ann, hvíldu augu hennar á því, og hún ætlaði að hefja ein- mana göngu sína á ný, er hún sá barnið koma á móti sér. Hún stanzaði aftur og spurði: „Hvaða hlið er þetta, Nesí?“ „Að garðinum hennar ömmu.“ „Að garðinum hennar ömmu? „Afi og amma eru dáin fyrir löngu.“ „Já, fyrir löngu, fyrir löngu.” „Hver á þá garðinn núna?“ „Við,” svaraði barnið. legt nafn, er hefði það eitt til síns ágætis, að vera fjarstæð- ara en náunganum hafði komið til hugar að velja sonum sínum og dætrum, meðan hvort tveggja var enn til. Og nafnið varð að nokkru leyti tízka, við- kvæmt og vandfundið eins og < myndir hennar. Og að því leyti var það ekki alls kostar leyst frá allri alvöru fremur en kjól- arnir, sem finnast í tízkublöð- unum, eða seldir eru í vöruhús- inu. Eru alkunnir nú þeir sorg- arleikir, er gerzt hafa meðal margra betri borgarakvenna þessa bæjar vegna kjóla, er fá- vísir sjómenn hafa keypt þeim í Vesturheimi. Enginn grunar sjómenn þessa um græsku, en svo virðist sem þeir lendi allir á sama vöruhúsinu, því að þeg- ar alsaklausar og heiðarlegar konur koma í kjólunum í gagn- heiðarleg samkvæmi eru þær aldrei öruggar um að hitta ekki stallsystur sínar í nákvæmlega sams konar kjólum, að minnsta kosti er litur eða snið það sama. Slys þessi valda löngum og hrollköldum, svefnlausum nótt- um, og atburðunum er fleygt í munni næstu vikur, og orð heiðarlegra kvenna hefir eyði- lagzt um margra mánaða skeið. Og ef einhverjum yrði á að brosa að þessum slysum, þá skilur hann ekki alvöru við- burðanna. Þykir okkur ekki ó- sennilegt, að bráðum komi að því, að það verði talið til al- varlegri slysa, ef tveir menn eða tvær konur koma saman á fund og bera sama nafnið. Æfintýrið um nafnið er eitt þeirra mála, er tæpast verður getið án þess að minnast mál- varnamanna. Er þá um leið litið til málvarnamanna sem þess f eina flokks manna í þessu landi, er telur geymdir og þjóðleg verðmæti þess verð, að þeim sé gaumur gefinn. En þeim skal góðfúslega bent á það, enda þótt þeim sé það vafalaust fylli- 16 t s STUNDIN

x

Stundin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.