Morgunblaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009 FYRSTA vika febrúarmánaðar hvert ár er tannverndarvika og í ár er lögð sérstök áhersla á tannþráð- inn og daglega notkun hans undir slagorðinu „Taktu upp þráðinn“. Gert hefur verið stutt kennslu- myndband um notkun tannþráðar sem sjá má á heimasíðu Lýð- heilsustöðvar. Einnig er vakin athygli á því að öllum 3, 6, og 12 ára börnum stend- ur til boða ókeypis eftirlit hjá tann- læknum. MorgunblaðiðKristinn Tannverndarvika UMBOÐSMAÐUR barna og tals- maður neytenda hafa gefið út ít- arlegar leiðbeiningareglur um aukna neytendavernd barna. Í reglunum felst m.a. að börn eigi ekki að þurfa að sjá auglýsingar í barnatíma í sjónvarpinu eða verða fyrir markaðsáreiti í skólanum. Lagt er til að tekin verði upp hollustuvottun og að einungis vörur sem uppfylla þá vottun megi aug- lýsa á ýmsum stöðum eins og t.d. í kringum bíósýningar, á dvd-diskum fyrir börn, á áberandi stað í íþrótta- mannvirkjum, eða auglýsa með teiknimyndafígúrum eða frægum persónum sem höfða til barna. Takmarka auglýs- ingar fyrir börn FAGRÁÐ geðhjúkrunar á Land- spítala í samvinnu við Rannsókn- arstofnun í hjúkrun við Háskóla Ís- lands og Landspítala heldur í fyrsta sinn vísindadag geðhjúkrunar. Til- gangurinn er sá að gefa geðhjúkr- unarfræðingum tækifæri til að kynna þróunar- eða rannsókn- arverkefni sín. Flutningur erinda fer fram í dag, föstudag, kl. 10-15 í stofu c-103, Eirbergi, Eiríksgötu 34. Allir velkomnir. Geðhjúkrun AFMÆLISFUNDUR í tilefni 9 ára afmælis GSA-samtakanna (Greys- heeters Anonymous) á Íslandi verð- ur haldinn í Safnaðarheimili Vídal- ínskirkju í Garðabæ. á laugardag frá kl. 10-16. GSA eru 12 spora- samtök fyrir matarfíkla. Gestafyrirlesari verður Joel H. frá Bandaríkjunum, en hann hefur viðhaldið stöðugu fráhaldi af Gráu síðunni í 14 ár. Fundur matarfíkla Í FYRRADAG fékk Fjölsmiðjan, sem er vinnusetur fyrir ungt fólk, afhentan veglegan styrk upp á 11 milljónir kr. úr hendi Eysteins Helgasonar, framkvæmdastjóra Kaupáss, vegna sölu bókar Nóatúns “Veisla með fjölskyldu og vinum“. Framleiðsla bókarinnar var styrkt að fullu af styrktarsjóði Norvikur og Nóatúni. Bókin var seld í Nóatúnsversl- unum fyrir jólin og rann sölu- andvirðið óskert til Fjölsmiðjunnar. Bókin varð í 5. sæti yfir mest seldu bækur á síðasta ári. Styrkurinn mun fara í nýja tón- listardeild sem í mörg ár hefur ver- ið draumur að stofna en eins á að efla hússtjórnardeildina til muna. Fjölsmiðjan fær 11 milljóna kr. styrk Nafn blaðamanns Við vinnslu greinar í Viðskiptablað Morgunblaðsins í gær, þar sem fjallað var um viðtal við Davíð Odds- son seðlabankastjóra í Kastljósi 7. október á síðasta ári, féll niður nafn blaðamannsins sem vann textann í blaðið. Hann heitir Þórður Snær Júlíusson og er blaðamaður á við- skiptaritstjórn Morgunblaðsins. LEIÐRÉTT Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN fara ekki var- hluta af efnahagsástandinu frekar en aðrir. Reykjavíkurborg ákvað í byrjun janúar að hætta við fyrirhug- aða hækkun frístundakorta úr 25 þúsund í 40 þúsund krónur. Nú í vikunni lagði borgin svo fyrir tómstundaráð viðaukasamning um endurskoðaða fjárveitingu til íþrótta- og æskulýðssamninga, vegna samninga sem undirritaðir voru í janúar 2008. Vegna efnahags- ástandsins og vegna lækkunar út- gjalda í fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar hefur því verið ákveðið annars vegar að fresta fyrirhugaðri fjölgun á styrkhæfum tímum úr 44 í 50 á viku, og aftengja vísitölubind- ingu. Greiðsla ársins 2009 verður því ekki bundin við vísitölu neysluverðs. Í ofanálag halda svo margir styrkt- araðilar, sem íþróttafélögin hafa reitt sig mjög á, að sér höndum. Hækka almennt ekki gjöldin Íþróttafélögin reyna eftir sem áð- ur að hækka ekki æfingagjöld og svo virðist sem enn sé ekki um mikið brottfall að ræða eða að foreldrar treysti sér ekki lengur til að greiða fyrir íþróttaiðkun barna sinna. „Það hefur ekki verið meira brott- fall hingað til en venjulega,“ segir Guðrún Sigurþórsdóttir hjá Sund- félaginu Ægi. „Við setjum æfinga- gjöldin á haustin þannig að þau haldast óbreytt allavega fram á sumar og það eru rosalega margir sem nýta sér frístundastyrkinn núna. En svo veit maður ekki hvað verður í haust þegar fólk verður styrklaust, hvort þá verði mikið brottfall.“ Hjá Júdófélagi Reykjavíkur feng- ust þau svör að allar leiðir væru skoðaðar til að forðast hækkun æf- ingagjalda. „Við reynum bara að þrauka.“ Sömu sögu segir Þóra Gunnarsdóttir, gjaldkeri listhlaupa- deildar Skautafélags Reykjavíkur. „Hin eiginlegu æfingjagjöld þurfum við ekki að hækka, en við verðum að stoppa alla aukahluti. Við getum t.d. ekki fengið aukaþjálfara að utan til að bæta getu skautaranna eða boðið þeim upp á sumarnámskeið. Svo höfum við yfirleitt haft glæsilega vorsýningu en ég sé ekki fram á að það verði af því, og keppnisferðirnar norður varð að flauta af því þetta var orðið of dýrt fyrir krakkana.“ Guðjón Guðmundsson, formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur, segir svipaða sögu, gjöld verði ekki hækkuð og grunnstarfið haldist óbreytt en skorið niður í viðbótar- ferðum. „Það er ekki hægt að leggja á foreldra að borga stórar upphæðir til viðbótar við æfingagjöldin.“ Morgunblaðið/Kristján Boltastrákar Enn hefur ekki mikið brottfall orðið úr íþróttastarfi barna. Íþróttafélögin reyna að hækka ekki gjöldin Borgin hefur ekki getað hækkað fjárveitingu eins og til stóð Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga frá 10-18 20% aukaafsláttur af útsöluvörum str. 36-56 VÖRÐUR, fulltrúaráð sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík, samþykkti á stjórnarfundi sínum í gær að efnt yrði til prófkjörs fyrir alþingiskosningar í vor. Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar, segir einhug hafa ríkt um þessa ákvörðun. „Þetta er venju sam- kvæmt, að kjördæmisráðin taki ákvörðun um hvaða aðferð er beitt til þess að raða upp á lista. Ég lagði það til við mína stjórn að efnt yrði til próf- kjörs og það var samþykkt einróma með öllum greiddum atkvæðum.“ Næst á dagskrá að sögn Mörtu er því endanleg samþykkt og skipulagning prófkjörsins. „Fulltrúaráðs- fundur verður auglýstur, þar sem allir félagar í fulltrúaráði hafa seturétt, og þar verður tillaga stjórnar borin upp til sam- þykktar og dag- setning og nánari framkvæmd ákveðin.“ Fulltrúaráðsfundur verður haldinn laugardaginn 7. febrúar næstkom- andi. una@mbl.is Ákveðið að efna til prófkjörs í Reykjavík Marta Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.