Morgunblaðið - 05.01.2009, Blaðsíða 8
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
SVÍAR áttu ekki í vandræðum með að leggja
Kúveita að velli á fimm landa mótinu en þjóð-
irnar áttust við í Kristianstad í gærkvöld. Sví-
ar, sem eru að undirbúa sig fyrir þátttöku á
HM í Króatíu, unnu 21 marks sigur, 39:18, en
munurinn í leikhléi var aðeins fjögur mörk,
14:10. Í seinni hálfleik tóku Svíararnir öll völd
á vellinum. Þeir náðu upp mjög sterkri vörn og
markvarslan var góð og heimamenn skoruðu
hvert markið á fætur öðru úr hraðaupp-
hlaupum.
Hornamaðurinn Henrik Lundström skoraði
10 mörk fyrir Svía, Jan Lennartsson kom
næstur með 8 og þeir Jonas Larholm og Matti-
as Gustafsson gerðu 4 mörk hver en Svíar
mæta Túnisum í Malmö á
morgun eftir leik Íslend-
inga og Egypta.
Svíar ætla sér stóra hluti
á heimsmeistaramótinu í
Króatíu en þar leika þeir í
riðli með Króötum, Spán-
verjun, Suður-Kór-
eumönnum, Kúveitum og
Kúbumönnum. Svíar hafa
fjórum sinnum hampað
heimsmeistaratitlinum,
1954, 1958, 1990 og 1999. Þeir voru ekki á með-
al þátttökuþjóða á HM í Þýskalandi fyrir
tveimur árum. gummih@mbl.is
21 marks sigur Svía gegn Kúveitum
Ola
Lindgren
BRASILÍUMAÐURINN Adriano er í miklum
vandræðum gagnvart vinnuveitendum sínum
Inter Mílanó. Framherjinn fór í jólaleyfi til
heimalandsins en hann mætti ekki á fyrstu
æfingu liðsins eftir jólafrí.
Samkvæmt frétt ítalska dagblaðsins La
Gazzetta dello Sport eru forráðamenn Inter
ekki ánægðir með framferði leikmannsins og
gæti hann þurft að greiða 150.000 evrur í
sekt eða um 25 milljónir kr.
Javier Zanetti fyrirliði Inter segir í viðtali
á heimasíðu félagsins að Adriano verði að
fara eftir þeim reglum sem allir aðrir leik-
menn liðsins fari í einu og öllu eftir.
Adriano er 26 ára og hefur hann verið
samningsbundinn Inter frá
árinu 2001. Hann var í láni
hjá Fiorentina og Parma á
árunum 2001-2004.
Þjálfari Inter, Jose Mo-
urinho, hafði mikla trú á
leikmanninum í upphafi
keppnistímabilsins og
sýndi honum traust með
því að velja hann í byrj-
unarliðið. Portúgalski
þjálfarinn er ekki sáttur við framkomu
Adriano á undanförnum vikum og er talið að
Inter ætli sér að losa sig við leikmanninn í
janúar.
Adriano greiðir risasekt til Inter
Adriano
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
„Þetta var hreint út sagt bara mjög
lélegt hjá okkur,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari Íslands, við Morgunblaðið í
gær um frammistöðu síns liðs. „Við
eigum að gera miklu betur og ég er
hundfúll með þetta. Fyrri hálfleik-
urinn var í sjálfu sér ágætur hjá okk-
ur, en vörnin ekki nógu góð. Við vor-
um síðan bara skelfilegir í seinni
hálfleik.“
Hvort sem hátíðarnar sitja ennþá í
strákunum okkar eða íslenska liðið
hafði lítinn tíma til að stilla saman
strengi sína fyrir mótið er það ljóst
að frammistaða liðsins í gær er ekki
til eftirbreytni. Fyrri hálfleikur var
jafn, en Svíar þó alltaf einu skrefi á
undan. Eftir að jafnt hafði verið milli
liðanna eftir að fyrri hálfleik lauk,
18:18, spýttu þeir sænsku í lófana
meðan dofi færðist yfir leikmenn Ís-
lands.
Varnarleikur Íslands í fyrri hálf-
leik var ekki til að hrópa húrra fyrir,
en sóknin var að sama skapi ágæt.
Dæmið snerist síðan að segja má við
í seinni hálfleik, því þá var sókn-
arleikurinn ansi bágborinn, meðan
vörnin var þokkaleg fyrstu mínútur
síðari hálfleiks. Það hélt þó ekki
lengi og B-lið Svía átti ekki í teljandi
vandræðum með að skora að vild
gegn Íslandi.
Engin ástæða til að örvænta
Þrátt fyrir þetta neyðarlega tap er
þó engin ástæða til að örvænta. Æf-
ingaleikir eins og þessir eru auðvitað
frábær vettvangur til að leyfa minna
reyndum mönnum að spreyta sig og
leyfa mönnum að sýna sig og sanna.
Haukamaðurinn Sigurbergur
Sveinsson átti til að mynda góða inn-
komu í fyrri hálfleik, var sprækur í
sókninni og skoraði að auki 4 mörk.
Þar fyrir utan fékk Sturla Ásgeirs-
son að spila allan leikinn í vinstra
horninu í fjarveru Guðjóns Vals Sig-
urðssonar. Sturla átti í sjálfu sér
engan stórleik, með frekar lélega
skotnýtingu, en skoraði engu að síð-
ur 4 mörk í leiknum. Það má þó
kannski taka með í reikninginn að
Sturla hefur ekki fengið að spila eins
mikið með félagsliði sínu, Düssel-
dorf, í Þýskalandi í vetur, eins og
vonir stóðu til.
Markahæstur í liði Íslands var þó
Logi Geirsson með 8 mörk, þar af
þrjú mörk úr vítaköstum.
Kjörið tækifæri að sanna sig
„Það verður að koma í ljós núna á
næstu dögum í þessum fimm leikjum
sem við eigum eftir að leika í þessari
landsleikjatörn hvort menn eru til-
búnir í slaginn. Ég er með marga
nýja menn í liðinu og fékk aðeins
eina æfingu með liðinu fyrir þennan
leik við Svíþjóð B. Það er auðvitað
alltof lítill tími, en ég ætla ekkert að
fela mig á bak við það.
Næst eru það Egyptar. Það er
mjög verðugt verkefni. Hver og einn
leikmaður þarf að líta í eigin barm og
koma tilbúinn í þann leik og ég mun
svo auðvitað breyta einhverjum
áherslum í okkar leik eins og þurfa
þykir. Þessir leikir eru kjörið tæki-
færi fyrir nýja menn að sanna sig.
Þannig við gerum bara ráð fyrir að
menn muni sýna betri frammistöðu í
næstu leikjum. Við skulum allavega
vona að þetta gangi betur hjá okkur í
næsta leik,“ sagði Guðmundur.
Niðurlæging gegn varaliði
Guðmundur Guðmundsson ósáttur við leik íslenska landsliðsins gegn b-liði
Svía Fáir leikmenn stóðu undir væntingum Sigurbergur Sveinsson fær hrós
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efnilegur Sigurbergur Sveinsson, stórksytta Hauka, var sá eini sem stóð fyrir sínu gegn b-liða Svía.
Í HNOTSKURN
»Íslenska liðið leikur gegnEgyptalandi í næsta leik á
morgun, þriðjudag.
»Fjölmargir leikmenn úrsilfurliði Íslands eru ekki
með á mótinu í Svíþjóð. Má þar
nefna Ólaf Stefánsson, Guðjón
Val Sigurðsson, Snorra Stein
Guðjónsson og Alexander Pet-
ersson.
ÍSLENSKA karlalandsliðið í hand-
knattleik var kjöldregið þegar það
tapaði fyrir B-liði Svíþjóðar í gær,
36:28 á sex liða minningarmóti um
Staffan Holmquist í Svíþjóð. Mikið
vantaði í íslenska liðið frá því á Ól-
ympíuleikunum síðasta sumar, en
það á þó ekki að vera nein afsökun
fyrir jafn stóru tapi fyrir mönnum
sem ekki komast í aðallið Svía sem
keppir á HM í Króatíu síðar í þessum
mánuði.
Magnús ÞórGunn-
arsson leikmaður
úrvalsdeildarliðs
Njarðvíkur tekur
út leikbann gegn
FSu í Iceland Ex-
press-deildinni 9.
janúar nk. Aga-
nefnd KKÍ úr-
skurðaði landsliðsbakvörðinn í leik-
bann þar sem hann fékk tvær
óíþróttamannslegar villur í leik gegn
Snæfelli. Þetta er í annað sinn á leik-
tíðinni sem Magnús er úrskurðaður í
leikbann og á ný missir hann af leik
gegn FSu.
Zydrunas Il-gauskas,
miðherji NBA-
liðsins Cleveland
Cavaliers, verður
líklega frá keppni
í einn mánuð
vegna meiðsla.
Miðherjinn há-
vaxni hefur leikið
allan sinn feril með Cleveland eða frá
árinu 1996. Hann er 2,18 m á hæð og
er fæddur í Litháen. Ilgauskas
meiddist í leik gegn Philadelphia 10.
desember sl. þar sem hann sneri sig á
ökkla. Hann missti af þremur leikjum
í kjölfarið en meiðslin reyndust alvar-
legri en í fyrstu var talið. Ilgauskas
hefur skorað tæplega 15 stig að með-
altali í leik á ferlinum en hann er lyk-
ilmaður í Cleveland sem er á meðal
bestu liða NBA-deildarinnar.
Mickael Pietrus, leikmaður Or-lando Magic í NBA-deildinni,
er þekktur fyrir að geta stokkið hátt
og troðið boltanum í körfuna með til-
þrifum. Pietrus mun ekki sýna slík
tilþrif á næstunni þar sem hann braut
bein í úlnliðnum í leik gegn Detroit á
mánudag. Þar reyndi bakvörðurinn
að troða boltanum í körfuna en hann
slasaðist þegar hann lenti ofaná Jas-
on Maxiell framherja Detroit. Piet-
rus hefur skorað tæplega 12 stig að
meðaltali í leik í vetur en hann lék áð-
ur með Golden State.
Olíuríkið Katar hefur hug á því aðsækja um að vera gestgjafar á
heimsmeistaramótinu í knattspyrnu
sem fram fer árið 2018. Saud al Moh-
annadj, forseti knattspyrnu-
sambands Katar, segir að ákvörðun
um umsóknina verði tekin á allra
næstu vikum. Næsta heimsmeist-
aramót fer fram í Suður-Afríku árið
2010 og keppnin fjórum árum síðar
fer fram Brasilíu.
Austurrískaskíðakonan
Nicole Hosp
meiddist á hné í
upphitun fyrir
heimsbikarmótið í
Króatíu í gær og
verður hún frá
keppni næstu sex
vikurnar. Það
þýðir að hún miss-
ir af heimsmeistaramótinu sem hald-
ið verður í Val d’Isere í Frakklandi í
byrjun næsta mánaðar.
Fólk sport@mbl.is
Mutombo verður þar með elsti leikmaður
NBA-deildarinnar. Þann titil bar Sam Cassell
leikmaður meistaraliðs Boston Celtics sem er
39 ára. Mutombo er 2,18 m á hæð og lék hann
39 leiki með Houston á síðustu leiktíð eftir að
kínverski miðherjinn Yao Ming fótbrotnaði.
Það var Ming sem hafði ítrekað samband við
Mutombo og óskaði eftir því að hann tæki til-
boði forráðamanna Houston.
Mutombo hefur leikið í 17 tímabil í NBA-
deildinni og verður þetta því
18. tímabil hans. Houston
hefur ekki náð góðum ár-
angri það sem af er árinu.
Liðið hefur unnið 20 leiki og
tapað 12 og situr það í 9.
sæti Vesturdeildar. Houston
er ekki inni í úrslitakeppn-
inni eins og staðan er núna.
„Þetta verða mínir síðustu
leikir í NBA-deildinni. Börn-
in mín hafa hvatt mig til þess að taka fram
skóna og leika á ný. Ég stóðst ekki freist-
inguna og ég er ánægður að fá tækifæri hjá
þessu félagi. Yao Ming fær eflaust starf hjá
háskólaliðum í framtíðinni við að ná í efnilega
leikmenn. Hann hringdi í mig 2-3 sinnum á dag
og hann hætti ekki fyrr en málið var í höfn,“
sagði Mutombo í viðtali við Houston Chronicle.
Mutombo á að baki 1.187 leiki í deildinni
með Denver, Atlanta, Philadelphia, New Jer-
sey, New York og Houston. Hann hefur fjórum
sinnum verið valinn besti varnarmaður deild-
arinnar, 1995, 1997, 1998 og 2001.
Nat Hickey er elsti leikmaðurinn sem hefur
leikið í NBA. Hann lék einn leik með Provi-
dence Steamrollers 1947-1948, þá 46 ára gam-
all.
Mutombo samdi við Houston
Hinn 42 ára gamli miðherji frá Kongó verður elsti leikmaður NBA-deildarinnar
ÞRÁTT fyrir að vera 42 ára gamall er miðherjinn Di-
kembe Mutombo eftirsóttur í NBA-deildinni og í
gær samdi hann við Houston Rockets út leiktíðina.
Dikembe Mutombo