Árroði - 02.09.1933, Qupperneq 7
ÁR R ODI
Úr dagbók lífs míns.
Frh. — Sbr. Ároða, 5. tbl. bls. 34.
Ég var áður búinn að nefna
uppsprettulindirnar við Steins-
mýrarbæina, vatnsbólin, og jafn-
hliða breytingav, er urðu á vatns-
föllum þar í bygð, er Skaftár-
eldar brunnu framan við nefnda
bæi. Og næst Niðurbænum var
auðsjáanlega og er enn stór vatns-
farvegur, sem eftir gömlum sögn-
um hét Steinsmýrarfljót, og hafði
pað tll forna verið ferjuvatn. —
Fyrir sunnan þennan vatnsfar-
veg er rofa-hálendi, er nefnist
Hólmur, sem nær suður undir
núverandi Steinsmýrarfljót, sem
rennur norður undir Syðri Steins-
mýri, og sem nú er ekki nema
drjúgur bæjarlækur móts við áð-
ur nefnt Steinsmýrarfljót, og hef-
ir núverandi Eldvatn í Meðal-
landi brotist fram frá farvegum
þess. Enda hafði vatnsflóð fallið
yfir graslendi bygðarlagsins, eft-
ir eldana, áður en það náði að
ryðja sér farveg, og sumar jarðir
orðið óbyggilegar af völduhi þess,
sem eldur eigi náði að granda. Til
dæmis hefi ég heyrt að bærinn
Hnausar haíi verið óbyggilegur
í 3 ár. En þegar vatnið náði
farvegi sínum, haíi bæirnir verið
bygðir á bakka þess, þar sem
þeir nú eru.
Bæirnir austan eða ofan Eld-
vatns eru Efri og Syðri Steins-
mýrarbæir og Efri-FJjótar, alm.
kallaður Krókur, og stendur sá
bær í krók eða kima hraunsins,
í suðvestur frá Syðri-Steinsmýri.
Fljótar, efri og syðri, lentu !í
eldflóðinu, ásamt ifleiri bæjum,
og voru Efri Fljótar bygðir á
þessum stað, en [Syðri Fljótar
flutfir á syðri bakka Eldvatns.
Og enn er búið að flytja þá lengra
upp með vatninu, sökum vatns-
ágangs og uppblásturs. —
Annars hafa orðið svo iniklar
breytingar á bygðarlögum þar
eystra, ckki sízt í Meðallandi, í
biltingum og umbrotum af völd-
um náttúruaflanna, að víða mun
óþekkjanlegt frá fyrra útliti í
tilliti til landgæða og staðhátta.
Og hafa ekki þurft mörg ár til
slíkra breytinga á stundum. —
Flestir fullorðnir og skynbærir
menn hafa heyrt getið um Skaft-
ár-eldgosin og Kötluhlaup, ásamt
fleirum jökulhlaupum og umbrot-
um náttúruaflanna.
— Auk þess hefir uppblástur
lands víða gert stór landspell,
sérstaklega í Meðallandi. Fyrir
mína daga og þar til nú fyrir
rúmum 20 árum voru bæir þar
unnvörpum að leggjast niður af
sandfoki, sökum uppblásturs í
bygðarlaginu, þar til komið var
fyrir það með vatnsáveitu, svo