Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 íþróttir Spennuleikir Íslandsmótið í íshokkí er orðið hörkuspennandi eftir tvo sigra SR á meist- urunum frá Akureyri um helgina. Bæði liðin vængbrotin í seinni leiknum sem SR vann, 5:4 2 Íþróttir mbl.is JÓN Benedikt Gíslason, fyr- irliði Skauta- félags Akureyrar og íshokkímaður ársins, er hand- arbrotinn og leikur ekki með SA næstu vik- urnar. Jón brotn- aði í leik gegn SR á föstudags- kvöldið og tjáði Morgunblaðinu að hann þyrfti að vera með höndina í gipsi næstu sex vikurnar. Að sögn Jóns er því óvíst hvort hann verður búinn að ná sér að fullu þegar úr- slitakeppnin hefst en þar á SA titil að verja. Jón á fjölmarga landsleiki að baki og hefur leikið með fé- lagsliðum í fimm löndum: Kanada, Finnlandi, Danmörku og Kína, auk Íslands. Þegar Jón lék í Kína varð hann fyrsti atvinnumaður Íslend- inga í íþróttinni. kris@mbl.is Sá besti með brotna hönd Jón Benedikt Gíslason BESTI og markahæsti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, Guðmundur Steinarsson, er á leið frá Keflavík til Vaduz frá Liechten- stein sem leikur í svissnesku úrvals- deildinni. Guðmundur mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á fimmtudag. Guðmundur staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að hann muni skrifa undir sex mánaða samning með mögu- leika á árs framlengingu, að því gefnu að hann standist lækn- isskoðun. Síðari hluti deildarinnar hefst 7. febrúar. kris@mbl.is Guðmundur á leið til Vaduz Morgunblaðið/Kristinn Ofurefli Hörður Axel Vilhjálmsson úr Keflavík reynir að fara framhjá KR-ingnum Jason Dourisseau. KR lék Keflavík grátt í bikarnum í gærkvöld. »3 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is Hermann leikur nú sitt annað tímabil með Portsmouth en hann var í lyk- ilhlutverki hjá liðinu sem vinstri bak- vörður í fyrra þegar það varð enskur bikarmeistari og hafnaði í 8. sæti úr- valsdeildarinnar. Þetta var besta tímabil félagsins í marga áratugi. Í ágústmánuði fékk Harry Red- knapp, þáverandi stjóri Portsmouth, tvo vinstri bakverði til liðs við sig. Armand Traore frá Arsenal og Nadir Belhadj frá Lens, báða sem láns- menn. Hermann hefur lítið fengið að spreyta sig frá þeim tíma og hafði fengið samþykki fyrir því frá Adams að leita fyrir sér annars staðar frá og með janúarmánuði en samningur Hermanns við Portsmouth rennur út í vor. „Það er rétt, á föstudag var málið nánast í höfn og til stóð að Hermann færi í læknisskoðun og undirskrift hjá Reading á mánudag (í dag). Adams kom síðan að máli við hann eftir æfingu á laugardaginn og lagði þunga áherslu á að hann yrði um kyrrt hjá félaginu til vorsins. Það skýrist vonandi á allra næstu dögum hvað verður en Adams hefur þetta í hendi sér,“ sagði Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hermanns, við Morg- unblaðið í gær. Sinnaskipti Tony Adams gagnvart Hermanni eru athyglisverð, ekki síst vegna þess að frá því í lok ágúst hafa Redknapp og hann aðeins einu sinni teflt honum fram í leik í úrvalsdeild- inni. Hermann var lykilmaður í geysi- sterkri vörn Portsmouth síðasta vet- ur en nú er varnarleikur liðsins mun slakari og eina breytingin á vörn liðs- ins er sú að Traore kom í stað Her- manns. Belhadj hefur aðallega leikið sem vinstri kantmaður, en einnig í bakvarðarstöðunni. Vörnin hefur ver- ið opnari, ekki síst vegna þess að Traore er betri í því að sækja en verj- ast, en styrkleikar Hermanns felast miklu frekar í varnarleiknum sjálf- um. Portsmouth hefur ekki náð að fylgja eftir góðu gengi á síðasta tíma- bili og er aðeins þremur stigum frá fallsæti í hnífjafnri deild. Án efa sér Adams Hermann sem vænlegan kost til að þétta varnarleikinn betur en til að fá Eyjamanninn sterka til að verða um kyrrt hjá félaginu þarf hann væntanlega að tryggja honum fast sæti í liðinu frá og með næsta leik. Hermann hefur látið það í ljós á af- gerandi hátt að hann ætli ekki að sitja lengur á varamannabekk félagsins og sé á förum frá félaginu að öllu óbreyttu. Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading, þekkir Hermann vel, fékk hann til Crystal Palace frá ÍBV fyrir hálfu tólfta ári, og það kemur ekki á óvart að hann skuli falast eftir honum til að styrkja Reading enn frekar í baráttunni um sæti í úrvalsdeildinni. Þar stendur Reading ágætlega að vígi í öðru sæti deildarinnar. Með Reading leika sem kunnugt er þeir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson og þá er Gylfi Þór Sig- urðsson í aðalliðshópi félagsins og hefur spilað nokkra bikarleiki með liðinu í vetur. Readingförinni frestað  Læknisskoðun og undirskrift Hermanns Hreiðarssonar hjá Reading slegið á frest  Sinnaskipti hjá Tony Adams sem vill halda Hermanni til vorsins Hermann Hreiðarsson Tony Adams HERMANN Hreiðarsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, gengur að öll- um líkindum til liðs við enska 1. deild- arliðið Reading á næstu dögum, ef samkomulag um það næst við Tony Adams, knattspyrnustjóra Portsmo- uth. Adams greip inní málið á laug- ardaginn þegar allt stefndi í að Her- mann myndi skrifa undir hjá Reading í dag, mánudag, og lagði hart að hon- um að vera um kyrrt hjá Portsmouth til vorsins. GUÐMUNDUR Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, kom ekki til landsins með ís- lenska landslið- inu í gær. „Ég fer til Króatíu í fyrramálið og verð þar með fyrirlestur fyrir dómara á heimsmeistaramótinu, bæði á þriðjudaginn og miðviku- daginn,“ sagði Guðmundur í sam- tali við Morgunblaðið eftir sigurinn á Bosníu í gær. Guðmundi var boðið að „messa“ yfir þeim dómurum sem dæma á heimsmeistaramótinu sem hefst í Króatíu á föstudaginn, og þáði hann boðið. Hann verður þó ekki þar á meðan mótið stendur yfir og kemur heim á fimmtudaginn, eftir að hafa rætt við dómarana. skuli@mbl.is Guðmundur til Króatíu Guðmundur Þ. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.