Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009
2 LesbókSKOÐANIR
S
tundum ræður líka
frumleiki eða
áræði blaða-
mannsins mestu við að
fá viðmælendur til að tjá
sig líkt og hjá blaðakon-
unni Louise Petersson í
nýjasta hefti The Reykja-
vík Grapevine. Þar birtist
í fyrsta sinn viðtal við
Skapofsa, sem enginn
veit í raun hver er, en
hann/hún og félagar hafa verið iðin að undan-
förnu við að skvetta rauðri málningu á hús vel-
þekktra auðkýfinga. Louise sendi nokkrar spurn-
ingar á Skapofsa og fékk ansi áhugaverð svör
tilbaka. Til að mynda að málningarsketturnar á
Hummer Björgólfs Thors hafi verið mistök, því
þær skvettur verði bættar af tryggingafélögum.
Rauðu málningarskvetturnar á einbýlishúsin séu
ekki bættar af tryggingarfélögum og því beiti
Skapofsi og félagar hans/hennar þeirri aðferð.
Einnig kemur fram í viðtalinu að gjörningurinn sé
meðal annars gerður til að vekja athygli erlendra
fjölmiðla á mesta bankasvindli Evrópu og að
mögulega verði gripið til árásargjarnari aðgerða
með tímanum. frettakonan@hotmail.com
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent
Í
júlímánuði árið 1977 komu virðulegir
gestir í opinbera heimsókn hingað til
lands. Þetta voru þýsku kanslarahjónin,
Helmut og Hannelore Schmidt, og þeirra
beið stíf dagskrá, eins og þekkist í slíkum
heimsóknum; fundir með forstætisráðherra
og forseta – Geir Hallgrímssyni og Kristjáni
Eldjárn – og svo ferð til Vestmannaeyja, á
Árnastofnun og veisla á Hótel Loftleiðum.
Góðum gestum var boðið upp á það besta.
Þegar vél Schmidt-hjónanna lenti á Kefla-
víkurflugvelli tóku ráðamenn fagnandi á móti
þeim og þar voru vitaskuld einnig fulltrúar
fjölmiðla sem áttu að sýna lesendum sínum
og áhorfendum hvernig móttakan hefði lukk-
ast. Fyrir hönd Morgunblaðsins var mættur
höfðinginn á ljósmyndadeildinni, Ólafur K.
Magnússon. Í blaðinu birtust daginn eftir
tvær ljósmyndir Ólafs, myndir sem eru afar
fagmannlegar og segja saman sögu atburð-
arins. Á annarri taka kanslarahjónin í hendur
gestgjafanna þegar þau eru komin út úr flug-
vélinni og á hinni standa þau brosandi með ís-
lensku forsætisráðherrahjónunum.
Í viðamiklu myndasafni Morgunblaðsins er
hins vegar þessa mynd líka að finna. Mynd
sem sýnir vel snilldarauga og klára hugsun
Ólafs K. Ég veit ekki hvort myndin hefur
birst áður, en ef svo er ekki þá er kominn tími
til að birta hana hér, óskorna eins og Ólafur
tók hana. Sjónarhornið er frumlegt en þó svo
einfalt; markmiðið eflaust að hreinsa allan
óþarfa úr rammanum og sýna heiðursgestinn
einan – þar sem hann stingur sér inn í dross-
íuna. Þetta er líka mynd af regndropasafninu
á stífbónuðu bílþakinu. efi@mbl.is
Kanslari og dropar
Þegar Helmut Schmidt stakk sér inn í bílinn var Ólafur K.
Magnússon á staðnum og myndaði það sem hann sá
Y
firleitt tjáir fólk sig ekki við fjöl-
miðla nema það þjóni ákveðnum til-
gagni. Oft fyrir ákveðinn málstað
eða í viðskiptalegum tilgangi. En
þegar öllu er á botninn hvolft er ákvörð-
unin um að tjá sig í fjölmiðlum afar per-
sónuleg. Hvort sem viðkomandi er for-
sætisráðherra, pólskur verkamaður,
málningarslettari eða vændiskona.
Margt og mikið hefur verið ritað og rætt
um meinta þögn forsætisráðherra í erlend-
um fjölmiðlum. Umræðan um þessa
ákvörðun og stefnu ráðherrans hefur verið
nokkuð einsleit að mínu mati. Pólitískir
andstæðingar forsætisráðherrans hafa
hamrað á því hversu slæmt það sé að ráð-
herrann veiti ekki erlendum fjölmiðlum við-
töl. Margir fjölmiðlamenn hafa býsnast yfir
ósýnileika forsætisráðherrans út á við og
margir flokksfélagar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur hafa nokkrar áhyggjur af þessu.
En er það slæmt að forsætisráðherrann
veiti erlendum fjölmiðlum ekki viðtöl? Eða
ber það einfaldlega vott um mjög mismun-
andi stjórnunarstíl og áherslur núverandi
og fyrrverandi forsætisráðherra?
Hér verður því ekki svarað, eingöngu
velt vöngum.
Í gærkvöldi, föstudag, var sjónvarpað á
sænsku sjónvarpsstöðinni SVT1 og norsku
sjónvarpsstöðinni NRK1, vinsælum spjall-
þætti þar sem Geir H.Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, var gestur. Geir var þar
ásamt leikkonunni Liv Ullman, Evróvisjón-
stjörnunni Alexander Rybak og norska rit-
höfundinum Jo Nesbö. Af hverju núverandi
forsætisráðherra var ekki meðal gesta veit
ég ekki, en miðað við þann gríðarlega
áhuga sem erlendir fjölmiðlar hafa sýnt Jó-
hönnu Sigurðardóttur, efast ég ekki um að
norskir og sænskir fjölmiðlar séu þar engir
eftirbátar. En einhvern veginn sé ég ekki
alveg Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir mér í
skandinavískum spjallþætti með unga tón-
listarmanninum Alexander Rybak og rabba
um ástandið á Íslandi. Þar liggur einn meg-
inmunurinn á stíl Geirs og Jóhönnu.
Erlendir fjölmiðlar hafa sjaldan eða aldr-
ei sýnt Íslandi og íslensku þjóðfélagi jafn-
mikinn áhuga og síðasta árið. Í miðju fjöl-
miðlafárviðrinu á meðan undirstöður
íslensks samfélags voru að hrynja og óviss-
an um framtíðina var að naga íslenskan al-
menning, stóð Geir sína vakt gagnvart er-
lendum fjölmiðlum. Eyddi kannski of
mikilli orku í það á stundum.
En þó að Geir hafi lagt mikið upp úr
samskiptum við erlenda fjölmiðla, þarf það
ekki að þýða að Jóhanna Sigurðardóttir
þurfi að feta í fótspor hans. Einhvers stað-
ar hlýtur þó að vera millivegur. Sér-
staklega þegar allt á að vera gegnsætt og
uppi á borðum.
Jóhanna, og ráðgjafar hennar, eru nú í
þeirri stöðu að geta valið við hvaða erlenda
fjölmiðla hún vill tala við. Þar með valið
hvar og með hvaða hætti málstað Íslands
er komið á framfæri nú þegar ímynd þjóð-
arinnar á erlendri grundu er í molum. Jó-
hanna getur nýtt sér þann áhuga sem er
fyrir því erlendis að hún er fyrsta konan til
að sitja í stól forsætisráðherra Íslands og
leiðir íslenskt samfélag á afar viðkvæmum
tímum með fyrstu vinstri stjórn landsins
við stjórnvölinn. Einnig getur hún nýtt sér
áhuga erlendra fjölmiðla á ákvörðun Al-
þingis að hefja aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið.
En það er ekki stíll Jóhönnu. Hún hefur
kosið að tjá sig lítið sem ekkert við erlenda
og innlenda fjölmiðla. Hvort sem það er út-
pæld ákvörðun hennar eður ei, verða allir
að virða hennar persónulegu ákvörðun.
Pólitískir andstæðingar og samherjar, sem
og innlendir sem erlendir fjölmiðlar.
En burtséð frá Jóhönnu hef ég saknað
þess í fjölmiðlum að undanförnu að ekki sé
talað við fleira fólk af erlendum uppruna
sem hingað kom í uppsveiflunni. Árin 2005
til 2008 komu hingað 15 þúsund manns er-
lendis frá til að vinna og í janúar 2009 voru
11 þúsund Pólverjar skráðir hér á landi.
Sérfræðingar Vinnumálastofnunarinnar og
Alþjóðahúss lýstu því yfir við fjölmiðla í
vikunni að mun færra fólk af erlendum
uppruna hefði ákveðið að fara af landi brott
nú þegar verulega kreppti að en búist var
við. Nokkrar skýringar hafa verið settar
fram af fræðingum, en lítið sem ekkert bor-
ið á viðtölum við innflytjendur sjálfa. Þar
ræður líka hið persónulega val viðmæland-
ans mestu.
Alveg eins og ákvörðun fyrrverandi
vændiskonu um að tjá sig við dag-
skrárgerðarkonuna Eddu Jónsdóttur á Rás
1 er einstaklega persónuleg. Til að tryggja
hag konunnar sem sagði ótrúlega sögu sína
var leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir
fengin til að endursegja frásögn konunnar.
Þrátt fyrir það var viðtalið ótrúlega áhrifa-
mikið og Edda á þakkir skildar fyrir þátta-
röð sína sem fjallar um margar hliðar á
lagabreytingu á hegningarlögunum er
varðar kaup á vændi. Lagabreytingu sem
allt of lítið hefur verið fjallað um í fjöl-
miðlum. Kannski af því hin persónulega
frásögn er bráðnauðsynleg til að draga
fram skýra og nákvæma mynd af umfangi
og eðli vændis á Íslandi. Því þarf persónu-
legan kjark og þor viðmælandans líkt og í
öðrum viðtölum. frettakonan@gmail.com
Að tjá sig eða ekki tjá sig
Morgunblaðið/Ómar
Jóhann Sigurðardóttir Er þögnin meðvitaður stjórnunarstíll eða einfaldlega vörn gegn áreiti?
FJÖLMIÐLAR
RÓSA BJÖRK
BRYNJÓLFSDÓTTIR
En þegar öllu er á botninn
hvolft er ákvörðunin um
að tjá sig í fjölmiðlum af-
ar persónuleg. Hvort sem
viðkomandi er forsætis-
ráðherra, pólskur verka-
maður, málningarslettari
eða vændiskona.
ÞETTA HELST
Skapofsi loks
tekinn tali
Málning Hús Bjarna
Ármannssonar.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Opinber heimsókn Ljósmyndarar blaðanna fylgjast með öllum hreyfingum opinberra gesta. Þegar Schmidt
kanslari kom til Keflavíkurflugvallar var engin undantekning þar á. En þessi mynd er ólík flestum hinum.