Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.2009, Side 5
vera hvort Trier láti sér ögrunina eina nægja, gerir myndin eitthvað annað en að fara viljandi og hálfhlæjandi yfir mörk, ýta á útpælda hnappa og að festa í sessi fyrri skoðanir manna á Trier? Er um viðbót við höfundarverkið að ræða, endurtekningu, öfgun eða útúrsnúning? Svarið er allt þetta. Að horfa á Antichrist, að fylgjast með þeim undarlega seiði sem þar er framreiddur, er líkt og að verða vitni að sólkerfi splundrast inn á við. Þessi mynd er eins konar innsprenging sálarlífs leikstjórans, og ef þetta væri einhver annar en von Trier liggur við að ég myndi segja ferilsins líka. Antichrist fjallar um geðveiki, um hrun sjálfsins, og það eru vitanlega margar ólíkar leiðir til að nálgast slíkt efni, hina splundruðu og rústuðu vitund. Algengt er að leitað sé á vit raunsæislegra framsetning- araðferða en önnur aðferð tengist vægum súr- realisma líkt og sjá má dæmi um í Englum al- heimsins. Afstrakt nálgun eins og hjá David Lynch og Polanski getur verið áhrifarík. Trier fer hins vegar lengra. Hans mynd er risavaxin allegóría um hugarástand á heljarþröm, mynd sem vindur fram á óskiljanlegan hátt inni í sál- arlífinu og vitundinni, hann umbyltir táknkerf- inu þannig að veruleikaviðmiðin hverfa hvert á fætur öðru. Hægt er að lesa myndina sem írón- íska úttekt leikstjórans sjálfs á höfundarverki sínu þar sem hann öfgar ýmsa þætti sem hafa verið áberandi. Myndin er t.d. svo transgressíf að maður veltir fyrir sér hvort Trier sé ekki öðr- um þræði að hæðast að sjálfri hugmyndinni um að „fara yfir mörkin“. Meginþráðurinn tengist þó heilögu stríði leikstjórans við myndir hins kvenlega, táknmyndir upphafnar jafnt sem nið- urtraðkaðar, stríð sem hann hefur háð mestan hluta ferilsins. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2009 5 A nne B. Ragde vakti athygli á nýliðinni bókmenntahátíð í Reykjavík, enda hefur þríleikur hennar um fólkið á Neshov notið vinsælda hér á landi. Sagan hófst með Berlínaröspunum, og var síðan rakin áfram í Kuðungakröbb- unum í kjölfarið. Nú er nýkomin út lokasagan, Á grænum grundum, en þar er sagan leidd til lykta. Ragde vakti fyrst athygli fyrir ævi- sögu sína um Sigrid Undset, sem hún hugsaði fyrst og fremst fyrir unga lesendur og hlaut verðlaun fyrir. Fyrsta skáldsaga hennar fyrir full- orðna var Berlínartígurinn, sem naut strax vinsælda. Þríleikurinn um fólkið á Neshov er þó vin- sælasta verk hennar til þessa. Búið er að þýða verkið á fjölda tungumála – um tuttugu hingað til – og yfirfæra í sjónvarpsseríu sem rösklega milljón manns fylgdist með í Noregi þegar hún var sýnd þar. Í Verdens Gang segir m.a. um bókina að „Anne B. Ragde sé snillingur í að lýsa angist fólks þannig að þolanlegt sé að lesa um hana. Ekkert mannlegt er henni óviðkomandi.“ Dómur í Fin- ancial Times vakti athygli vegna þess hversu lofsamlegur hann var og átti sinn þátt í því að koma Ragde á kortið í alþjóðlegu sam- hengi. Á grænum grundum | Anne B. Ragde Fólkið á Neshov K apalsjónvarpsstöðin banda- ríska HBO hefur verið á sig- urgöngu um alllangt skeið og með myndaröðinni The Wire umbreytti hún bæði stöðlum og möguleikum sjónvarpsþáttaforms- ins. Um skeið átti stöðin í vand- ræðum, bestu þættirnir luku allir göngu sinni á svipuðum tíma. Nú þykir upprisa hafa átt sér stað, HBO á að hafa sannað sig í enn eitt skiptið með vampíruþáttum sem nefnast True Blood. Því fer þó fjarri að um sé að ræða myndefni er standist samanburð við blóma- skeið rásarinnar, þætti á borð við Oz, Wire, Deadwo- od, Rome, eða Six Feet Under. Höf- undur síðast- nefndu seríunnar, Alan Ball, er reynd- ar hér að verki en útkoman virðist marka upphaf ein- hvers konar hnign- unarskeiðs. Í stað samfelldrar söguþróunar og knýjandi dramatíkur fá áhorfendur hér útgáfu af unglingaþætti, sam- bland af Twilight-barnabókunum og Gossip Girl-slúðurþáttunum, kryddað blóðugri fjöldamorð- ingjasögu og framreitt í umhverfi sem reyndar ætti að svínvirka, skemmtilega sveittri smáborg í Lo- uisiana með allri sinni suðurríkja- gotnesku, en sem reynist bæði fá- tæklegt og óraunsætt (þrjú hús, einn bar, grasflöt, það er „rým- issköpun“ þáttanna). Söguheim- urinn er óröklegur, morðgátan illa skrifuð og fjarstæðukennd, sam- skipti persóna klisjukennd þar sem þau eru ekki óskiljanleg, sam- svörun vampírisma og minnihlutahópa kjánaleg. Eina hug- takið sem nær utan um þættina er „kitsch“ en ým- islegt bendir til að metnaðurinn hafi verið meiri, og því er hér um að ræða mikil vonbrigði. True Blood (2008-9) | Alan Ball Vampíruklúður á HBO Þ að var ekki laust við að hjartað tæki smákipp þegar ég rölti inn í Eymundsson í miðborg- inni í vikunni og sá að þar var til eitt eintak af þriðju og síðustu bókinni í þríleik sænska rithöfundarins og blaðamannsins Stiegs Larssons. Sem ákafur reyfaralesandi í áratugi þóttist ég hafa komist í feitt þegar ég byrjaði að lesa bókina Konur sem hata karla eftir Stieg Larsson sumarið 2007. Ég vissi lítið um Larsson annað en að þessi bók hafði vakið athygli þegar hún kom fyrst út í Svíþjóð árið 2005. Þá fjallaði hún um blaðamann og ég hef alltaf verið sérstaklega veikur fyrir blaðamannareyfurum. Þegar ég svo sá bókina í danskri þýðingu á útsölu í bókabúð í Kaupmannahöfn ákvað ég að fjárfesta í henni og framhaldinu, Stúlkunni sem lék sér að eld- inum, sem einnig var þarna til sölu. Væru hefðbundnar án Lisbeth Karlar sem hata konur væri tiltölulega hefðbundin norræn spennusaga um leit að morðingja ef söguper- sónan Lisbeth Salander kæmi ekki þar við sögu, hún er persóna sem lesandinn er fljótur að stilla sér upp við hliðina á. Í Stúlkunni sem lék sér að eldinum er hlutverk Lisbeth stærra og þar fær lesandinn að vita um þá atburði sem mótuðu líf hennar í æsku. Þetta verður til þess að samkenndin með persónunni eykst enn meira og síðustu kaflanir eru næstum erfiðir aflestrar, jafnvel fyrir harðnaða spennusagnalesendur. Ég las bækurnar tvær í einni lotu og hef síðan verið að sverma fyrir þriðju og síð- ustu bókinni, en frásögnin í henni hefst sama kvöldið og Stúlkunni sem lék sér að eldinum lýkur. Bókin virðist þó ekki hafa tekið mikið hillu- pláss í íslenskum bókabúðum til þessa; ég veit, ég veit, ég hefði getað pantað hana á netinu en af því varð aldrei. Á meðan hefur svo sem verið nóg framboð af öðru efni fyrir áhugamenn um Stieg Larsson og bæk- urnar hans. Larsson er orðinn að einskonar tragískri hetju, sem lést áður en fyrsta bókin kom út, og síðan hafa sambýliskona hans og ættingjar tekist á um arf- leifð hans fyrir opnum tjöldum. Þá hafa Íslendingar eins og aðrir Norðurlandabúar getað fylgst með því hvernig Lisbet Salander líkamnaðist í (íslensk) sænsku leikkonunni Noomi Rapace svo varla verður betur gert. Ég var afar ánægður með þá kvikmynd og hlakka til að sjá myndirnar sem gerðar hafa verið eftir hinum bókunum tveimur. Markmið ferðarinnar með Larsson En nú má ég ekki vera að því að sitja lengur og skrifa. Ég er kominn á bólakaf í Loftkastalann sem var sprengdur því ég ætla ekki að bíða eftir mynd- inni, sem væntanlega verður sýnd í vetur. Bókin sem ég fjárfesti í er ekkert áhlaupaverk, 703 síður með örsmáu letri og á sænsku í þokkabót. Framvindan er ekki eins hröð og í fyrri bókunum tveimur en undir- aldan er þeim mun þyngri. Ég er að verða hálfnaður og það er, held ég, að renna upp fyrir mér hvað Lars- son ætlaðist fyrir þegar hann lagði upp í þessa lang- ferð með blaðamanninum Mikael Blomkvist og Lis- beth Salander: að koma því á framfæri að það séu gráu, sjúku og andlitslausu karlarnir, sem hafa kom- ið sér fyrir bakvið tjöldin í valdastofnunum og ráðsk- ast þar með einstaklinga og jafnvel heilar þjóðir, sem hata konur mest. Og þó, kannski ætlaði Larsson bara að skemmta sér og öðrum með góðum glæpasögum. gummi- @mbl.is Stúlkan sem lék sér að eldinum | Stieg Larson Á langferð með Lisbeth Salander Salander Í annarri bókinni eru upplýsingar um það sem mótaði líf Lisbeth í æsku. BÆKUR VIKUNNAR EFTIR GUÐMUND SV. HERMANNSSON H var á venjulegt millistéttarfólk að takast á við samviskuspurningar nútímalífs? Hvar eiga Vesturlandabúar að takast á við örlög nágranna sinna í fátækum löndum heims? Geta þeir sloppið með því að hafa skoðanir á hlutskipti hinna óheppnu, kúguðu og fyrirlitnu; eða verða þeir að sýna hug sinn í verki? Allt þetta og auðvitað miklu meira til tekst bókin Býfluga eftir Chris Cleave á við, en hún kom ný- verið út hjá bókaforlaginu Bjarti. Verkið fjallar um ung hjón sem fara á framandi slóðir í frí. Þar verða þau vitni að hryllilegum atburði sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir þau. Sagan ber nokkur einkenni spennusögu og spannar söguþráð er tæpir á stærstu málaflokkum samtímans; alþjóðavæðingu, innflytjenda- málum og persónulegri ábyrgð okkar allra á meðbræðrum okkar og -systrum. Atburð- urinn hryllilegi verður til þess að stía ungum millistéttarhjónunum í sundur og snúa öllum þeirra viðhorfum til tilver- unnar og hvors til annars á hvolf. Í dómi sem birtist í breska dagblaðinu Guardi- an þegar verkið kom út á frummálinu segir að „ef verkið rambi á barmi melódrama, þá sé það sami ágalli og var á verkum Charles Dickens og verði til af sömu ástæðu. Nefnilega þeirri að þeim sé alvara.“ Býfluga | Chris Cleave Samviskuspurningar S vo virðist sem frekari sönn- unar þurfi ekki við að með nýjum framleiðslustjóra HBO, Sue Naegle, sé blómaskeiði stöðvarinnar lokið. Nú hefur birst á sjónarsviðinu þáttaröð sem nefnist Hung (Kýldur) og fjallar um unglingakörfuboltaþjálfarann Ray sem í krafti íturvaxinna kyn- færa gerist karlhóra. Með hlut- verk Rays fer Thomas Jane, sem áhorfendur kannast e.t.v. úr Si- deways, en leikstjóri þeirrar myndar, Alexander Payne, kemur einmitt að gerð þáttanna. Því verður ekki neitað að söguþráð- urinn, þegar honum er varpað fram sem stuttri lýsingu, hljómar eins og þunnur þrettándi, brand- ari sem engan veginn geti haldið þátta- röð á floti. Nokkuð er til í því en þó kem- ur á óvart hversu hressir og skondnir þættirnir eru á köflum. Sam- anburður við True Blood er þátt- um þessum a.m.k. í vil. Hér er ekki á ferðinni djúpstæð rannsókn á kynímyndum eða kyngervi en þættirnir eru heldur ekki full- komlega ómeðvitaðir um víddir efnisins, og hversu auðvelt er að skrika fótur í þessu samhengi. Leikarar eru með afbrigðum góðir og samband Rays við Tanyu, mis- heppnað ljóðskáld sem tekur að sér að vera „pimpinn“ hans og breytir auglýsingaímynd hans úr „fylginaut“ í „gleðigjafa“, er bráð- fyndið og lifandi. Yfir röðinni svíf- ur ákveðinn léttleiki og tvímæla- laust má hafa gaman af henni enda þótt spurningar vakni um sumar þær forsendur sem sögu- fléttan gefur sér. Vafi leikur ekki á því að kraftmeira efni og úthugsaðra þarf til að tryggja orð- spor stöðv- arinnar og áframhaldandi heilsu. Hung (2009) | C. Burson og D. Lipkin Gleðigjafinn mikli Bækur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.