Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Jermain Defoefór beint í
byrjunarlið Tott-
enham sem sótti
Wigan heim í
ensku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær.
Gengið var frá
félagaskiptum
hans frá Portsmouth í tæka tíð fyr-
ir helgina og hann klæddist því
búningnum á ný eftir árs fjarveru.
Ekki byrjaði það vel því Wigan
sigraði 1:0, Maynor Figueroa skor-
aði sigurmarkið í uppbótartíma, og
Tottenham situr þar með í fallsæti
deildarinnar eftir 21 umferð, ásamt
Blackburn og WBA.
Tottenham varð fyrir áfalli seintí leiknum þegar miðvörðurinn
Michael Dawson fór meiddur af
velli en óljóst er hvort hann verði
lengi frá.
Marouane Fellaini, belgískimiðjumaðurinn hjá Everton,
er ekki kátur með gula spjaldið sem
hann fékk þegar lið hans vann Hull,
2:0, í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Það var tí-
unda gula spjald Belgans á tíma-
bilinu sem þýðir að hann fer í
tveggja leikja bann, og það eru ein-
mitt tveir nágrannaslagir gegn
erkifjendunum í Liverpool – í úr-
valsdeildinni og bikarkeppninni.
Andy Carroll tryggði Newcastlejafntefli gegn West Ham, 2:2,
á St. James’ Park á laugardaginn
með sínu fyrsta marki í ensku úr-
valsdeildinni. Carlton Cole hafði áð-
ur komið West Ham yfir með sínu
fjórða marki í jafnmörgum leikjum
og Íslendingafélagið hefur fengið
sjö stig úr síðustu þremur.
Danski fram-herjinn
Nicklas Bendt-
ner var hetja
Arsenal á laug-
ardaginn þegar
lið hans lagði
Bolton að velli,
1:0, á Emirates.
Bendtner kom
inná sem vara-
maður og skoraði sigurmarkið sex
mínútum fyrir leikslok. Grétar
Rafn Steinsson lék ekki með Bolt-
on, tók út leikbann, og missti þar
með af sínum fyrsta leik á tíma-
bilinu.
Heiðar Helguson og Aron EinarGunnarsson skildu jafnir í
ensku 1. deildinni á laugardaginn.
Leikur QPR og Coventry endaði
1:1 og íslensku landsliðsmennirnir,
sem báðir spiluðu allan tímann,
fengu sitt gula spjaldið hvor.
Fólk sport@mbl.is
Eftir þessi úrslit og frammistöðu lið-
anna tveggja er ljóst að sett verður
spurningarmerki við Chelsea og
möguleika liðsins á að kljást við Unit-
ed og Liverpool um meistaratitilinn
það sem eftir er vetrar. Chelsea er
reyndar enn í öðru sætinu en nú að-
eins stigi á undan United og fjórum á
eftir Liverpool.
Nemanja Vidic, serbneski miðvörð-
urinn, kom United yfir í uppbót-
artíma fyrri hálfleiks, með skalla eftir
hornspyrnu frá Ryan Giggs. Wayne
Rooney bætti við marki um miðjan
síðari hálfleik eftir fyrirgjöf frá Pat-
rice Evra, og rétt fyrir leikslok inn-
siglaði Dimitar Berbatov sigurinn
þegar hann þrumaði boltanum í netið
af markteig eftir aukaspyrnu Cristia-
nos Ronaldos frá vinstri, 3:0.
Manchester United á nú möguleika
að ýta Liverpool af toppi deildarinnar
um næstu helgi.
„Það er í okkar höndum, ef við
vinnum Wigan á miðvikudag og Bolt-
on á laugardag verðum við efstir.
Kannski endist það bara til mánu-
dags þegar Liverpool mætir Everton
en þannig viljum við sjá stigatöfluna á
laugardagskvöldið, með okkur sjálfa
á toppnum. Sigurinn á Chelsea í dag
var gífurlega mikilvægur. Eftir að
hafa séð Liverpool gera 0:0 jafntefli
við Stoke í gær urðum við að nýta
okkur það og vinna. Það tókst, og nú
verðum við á toppnum á laugardag-
inn kemur ef við leysum okkar verk-
efni vel af hendi,“ sagði Wayne Roo-
ney við sjónvarpsstöð Manchester
United í gær.
„Manchester United var betri að-
ilinn en við komum hingað til að sigra.
Við lékum vel fyrstu 45 mínúturnar
en fengum þá á okkur mark og það
gjörbreytti leiknum. Eftir það fengu
leikmenn United meira svæði til að
spila, eins og þeir vilja hafa það,“
sagði Luiz Felipe Scolari knatt-
spyrnustjóri Chelsea við BBC.
Ekki halda að við séum úr leik
„Þessi úrslit setja stórt strik í
reikninginn hjá okkur því við spil-
uðum alls ekki eins og við ætluðum
okkur. En þið skulið ekki halda að við
séum úr leik þó við töpum einum leik.
Við eigum 17 leiki eftir og munum
berjast til síðustu stundar. Maður
veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti
sér en ef við leikum áfram eins og í
dag í þremur af næstu fjórum leikum
okkar, munum við ekki innbyrða
sigra. En nú þurfum við, leikmenn-
irnir og ég, að gera upp við okkur
hvaða stefnu á að taka. Við getum
misst þetta allt frá okkur, eða tekið
mótlætinu eins og menn og bætt okk-
ar leik,“ sagði Scolari. vs@mbl.is
Ætlum að vera efstir
næsta laugardagskvöld
MEISTARAR Manchester United gáfu
heldur betur til kynna í gær að þeir
ætluðu sér ekkert annað en topp-
sætið í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Þeir völtuðu yfir Chelsea, 3:0, í upp-
gjöri þessara miklu keppinauta und-
anfarinna ára á Old Trafford og hafa
nú tapað fæstum stigum allra liða í
deildinni. Liverpool er fimm stigum á
undan en tapaði tveimur stigum með
markalausu jafntefli í Stoke. United
gæti náð toppsætinu með því að
vinna báða leikina sem liðið á inni.
Reuters
Fögnuður Leikmenn Manchester United fagna þriðja markinu gegn Chelsea, sem Dimitar Berbatov skoraði undir lok leiksins á Old Trafford í gær.
Man. Utd tók Chelsea í karphúsið, 3:0 Getur komist á toppinn innan viku
Í HNOTSKURN
»Manchester United færtækifæri á miðvikudaginn
til að komast upp fyrir
Chelsea og í annað sætið þeg-
ar liðið fær Wigan í heimsókn
á Old Trafford.
»Það er annar frestuðuleikjanna sem meist-
ararnir eiga inni. Með sigri
yrði United með 44 stig,
tveimur stigum á eftir Liver-
pool og með leik til góða.
»Hinn frestaði leikurinn erheimaleikur gegn Fulham
en hann verður leikinn 17.
febrúar.
TOPPLIÐ Liverpool í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu heimsótti Stoke City á Brit-
annia-leikvanginn. Hvorugu liðinu tókst að
skora mark í leiknum en Liverpool er samt
sem áður í toppsæti deildarinnar með 46
stig. En meistarar United eru komnir með
41 stig og eiga tvo leiki til góða.
,,Við byrjuðum vel og stjórnuðum leikn-
um. Þeir áttu sín tækifæri og höfðu trúna á
að þeir gætu fengið eitthvað út úr leiknum.
Við reyndum að skapa marktækifæri í síðari
hálfleik og tókst það ágætlega í tvö skipti. En það tókst ekki að
skora en það er jafnframt mikilvægt að tapa ekki slíkum leikj-
um. Þegar maður spilar gegn liði sem er með tíu menn í vörn þá
er það ávallt erfitt verkefni,“ sagði Rafa Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, í samtali við BBC að leiknum loknum.
Benitez einokaði nánast fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda leiks-
ins vegna ummæla sem hann lét falla um Sir Alex Ferguson,
kollega sinn í Manchester. kris@mbl.is
Liverpool missteig
sig gegn Stoke City
Rafa Benítez
VANDRÆÐI Reggina halda áfram í ítölsku A-deildinni í knatt-
spyrnu. Liðið tapaði 3:2 fyrir Lazio á heimavelli og er í næst
neðsta sæti deildarinnar. Emil Hallfreðsson var ekki í leik-
mannahópi Reggina. Makedóninn Goran Pandev reynist ör-
lagavaldur Reggina í leiknum því hann skoraði þrennu fyrir La-
zio og sigurmarkið á 76. mínútu.
Nýjasta stjarnan í ítalska boltanum, David Becham, stökk
beint inn í byrjunarliðið hjá AC Milan þegar liðið heimsótti AS
Roma í höfuðborgina. Beckham hafði ekki spilað alvöru leik síð-
an í október en lék í 89 mínútur í þriggja manna miðvallarlínu
Carlo Ancelotti. Liðin sættust á skiptan hlut 2:2 eftir fjörugan
leik þar sem hinn nítján ára gamli Alexandre Pato skoraði bæði
mörk Mílanóliðsins. Milan er í þriðja sæti deildarinnar, níu stig-
um á eftir erkifjendunum í Inter sem eru á toppnum.
Ancelotti leyndi ekki hrifningu sinni á Englendingnum, sem
verður einungis hjá Milan fram í mars: ,,Ég ákvað að láta Beck-
ham byrja inná því hann hefur undirstrikað undanfarna daga
hversu klókur, alvarlegur og áhugasamur hann er. Sannur fag-
maður sem leggur hart að sér.“ kris@mbl.is
Carlo Ancelotti hrífst
af David Beckham
TVÖ mörk frá Barcelona á síðustu tíu mín-
útum leiksins við Osasuna tryggðu efsta lið-
inu þrjú stig í gærkvöldi. Xavi jafnaði metin í
2:2 með marki á 80. mínútu og fimm mínútum
síðar skoraði Lionel Messi glæsilegt mark og
tryggði öll þrjú stigin.
Eto’o kom Börsungum yfir á 45. mínútu en
síðan komu tvö mörk frá heimamönnum, á
63. mínútu og síðan tíu mínútum síðar og
áhorfendur tóku vel við sér en það var ekki
lengi. Eiður Smári var á varamannabekknum
og kom ekki við sögu.
Real Madrid sótti þrjú stig til Mallorcu með því að skora þrí-
vegis en heimamenn náðu ekki að koma boltanum í netið. Sevilla
vann einnig góðan útisigur á Deportivo La Coruna, 3:1 og eru
þau jöfn að stigum, Sevilla og Real með 35 stig, 12 stigum á eftir
Börsungum. Valencia varð hins vegar að sætta sig við 3:3 jafn-
tefli á heimavelli á móti Villarreal og er því dottið í fjórða sæti
með 34 stig. skuli@mbl.is
Tvö mörk Börsunga í
lokin tryggðu stigin
Lionel Messi