Morgunblaðið - 05.01.2009, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.01.2009, Qupperneq 5
Íþróttir 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Uli Höness yf-irmaður knattspyrnumála hjá Bayern München til- kynnti um helgina að króat- íski framherjinn Ivica Olic muni ganga í raðir Bayern frá Hamburger í sumar.    Þær stöllur Sandra Pétursdóttir(1989) og María Ósk Felixdóttir (1992) náðu á gamlársdag frábærum árangri í sleggjukasti á 3. jólamóti ÍR sem fram fór á kastvellinum í Laugardal.    Sandra kastaði 50,83m og rauf þarmeð hinn fræga 50 metra múr sem hún hefur stefnt að undanfarna mánuði. Þetta er Íslandsmet í flokki 19-20 ára og 20-22 ára en Sandra átti sjálf fyrri metin, 49,97 metra. Ís- landsmetið í kvennaflokki er hins vegar 51,86 m, sett í júlí 2008. Ár- angurinn er lágmark inn í Afrekshóp ungmenna FRÍ en lágmarkið þar er 50 metrar sléttir.    María Ósk bætti sig einnig mikiðþegar hún kastaði 39,75 metra en hún átti best 37,77 metra. Þetta var einnig Íslandsmet hjá Maríu Ósk, en hún átti sjálf fyrra metið, 37,77 metra, sett á sama móti og Íslandsmetið í kvennaflokki var sett í sumar.    Arjen Robbentryggði Spánar- meisturum Real Madrid sigur gegn Villareal í spænsku 1. deild- inni í knattspyrnu í gærkvöld. Hol- lendingurinn skoraði eina mark leiksins á 32. mín- útu með fallegu bogaskoti eftir að hafa leikið á þrjá varnarmenn Villa- real. Klaas-Jan Huntelaar og Lass- ana Diarra léku í fyrsta sinn með Spánarmeisturunum en þeir gengu í raðir liðsins um áramótin.    Hugo Sanchez, fyrrum landsliðs-maður Mexíkó sem gerði garð- inn frægan með Real Madrid, stýrði liði Almeria í fyrsta sinn en hann var ráðinn þjálfari liðsins fyrir skömmu. Almeria vann sinn fyrsta leik í sex leikjum þegar það hafði betur gegn Real Betis, 1:0, og skoraði Miguel Angel Garcia sigurmarkið.    Serbinn há-vaxni Nikola Zigic byrjaði vel með Santander en þar er hann í láni hjá Valencia. Hann skoraði eina mark leiks- ins þegar Sant- ander bar sigur- orð af Valladolid.    Sevilla mistókst að minnka for-skot Barcelona niður í 10 stig þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Osasuna í gærkvöld. Walter Pandi- ani jafnaði metin á lokamínútunni eftir að Jesus Nevas hafði náð for- ystu fyrir Sevilla.    Jermain Defoe framherji Ports-mouth upplýsti í gær að honum hafi borist líflátshótanir í síma en allt stefnir í að hann yfirgefi bikarmeist- arana í janúar. Manchester City og Tottenham hafa sýnt áhuga á að fá Deofe og þá er ítalska liðið Juventus spennt fyrir því að fá leikmanninn í sínar raðir. Deofe spilaði ekki með Portsmouth gegn Bristol City í bik- arnum um helgina þar sem hann lá heima með flensu. Fólk sport@mbl.is lengi liðsfélagi Ólafs hjá Magde- burg, og Volker Zerbe. Heimsúrvalið er skipað eftir- töldum leikmönnum: Markus Baur, Frank von Behren, Lars Christiansen, Mirza Dzomba, Henning Fritz, Michael Hegemann, Rolf Her- mann, Filip Jicha, Florian Kehr- mann, Andrei Klimowets, Stef- an Kretzschmar, Daniel Kubes, Carlos Lima, Christian Ramota, Christian Schwarzer, Vlado Zola, Ólafur Stef- ánsson, Daniel Stephan, Steffen Weber og Volker Zerbe. gummih@mbl.is gegn Þjóðverjum Ólafur Stefánsson HINN 37 ára gamli knattspyrnumaður Svía, Hen- rik Larsson, sem leikið hefur með Ólafi Inga Skúla- syni í Helsingborg undangengin þrjú ár, hefur feng- ið tilboð um að spila með franska liðinu Marseille næsta árið. Er þjálfara franska liðsins, Erik Gerets, mikið í mun að fá þennan reynda sóknarmann í sín- ar raðir og staðfesti tilboðið við AFP-fréttastofuna. „Við höfum gert Henrik Larsson tilboð. Ég þekki hann ágætlega síðan hann lék í Hollandi með Feyenoord og hef mikinn áhuga á að fá hann til liðs við okkur í Marseille. Ég geri mér grein fyrir því að það sé ekki auðvelt að telja 37 ára gömlum leik- manni trú um að flytja burt með fjölskyldu sína enn eina ferðina og það frá heimalandinu en við erum að reyna að lokka hann til okkar með gylliboðum og á borðinu er samningur til eins árs,“ sagði hinn belg- íski Gerets, þjálfari Marseille. Sagt er að samningurinn hljóði upp á árslaun sem samsvari rúm- lega 280 milljónum íslenskra króna, auk glæsilegs drauma- húss, skólagöngu í fransk- sænskum skóla fyrir börn hans og fleiri gylliboða til handa konu Henriks, Magdalenu Larsson. Aðeins eru tvö ár síðan hann hafnaði Manchester United að ganga varanlega til liðsins eftir stuttan lánssamning og því ljóst að ekki er auðvelt að krækja í hann svona á gamals aldri. Hefur hann að undanförnu leikið sér og spilað með innibandý- liði Helsingborgar. thorkell@mbl.is Góður samningur fyrir 37 ára leikmann Henrik Larsson aradeildar Evrópu, lékum til úrslita um danska meistaratitilinn og kom- umst einnig í úrslit í bikarkeppninni. Ég tel mig hafa tekið skref fram á við og orðið betri handknattleiksmaður,“ segir Snorri sem hefur fengið að taka meira þátt í skipulagningu sókn- arleiksins hjá GOG en hjá þeim liðum sem hann var í áður. Í sumar tekur Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari við stjórnvelinum hjá GOG. Snorri segist hlakka til samstarfsins við Guðmund þótt hann hafi átt afar gott samstarf við núverandi þjálfara GOG, Svíann Ulf Schvert. Snorri lék stórt hlutverk í íslenska landsliðinu sem vann silfrið á Ólymp- íuleikunum í sumar. Hann var leik- stjórnandi liðsins, var auk þess markahæsti leikmaður þess og næst- markahæstur í keppninni. Þá skoraði hann mikilvæg mörk undir lok leikja, m.a. gegn Egyptum og Dönum. Þá var Snorri Steinn einn þriggja Ís- lendinga sem valdir voru í úrvalsliðið í mótslok. Snorri segir Ólympíuleikana hafa verið mikið ævintýri. „Við megum hins vegar ekki gleyma okkur og reyna að lifa á fornri frægð. Oft hefur verið sagt um þá sem lenda í öðru sæti að þeir gleymist fljótt. Burt séð frá því er ljóst að það sem einu sinni hefur gerst getur átt sér stað aftur. Við verðum líka að átta okkur á því. Allir leikmenn landsliðsins núna eru á góðum aldri sem handknattleiks- menn. Þá langar Óla [Ólafur Stef- ánsson] að halda áfram. Nú er hann á leið til Þýskalands sem þýðir að hann verður í meira formi næstu tvö árin en ef hann hefði farið í dönsku 3. deildina.“ Silfrið upphafið að meiru? „Við vitum að Óli getur verið besti handknattleiksmaður í heimi þar til hann hættir. Auk þessa eru frábærir strákar að koma inn í hópinn. Má þar nefna Aron [Pálmarsson] og Rúnar [Kárason]. Með þeim eykst breiddin í hópnum og möguleikarnir. Ég held að við eigum að halda áfram að stefna hátt í landsliðinu en lífsspursmál er að komast inn á næsta stórmót eftir ár, EM í Aust- urríki, úr því að við erum ekki með á HM í Króatíu. Ef við getum komist hjá stórvægilegum meiðslum og verð- um að spila fast með okkar liðum held ég að ólympíusilfur sem við unn- um í sumar geti orðið byrjun á ein- hverju stærra. Þannig eigum við að hugsa án þess þó að fara fram úr okkur. Til þess að ná langt á stórmóti þarf allt að ganga upp eins og það gerði á Ólympíuleikunum. Andinn innan landsliðshópsins er og hefur verið frábær, svo góður meira að segja að Óli saknar okkar og ætlar að taka upp þráðinn á nýjan leik. Þetta eigum við nýta okkur til hins ýtrasta,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í hand- knattleik. óvart þegar hann söðlaði um og flutt- ist til Danmerkur og gerði samning við dönsku meistarana í GOG frá Svendborg. Ýmsir sögðu þetta vera skref aftur á bak. Snorri segist hafa heyrt þetta en látið allt slíkt tal sem vind um eyru þjóta. Danska deildin hafi eflst mjög mikið síðustu ár. Bestu liðin í Danmörku séu örugg- lega í efri hluta þýsku 1. deildarinnar, þá hafi launakjör batnað til muna í Danmörku, margir leikmenn hafi snúið heim frá útlöndum auk þess sem nokkrir hafi það svo gott að þeir líti ekki við tilboðum frá Þýskalandi. Framfaraskref að fara til Danmerkur „Þegar ég gerði upp hug minn fór ég eftir sannfæringu minni,“ segir Snorri sem skrifaði undir þriggja ára samning við GOG. „Eftir hálft annað ár sé ég ekki eftir neinu og mér og Marín líkar mjög vel við lífið í Dan- mörku. Þegar ég fór frá Minden vildi ég komast í lið sem var í toppbaráttu og tæki helst þátt í Evrópukeppni. Hjá GOG var allt fyrir hendi. Við lékum á síðasta vetri úrslitaleik við Barcelona um sæti í undanúrslitum meist- raun meira áfall en að fá ekki nýjan samning við Grosswallstadt því landsliðið skiptir mann miklu máli. Ég nýtti hins vegar mótlætið á já- kvæðan hátt. Á þessum tíma hringdi Dagur Sigurðsson, þáverandi fyrirliði landsliðsins, í mig og blés mér bar- áttuanda í brjóst. Sagði mér meðal annars að ef til vill yrði þetta mér til góðs þegar til lengri tíma væri litið að vera ekki valinn í landsliðið að þessu sinni. Ég gæti nýtt tímann í annað. Ég hafði það á bak við eyrað og æfði vel. Eftir að keppni hófst á ný í þýsklu 1. deildinni eftir HM lék ég sennilega nokkra af mínum bestu leikjum í deildinni og var verðlaunað- ur fyrir vikið. Hins vegar fékk ég ekki þau tilboð sem ég vonaðist eft- ir.“ Það var komið talsvert fram á sum- arið 2005 þegar Snorri ákvað að gera tveggja ára samning við GWD Mind- en í þýsku 1. deildinni. Hann uppfyllti sinn samning en liðið var í fallbaráttu bæði árin og að dvölinni lokinni hafði Snorri fengið nóg af því að spila með slakari liðum í Þýskalandi. Um tíma var hann orðaður við Barcelona en ekkert varð úr. Vorið 2007 kom Snorri mörgum á kærustunni minni, Marín Sørens Madsen. Nýtt tungumál, nýtt land, allt var breytt,“ segir Snorri sem er þakklátur fyrir að hafa haft kær- ustuna með sér frá fyrsta degi. „Guði sé lof, þá var hún með. Ég er ekki svo hugrakkur að ég hefði getað staðið einn í þessu öllu saman.“ Snorri segir fyrra keppnistímabilið af tveimur hjá Grosswallstadt hafa verið gott. Hann hafi spilað mikið og notið trausts þjálfarans. Sárt að vera ekki valinn fyrir HM 2005 Síðara tímabilið hjá Grosswallstadt var mun erfiðara hjá Snorra en það fyrra, einkum fyrri hluti þess. „Sama ár hafði ég tekið þátt í tveimur stór- mótum með landsliðinu, EM í Slóven- íu 2004 og síðan Ólympíuleikunum um sumarið. Miklar breytingar urðu á högum mínum við flutninginn út og fleira varð þess valdandi að ég náði mér ekki á strik haustið 2004. Við bættist að ákveðið var að skipta um þjálfara. Sá ætlaði að stokka upp í hópnum og ég var einn þeirra sem var ekki inni í myndinni hjá honum. Þá var ég ekki valinn í íslenska lands- liðið fyrir HM í Túnis 2005. Það var í r gerst getur gerst aftur Morgunblaðið/Ómar Madsen ásamt syninum Bjarka sem er níu og hálfs mánaðar gamall á heimili ömmu og afa þess stutta í Eskihlíðinni. ðgerð hefur orðið að stórmáli  Dreymdi um atvinnumennsku frá barnæsku mörku  Silfrið í Peking getur verið upphaf að miklu ævintýri hjá landsliðinu næstu árin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.